Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.09.1961, Side 26

Læknablaðið - 01.09.1961, Side 26
104 LÆKNABLAÐIÐ ilvægum notum og gert kleift að fylgja eftir ýmsum viðbrögð- um (reactionum) i efnaskipt- ingunni. Þekking manna á ör- efnum næringarinnar er enn af skornum skannnti og stafar mest af því, að maðurinn þarfn- ast svo fjarska lítils af þeim, að með þeim aðferðum, sem enn eru þekktar, er ekki liægt að út- rýma þeim svo gersamlega úr næringunni, að hörguleinkenni, sem annars kynnu og myndu koma í ljós, geri vart við sig. Þýðing örefnanna hefur aðeins sannazt, þegar þau hafa verið leidd i ljós sem liluti eða liðir í vítamínum og enzymum. Vítamín B 12 inniheldur kób- alt, og er það eina sönnun þess, að mannslíkaminn geti ekki án þess verið. Dagskammtur mannslíkamans af B 12 myndi þó ekki innihalda nema 1/5000 úr mgr af kóbalti, og það út af fyrir sig gæti enga þýðingu liaft sem næringarefni. Að zink sé manninum lífs- nauðsynlegt, sannaðist fyrst, þegar það fannst í enzymi, car- hoanhydrase. Sama gildir um joðið. Þýðing þess sannaðist, þegar það fannst bundið lífrænu efni, og þó sérstaklega, þegar í ljós kom, að það myndaði all- mikinn liluta skjaldkirtilsvak- ans. Hins vegar er ekki fundin óyggj andi sönnun þess, að flúor sé manninum lífsnauðsynlegt, þó að vitað sé, að það styrkir tannglerunginn, og er þannig mikilvægt. Um nauðsyn molybdens er enn allt á huldu, og sama gildir um bór, sem bins vegar er sann- að, að plönturnar megi ekki án vera. 1 gamal- eða langræktuðu landi bafa örefnin þorrið smátt og smátt á síðustu áratugum. Og þar sem stöðugt er keppt að þvi að ná sem mestri upp- skeru, liafa þau að sama skapi minnkað í henni. Afleiðing þessa hefur orðið sú, að komið hafa fram sjúkdómar í ýmsum kvik- fénaði — sérstaldega jórturdýr- um. Bakteríur í vömb þeirra þurfa á ýmsum örefnum að halda, svo sem kopar og kóbalti. Meðal manna liefur ekki tekizt að sanna heilsufarsbreytingar vegna skorts á þessum efnum. Joð- og járnskortur hefur aftur á móti svo glögg sjúkdómsein- kenni i för með sér, að ekki þarf um að deila. Strumað hefur breiðzt úl yfir stóra lduta lieims vegna joð- skortsins, en síðan tekizt að draga úr útbreiðslu þess og lækna með því að blanda joði i matarsaltið á þessum svæðum. Sjúkdómar af skorti annarra örefna bafa ekki sannazt, svo að öruggt sé, og sennilega er ekki mikil ástæða til að óttast slíkt i náinni framtíð, því að hjá því verður ekki komizt að bæta j örðinni upp þau efni, sem hún er rænd með því að krefja

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.