Læknablaðið - 01.09.1956, Side 40
80
LÆKNABLAÐIÐ
aðiljar að Elli- og örorkutrygg-
ingarsjóði lækna. Telur stjórn
L. 1. það vel farið. Sumir telja
auk þess æskilegt að embættis-
læknar keyptu sér nokkra
tryggingu umfram þá, sem líf-
lífeyrissjóður veitir. Væri gott
að heyra álit embættislækna, er
fundinn sitja, um þetta mál.
Frh. í næsta bl.
W'róttír
Dr. Bodil Eskesen, sem ritar
grein hér í Læknablaðið um
meðferð á mænusótt, var í
hjálparliði því, sem kom hingað
til lands frá Danmörku í fyrra-
haust, til leiðbeiningar og að-
stoðar, þegar mænusóttarfar-
aldurinn braust út. Hún dvaldi
hér fram á vor og vann hér
mikið og gott starf. Skömmu
áður en hún fór flutti hún, í
Læknafélagi Reykjavíkur, er-
indi það, sem hér birtist, en
ritstjórn Læknablaðsins fannst
það eiga erindi til fleiri lækna
en þeirra, sem þar gátu á það
hlýtt.
Embættaveitingar.
Flateyjarhérað hefur verið
veitt frá 1. júlí þ. á. Knúti
Kristinssyni, fyrrv. héraðs-
lækni.
Höfðahérað á Skagaströnd
var veitt 15. júlí þ.á. Lárusi
Jónssyni, lækni.
Keflavíkurhérað.
Karl Magnússon, héraðslæknir,
hefur fengið lausn frá embætti
samkvæmt umsókn. Um hérað-
ið sóttu: Einar Ástráðsson,
héraðslæknir á Eskifirði, Þor-
geir Gestsson, héraðslæknir í
Húsavík og kandídatarnir
Björn Þórðarson og Kristján
Sigurðsson. Einar Ástráðsson
hefur verið skipaður þar hér-
aðslæknir frá 1. okt. þ. á.
F járveiting til framhalds-
náms, 50000,00 kr., var sett á
fjárlög ársins 1956, til sérnáms
lækna erlendis eftir úthlutun
landlæknis. Þessu fé hefur nú
verið skipt jafnt á milli dr.
med. Bjarna Jónssonar og Val-
týs Bjarnasonar. Bjarni er nú
farinn til Kaupmannahafnar
og ætlar að starfa þar 1 ár á
deild próf. Buschs og kynna
sér sérstaklega heilaaðgerðir
vegna slysa, en Valtýr er í
Bandaríkjum Ameríku til
framhaldsnáms í svæfingum
og blóðbankastarfi.
Bólusetniny gegn mænusóU
hófst seinni hluta september-
mánaðar hér á landi. Til henn-
ar hefur verið fengið Salk-bólu-
efni, sem á að nægja 15000
manns og danskt bóluefni
handa 50000.
Alþjóðlegur læknafundur um
gigtska sjúkdóma.
(The 9th Internat. Congress
on Rheumatic Diseases) verður
haldinn í Toronto, Canada, 23.
—28. júití 1957.
Nánari upplýsingar veitir
stjórn L. I.