Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.1958, Síða 10

Læknablaðið - 15.11.1958, Síða 10
82 L Æ Iv N A B L A Ð I Ð einkum ræða um einkenni, greiningu og meðferð. Tíðni. Krabbamein í eggjastokkum kvenna er alltíður sjúkdómur. Kemur annað í röð illkynja æxla í genitalia, aðeins legbálsinn er það svæði, sem algengara er, að krabbamein korni fyrir í. Sam- kv. skrásetningu þeirri, sem Krabbameinsfélagið lætur gera, kemur í ljós, að milli 15 og 20 tilfelli koma árlega fyrir hér á landi. Skv. upplýsingum teknum úr grein prófessors Níelsar Dungal —• „Cancer in Iceland“ —, sem birtist árið 1955 í „Annals of the Royal College of Surgeons of England“, kom í Ijós við krufn- ingar, sem gerðar voru í Rann- sóknastofu Háskólans á árun- um 1932—1953, að hjá konum var krabbamein í eggjastokkum liið fjórða tíðasta. Kom það á eftir illkynja æxlum í maga, brjóstum og legbálsi. Elf fariö er eftir dánarskýrslum hér á landi árin 1940—1949, er krabbamein í eggjastokkum hið fimmta í röð illkynjaðra æxla, skv. sömu beimijd. Er þá um sömu röð að ræða, nema krabbamein í ristli kemur i fjórða sæti. Til samanburðar eru tölur frá New York-fylki 1942—1947, en þar er krabbamein í eggjastokk- um liið áttunda i röðinni bjá konum. Illkynja æxli koma þar oftar fyrir á áðurtöldum svæð- um, og ennfremur í búð, rectum og sigmoideum og corpus uteri. Sjúkdómurinn er fátíðari í konum innan 35 ára aldurs, en er algengastur milli fimmtugs og sextugs. Fæðingartíðni virð- ist engin áhrif hafa á tiðni bans. Flokkun. Mikils ósamræmis gætir um flokkun á æxlum í eggjastokk- um. Segja má, að hverju sinni, sem lesin er bók um þetta efni, komi fram ný flokkun á þess- um sjúkdómum. Orsök þessa misræmis er sú, að um mikinn fjölda tegunda er að ræða, með afar fjölbreyttu útliti, bæði sýni- legu með berum augum og við smásjárrannsókn. Eg mun ekki ræða nánar þessar flokkanir hér, enda má segja, að þær hafi frekar vísindalega en almenna þýðingu. Flestum höfundum ber sam- an um, að af öllum æxlum, sem fyrir koma i eggjastokkum, séu frá 21—26 af hundraði illkynja, eða því sem næst fjórði hluti. Eitt má telja athýglisvert, að eggj astokkarnir eru áberandi undántekning frá þeirri reglu, sem Vircliow setti fram á sín- um tíma, að: „líffæri, sem ill- kynja æxli koma oft fyrir i, verði sjaldan fvrir útsæði frá öðrum æxlum“. Það er einmitt mjög algengt, að útsæði berist til eggjgastokkanna frá krabba- meinum í öðrum líffærum, eink-

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.