Bændablaðið - 12.12.2013, Síða 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 201312
Fréttir
Senn líður að jólum og hátíð
frelsarans gengur í garð með
boðskap og fögnuði og tilbreytingu
í mat og drykk. Aðventan
er merkilegur aðfaratími að
jólunum, ekki síst fyrir það að
við gerum svo margt á heimilum
og á vinnustöðum til að taka utan
um hvert annað með félagslegum
hætti og fjölskylduhátíðum.
Vegna þessa alls gleymum við
flest myrkrinu og svo fer daginn
að lengja strax í janúar.
Jesúbarnið fæðist á ný ár hvert
til að minna okkur á kærleikann
og að umgjörðin þarf ekki alltaf
að vera mörkuð auði og völdum.
Jesús var í jötu lagður og móður
hans var vísað frá fína fólkinu sem
gisti hótelið.
Fátækir sauðahirðar á
Betlehemsvöllum fengu fyrstir
þær fréttir að undrabarn væri fætt.
Og enn erum við minnt á það
siðgæði sem Jesús boðaði á stuttri
starfsævi sem merkasti trúboði
eða í raun stjórnmálaleiðtogi allra
tíma. Hann boðaði stefnu sem enn
er grundvöllur þeirra ríkja sem best
gengur í heiminum. Hann bað okkur
að gæta okkar minnsta bróður og
systur, að gjalda illt með góðu. Hann
rak illskuna burtu sem er svo þrálátt
afl í manninum og brýst fram eins
og í dýrum og birtist okkur stundum
í blóðfórnum og fólskuverkum.
Jafnvel heyrum við af því hér á
landi að hópur ungmenna ráðist
að einum félaga sinna og fremji
svo ógeðslegan verknað að það er
óskiljanlegt og oft kennt við einelti
en einelti er glæpur.
Harðari heimur skotvopna
Við vorum minnt á það á dögunum
að lögreglan á í baráttu við
forhertari glæpamenn en áður sem
beita skotvopnum í vímurugli eða
geðveiki. Þess vegna þurfum við að
efla almannavarnir fólksins og láta
vita ef einhver afbrigðilegur náungi
er í hverfinu okkar eða sveitinni. Á
sínum tíma gengum við Íslendingar
í Schengen og þar með færði Ísland
varnarlínur sínar eða landamærin
langt niður í Evrópu. Spyrja má, var
það rétt, í ljósi reynslunnar. Bretar
gerðu það ekki, hvers vegna?
Oft eru gerð mistök og þá ber
að endurskoða þau. Mér finnst
óþarfi að landið sé galopið og
nær væri að stöðva glæpamenn
á landamærunum heldur en að
þeir vaði inn í stofu hjá okkur
og lifi svo við velsæld í tugthúsi
hér. Til stendur að byggja dýrasta
hótel heimsins yfir fanga uppi á
Hólmsheiði og skal rýmið fyrir
einn slíkan kosta 40 milljónir að
mér er sagt. Hversu mörg rúm taka
Schengen-fangarnir?
Á landamærum lífs og dauða
Enginn maður batnar í fangelsi.
Mjög gott starf er samt unnið í
fangelsismálum í dag og nýjar
leiðir ræddar í refsingum og
skólaganga fanga skilar föngunum
sjálfstrausti og oft nýju lífi. En
stærsta verkefni allra tíma er hins
vegar að hjálpa fólki, leiða það inn
á réttar brautir og að unglingarnir
okkar fari aldrei í gönguferð á
gálgahrauni vitleysunnar, eða leiki
sér á landamærum lífs og dauða.
Heimilin, kirkjan og vinnu-
staðirnir þurfa enn frekar að opna
dyr sínar svo að hver og einn sem
í vandræðum á eignist trúnaðarvin
og geti nálgast hjálp. Munum að
kvölin og angistin er mest hjá
mömmu og pabba sem á barnið
sitt á villigötum. Hinar mögnuðu
hjálpar- og björgunarsveitir og
lögreglan þurfa á okkur öllum að
halda til að byrgja brunninn áður
en barnið dettur ofan í hann. Það
er erfitt verkefni að vera maður, en
Jesús Kristur lagði veg kærleikans
sem stendur öllum til boða.
Guðni Ágústsson, framkvæmdastjóri SAM:
Umgjörð jólanna þarf ekki alltaf
að vera mörkuð auði og völdum
Íslandsmeistaramót í rúllupylsu-
gerð fór fram á dögunum á
Sauðfjár setri á Ströndum í
samvinnu við Slow Food samtökin.
Gestum og gangandi var boðið
upp á að smakka dýrindis rúllu-
pylsur sem gerðar voru með
margvíslegum aðferðum.
Ellefu rúllupylsur kepptu um
Íslandsmeistaratitilinn og voru
fæstar þeirra hefðbundnar. Sérvalin
dómnefnd undir forystu Sverris Þórs
Halldórssonar matreiðslumeistara
dæmdi pylsurnar eftir bragði, áferð,
lykt og mörgum öðrum þáttum. Auk
hans voru í dómnefnd þær Halla
Steinólfsdóttir frá Fagradal og Bára
Karlsdóttir veitingamaður á Café
Riis á Hólmavík. Frá þessu er sagt
á vefnum Strandir.is.
Í fyrsta sæti varð pylsan Fjalla-
drottningin (villijurtakrydduð) sem
Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías
Lýðsson bændur í Húsavík gerðu,
en þau selja einmitt margvíslega
matvöru í gegnum verkefnið Beint
frá býli. Matthías og Hafdís í
Húsavík unnu einnig keppnina í fyrra
með léttreyktri rúllupylsu, en þá var
keppnin haldin í Króksfjarðarnesi.
Í öðru sæti varð rúllupylsan
Strandasæla sem Jón Jónsson,
aðstoðarmaður hjá Ferðaþjónustunni
Kirkjubóli á Ströndum, hafði útbúið,
með ótæpilegu magni af sojasósu,
rauðlauk og sveppum.
Í þriðja sæti varð rúllupylsan Ein
með öllu sem Jón Valur Jónsson og
Dagrún Ósk Jónsdóttir á Kirkjubóli
gerðu, en þau notuðu hráan lauk og
steiktan, tómat, remúlaði og sinnep í
sína rúllupylsu. Sú pylsa var einnig
valin sú frumlegasta í keppninni.
Keppnin þótti heppnast vel
og höfðu menn gaman af. Auk
rúllupylsukeppninnar og smakksins
fyrir gesti og gangandi voru sölu-
básar með ýmsum varningi í anddyri
Sauðfjársetursins. Kaffihlaðborð
var á boðstólum á Kaffi Kind og
frítt inn á sýningar safnsins í tilefni
dagsins.
Sauðfjársetrið á Ströndum:
Fjalladrottning besta rúllupylsan
Jón Jónsson Kirkjubóli í 2. sæti, Hafdís Sturlaugsdóttir Húsavík 1. sæti, Jón Valur Jónsson og Dagrún Ósk Jónsdóttir
Kirkjubóli 3. sæti og frumlegasta rúllupylsan. Myndir / strandir.is
54 54 300 SMIÐJUVEGUR 7 KÓPAVOGUR
ispan.is vottuð framleiðsla
Góðir landsmenn!
Lokað verður um hátíðarnar, opnum aftur 2. janúar kl. 8
Bestu óskir
um gleðilega hátið