Bændablaðið - 12.12.2013, Blaðsíða 54
55Bændablaðið | Fimmtudagur 12. desember 2013
Vestfirska forlagið:
Allskonar sögur
– Fyrir börn og fullorðna, eftir Jón Hjartarson og Ásu Ólafsdóttur
Bækur
Hamingja í méldós
Út er komin þriðja ljóðabók
Sigríðar Jónsdóttur í Arnarholti í
Biskupstungum og ber heitið Undir
ósýnilegu tré. Fyrsta bók Sigríðar,
Einnar báru vatn, kom út árið
2005 og hlaut afburðagóða dóma.
Önnur bók hennar, Kanill, var
tilnefnd til Fjöruverðlauna og hlaut
Rauðu fjöðrina árið 2012. Erlendur
Jónsson bókmenntagagnrýnandi
sagði m.a. um ljóð Sigríðar í
ritdómi 2005:
Ljóð Sigríðar eru aldrei innantóm,
aldrei leiðinleg og yfirleitt gagnorð.
Í þessari þriðju
bók Sigríðar
skiptist í fjóra
kafla og hefur að
geyma 49 ljóð.
Þar er fjallað
um ár bóndans,
l í f ungrar
konu, karla
og kerlingar,
pólitík og ástir.
Bændablaðið
grípur hér
aðeins ofan
í bókina þar
sem búskapur
og búpeningur
kemur allmikið við
sögu. Framarlega er erfiljóð eftir kind,
Eftir Sextíu og eitt. Æviskeið kindar
og bónda eru hér lögð að líku:
Fortíðin er að baki
þar sem þú lifðir lífi þínu
Sextíu og eitt.
Þú hafðir þína hentisemi
og vildir vera frjáls.
Síðan þá
höfum við vaðið flauma
alls konar erfiðleika
og höldum að við stöndum
á hinum bakkanum.
En lífið er endalaust úthaf,
við eygjum ekki dauðann
en róum á bæði borð.
Sælir eru sveitamenn,
miða líf sitt við land
ljóða eftir vegarollu,
mæla hamingjuna í méldós.
Smaladagar eru víðar en í heimasveit
skáldsins og eitt ljóðið heitir
einmitt Smaladagur á himnum.
Hér er brugðið upp mynd af ást
og trú sem liggur ljóslifandi fyrir
sveitamönnum:
Jesús kallar á englana:
Gáið hvar húsfreyjan grætur
ána sína
veturgamla.
Bóndinn segir við englana:
Hafið engar áhyggjur
englarnir mínir,
hún verður ekki ein,
en látið opin hliðin
þegar þið snúið heim.
Lokakvæði bókarinnar er svo
Kona verður kind.
Einu sinni var kona
sem breyttist í villikind.
Hornin rákust í girðinguna
þegar hún skaust
út úr garðinum
og júgrið dinglaði milli
afturlappanna þegar
hún brokkaði austur veg.
Ærin dokaði til að sjá
hvort lömbin fylgdu;
hrútarnir komu báðir
lausir við skóna og fundu
að eitthvað var framundan.
Eftir það leit konan
aldrei um öxl, enda
hafði hún engar axlir.
Mjóslegin um bógana
steðjar hún
upp í vindinn
sætt bragð í munni
geldingahnappur
kroppa
Út er komin hjá Vestfirska
forlaginu bókin Allskonar
sögur fyrir fullorðna og börn.
Bókin er eftir Jón Hjartarson
og Ásu Ólafsdóttur og fylgir
fjöldi skemmtilegra teikninga
eftir Ómar Smára Kristinsson
sögunum í bókinni. Hér er ein af
þessum sögum, sem heitir Urtan
og ljósmóðirin.
Hér segir frá því þegar ljósmóðir
hjálpar urtu að kæpa.
„Sofa urtu börn
á útskerjum,
veltur sjór yfir,
og enginn þau svæfir.“
Þjóðvísa
Langamma mín, Sigríður Jónsdóttir
frá Stórafjarðarhorni, var ljósmóðir
og ferðaðist mikið á milli bæja til
að sitja yfir konum, eins og það var
kallað þegar konur lögðust á sæng
og fæddu börn.
Hún eignaðist sjálf 19 börn, svo
oft hefur verið mikið um að vera á
hennar heimili, en hún lét það ekki
hindra sig í því að sinna ljósmóður-
störfum eins og þurfti.
