Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1972, Page 30

Læknablaðið - 01.06.1972, Page 30
14 LÆKNABLAÐIÐ a) Hamarskaftið losað að mestu, lausi endi þess yddur og settur á fótplötuna. b) Annar stálvírsendinn festur á hamarskaftið, xmdir hljóðhimn- unni, en hinn beygður þannig, að hann hvílir á mestum hluta fót- plötunnar. c) Plastpípa milli hamarskafts og fótplötu. b Loks vil ég geta hér um aðferð, sem þjónar sama tilgangi, og ég hef nefnt „rúllupylsuaðferðina“, en höfundur hennar er Þjóðverjinn Offermann. Stefán Skaftason yfirlæknir nam hana hjá Offermann og kenndi mér. Úr æðarstúf eða bita af vöðvafelli eru búnar til nokkrar örsmáar rúllupylsur. Þær eru lagðar á ístaðsfótplötuna, hver ofan á aðra, þar til sú efsta er í hæð við hljóðhimnuna. Venjulega nægja þrjár eða fjórar. Síðan er hljóðhimnan eða bótin lögð yfir, ef gat er á hljóð- himnu á þessum stað (sjá 15. mynd). Eftir einn eða tvo mánuði er þetta venjulega fullgróið og rúllu- pylsustaflinn orðinn að þéttum streng, sem tengir saman hljóðhimnu og ístaðsfótplötu og ber hljóðbylgjurnar á milli. Þessa aðferð hef ég notað tvívegis. í fyrra skiptið var það hjá miðaldra byggingatæknifræðingi, H. B., sem misst hafði heyrn á öðru eyra fyrir löngu. í hinu eyranu hafði

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.