Læknablaðið - 01.06.1972, Page 31
LÆKNABLAÐIÐ
15
15. mynd:
Aðgerð Offermanns.
Samanvafðir smábitar úr æð eru settir á fótplötuna
hver á annan og hljóðhimnubótin lögð yfir.
grafið árum saman. Nú var það þurrt, en lítið orðið eftir af hljóð-
himnu og heyrnarbeinum. Hann átti í erfiðleikum við störf sín vegna
heyrnardeyfu og hugði á heyrnartæki.
Ég bauðst til að reyna að lagfæra eyrað, og þáði hann það. Bætti
ég hljóðhimnuna og tengdi hana við ístaðsfótplötuna með plastístaði
Mercandinos, sem ég framlengdi.
Eftir þessa aðgerð fékk hann nothæfa heyrn. En rúmu ári áíðar
fór þessi plastútbúnaður að ganga út gegnum hljóðhimnuna.
Ég hafði þá nýlega heyrt um „rúllupylsuaðferðina“ og datt í hug
að nota hana hér. Fjarlægði ég þá plastístaðið og setti rúllupylsur
úr æðabitum í staðinn undir leiðsögn Stefáns Skaftasonar. Þetta gekk
að óskum, og fékk sjúklingurinn aftur nothæfa heyrn (sjá 16. mynd).
125 250 500 1000 2000 4000 8000'
Zq c [ [ t
c 7 < i
Yjf yrh / /< ' / >r
7// 777 ///, 7 / /7
Uy, (// / Á Ý
j) c. y
h & 'Mo
16. mynd:
Línuritið sýnir heymarmælingu
(tónmælingu) fyrir og eftir að-
gerð Offermanns hjá H. B. Heyrn-
arbatinn er táknaður með ská-
strikuðu svæði, og er bað einnig
gert á hinum línuritunum.
Loftheyrn er táknuð með hring-
um á hægra eyra, en krossum á
vinstra og beinheym eða „innri
heyrn“ með homklofum.