Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.1958, Side 9

Læknablaðið - 15.11.1958, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS OG LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR Aðalritstjóri: ÓLAFUR BJARNASON. Meðritstjórar: JULÍUS SIGURJÓNSSON (L. í.) og ÓLAFUR GEIRSSON (L. R.) 42. árg. Reykjavík 1958 6.—7. tbl. -. CANCER OVARII Erindi flutt a fundi Qiir Q. Gamall austurlenzkur máls- háttur segir eitthvað á þessa leið: „Fjórir eru þeir hlutir, sem aldrei koma aftur: liið talaða orð, hinn liðni tími, hin skotna ör og hið ónotaða tækifæri“. Fjöldi fólks deyr árlega úr krahbameini, sem í mörgum til- fellum væri hægt að lækna, ef ekki væri ónotað það tækifæri að greina sjúkdóminn í tíma, svo að varanlegri lækningu verði við komið. 1 Bandarikjum Norður-Ame- ríku einum saman devja árlega h.u.b. 35.000 konur úr krabba- meini í leghálsi. Þessi tegund krahbameins liggur tiltölulega vel við greiningu á frumstigi, og telja læknar þar, að tölu þessa mætti lækka um 70—80 af liundraði, ef konur þessar hefðu í tíma hlotið viðeigandi rannsókn og meðferð. Nú ber þess að gæta, að einmitt í Banda- Reykjavikur miðvikud. 13. nóv. 1957. ríkjunum er þessum málum einna hezt komið i horf meðal þjóða heims, þar sem skipu- lagðar rannsóknir til uppgötv- unar á krabbameini hafa átt sér stað um margra ára skeið. Greining á krabbameini á frumstigi er að sjálfsögðu jafn mikilvæg fyrir góðan lækninga- árangur, hvaða svæði líkamans sem í hlut á. Hins vegar mis- munandi auðvelt að greina sjúk- dóminn, jafnvel þótt góð rann- sóknartæki og kunnátta sé fyrir hendi. Krabbamein í eggjastokkum kvenna má telja lil þeirra teg- unda, sem miklum erfiðleikum er hundið að greina á frumstigi. Hefur það sérstöðu um margt fram yfir aðrar algengar teg- undir krabhameina í konum. Ég mun í þessu stutta erindi mínu geta aðeins að litlu tiðni sjúkdómsins og flokkunar, en

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.