Læknablaðið - 15.11.1958, Page 42
110
LÆKNABLAÐIÐ
augljósara, hve brýnt er að gera
nauðsynlegar ráðstafanir.
Það vill líka svo vel til, að
við höfum yfir að ráða meðali
til að fyrirbyggja sjúkdóminn.
Mér virðist því, að nauðsyn-
legt sé:
1) Gera ónæmisaðgerðir að
skyldu í öllum skólum. Nota
tetanustoxoid, en gefa auka-
skammt, ef slys ber að hönd-
um.
2) Gefa reglubundið tetanus-
antitoxin 3000 ein. við allar
aðgerðir á slysum, þar sem
grunur gæti leikið á um tet-
anus sýkingu, en sjúkl. ekki
fengið ónæmisaðgerð.
Ef þessu væri framfylgt, ætti
tetanus-sýking að verða óþekkt
fyrirbrigði.
Heimildir:
Stafford et al.: Ann. Surg. October
1954.
Jan Aird: A Companion in Surgi-
cal Studies. 1949.
TETANUS by Páll Gíslason.
SUMMARY:
A case of Tetanus is described.
A seaman from the Faroe Islands
working on board an Icelandic
trawler had four fingers of the left
hand severely injured. Twenty two
hours later he was brought to the
municipal hospital of Akranes. Se-
ven days from the accident symp-
toms of Tetanus were observed.
The patient received intensive anti-
toxic and chemotherapeutic treat-
ment. A tracheotomy was made and
also a gastrostomy for feeding pur-
poses. A partial amputation of three
fingers had to be performed. The
patient left the hospital 2% months
after admission. As a possible sour-
ce of infection in this case hides
used on board the trawler are sugge-
sted.
After the description of this case
a short survey of the disease is
given and lastly as preventive mea-
sures compulsatory vaccination
with tetanus-toxoid is suggested
at school age.
♦------------------
FRÁ LÆKXFM:
Arnbjörn Ólafsson, héraðslæknir
í Hólmavíkurhéraði, hefur fengið
lausn frá embætti frá 1. des. 1958
að telja. Arnbjörn mun fyrst um
sinn verða starfandi læknir í Kefla-
vík.
Jóhann Friðrik Sveinsson, læknir,
var skipaður héraðslæknir i Þórs-
hafnarhéraði frá 13. okt. 1958 að
telja.
Garðar Þ. Guðjónsson, læknir,
var skipaður héraðslæknir í Hólma-
víkurhéraði frá 1. des. 1958 að telja.
Frá sama degi var Garðar einnig
settur til þess að gegna Djúpavík-
urhéraði ásamt sinu héraði.
Ragnar K. Karlsson, læknir, hef-
ur hinn 24. des. 1958 fengið leyfi til
þess að mega starfa sem sérfræð-
ingur í tauga- og geðsjúkdómum.
Björn Önundarson, cand. med.,
hefur hinn 24. des. 1958 fengið leyfi
til þess að mega stunda almennar
lækningar hér á landi.
Geir Jónsson, cand. med., hefur
hinn 24. des. 1958 fengið leyfi til
þess að mega stunda almennar
lækningar hér á landi.
Jón Guðgeirsson, cand. med., hef-
ur hinn 24. des. 1958, fengið leyfi til
þess að mega stunda almennar
lækningar hér á landi.