Eitt sinn að vorlagi eða snemma
sumars, laust fyrir aldamótin 1900, er
amma á leið frá Stórafjarðarhorni út
að Broddanesi einhverra erinda. Hún
gengur sem leið liggur götutroðninga
eftir Bökkunum áleiðis út með firði.
Veðrið er gott, lygnt og hlýtt
vorveður, fjörðurinn rennisléttur og
ilmur í lofti.
Þegar hún kemur þar sem heitir
Stórabyrgi og Litlabyrgi heyrir hún
sérkennilega annarleg hljóð neðan
úr fjöru, líkt og kvalastunur, sárs-
aukavein eða eitthvað í þá áttina.
Langamma ákveður að athuga hvort
einhver sé hjálparþurfi eða hvaða
hljóð þetta séu eiginlega og hvaðan
þau komi. Hún víkur af götunni og
gengur á hljóðið og þegar hún kemur
nær sér hún að á fjörukambinum
liggur mikil og digur landselsurta
að kæpa og virðist eiga í miklum
erfiðleikum, veltir sér til og frá og
kveinar hátt og sársaukafullt.
Langamma staldrar við álengdar
og virðir fyrir sér aðstæður og hugsar
sitt ráð, hvað nú eigi til bragðs að
taka, á urtunni er ekkert fararsnið og
greinilegt að hún þjáist mjög mikið.
Henni rennur ljósmóðurblóðið til
skyldunnar, að hjálpa var skylda sem
henni var í blóð borin og þá skipti
ekki máli hvort um var að ræða konu
í barnsnauð eða selsurtu á sjávar-
strönd.
Hún tekur það ráð að tala til
urtunnar, róandi mjúkri röddu um
leið og hún
þokar sér nær,
o f u r h æ g t ,
skref fyrir
skref. Urtan
fylgist með
og sýnir engin
viðbrögð nema
hún stynur þungan og
rekur upp kvalafull hljóð þess á milli.
Langamma kemst alveg að urtunni
og sér strax að þörf er á fæðingarhjálp
eigi urtan og kópurinn ekki bæði að
farast þarna á sjávarkambinum. Hún
krýpur niður hjá henni til að athuga
hvernig best sé að standa að málum
og hjálpa til. Áður en löng stund
er liðin hefur hún hjálpað urtunni,
kópurinn fæðist sprækur og hún
færir hann urtunni, þar sem hún
liggur dösuð á malarkambinum eftir
fæðinguna. Langamma víkur spöl
frá og fylgist með hvernig móður og
afkvæmi reiði af og þegar hún sér að
allt er eins og það á að vera, snýr hún
frá og í sama mund reisir urtan sig
upp og blakar öðrum framhreifanum
í átt að henni
eins og í
kveðju eða
þ a k k l æ t i s -
skyni.
Langamma
þvær sér um
hendurnar í
næsta læk og
heldur svo ferð sinni áfram eins og
ekkert hefði í skorist. Skömmu eftir
þennan atburð hittir Andrea, unga
húsmóðirin í Litlafjarðarhorni,
Sigríði sem þá segir þessa merkilegu
setningu:
„Nú get ég ekki tekið á móti fleiri
börnum hjá þér Andrea mín, þar sem
ég hefi hjálpað sel að fæða.“
Andrea sagðist hafa svarað
eitthvað á þá leið, að hún hlustaði
ekki á svona endemis vitleysu, hún
vildi enga aðra yfirsetukonu yfir sér
en Sigríði og þar við sat.
Spurningin sem enn er ósvarað er:
Hvers vegna taldi langamma sig ekki
mega hjálpa konum að fæða eftir að
hafa hjálpað selsurtunni?
Á kápubaki er mynd af skáldkonunni
tekin af bæjarhlaði í Arnarholti.
Söluaðilar um land allt - Sjá nánar á benni.is
Cultor: Evrópsk gæðadekk fyrir íslenskan landbúnað.
Bílabúð Benna
dekkjaþjónusta
Tangarhöfða 8
Sími: 590 2045
Sími: 590 2000
Réttu dekkin fyrir
traktorinn, jeppann
og fjórhjólið
Ef þú vilt nýta til fullnustu orku, aksturseiginleika og öryggi
farartækisins, skiptir sköpum að velja dekk við hæfi. Þegar dekk
eru annars vegar geturðu treyst á áratuga reynslu okkar og
þekkingu - því þetta er allt spurning um að velja þau réttu.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Næsta blað kemur út 9. janúar 2014