Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1972, Síða 44

Læknablaðið - 01.06.1972, Síða 44
LÆKNABLAÐIÐ LEIÐBEININGAR FYRIR GREINAHÖFUNDA 2(5 Fræðilegar greinar í Læknablaðið skulu sendar ritstjórn Lækna- blaðsins, Domus Medica, Reykjavík. Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræð- innar, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða samantekt á annarra reynslu, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Þá eru og birtar styttri athugasemdir og lesendabréf. Greinar skulu uppbyggðar á skýran hátt. Tilgangur greinarinnar skal skýrt tekinn fram í inngangi. Athugunum og rannsóknum höf- undar skal haldið sér í kafla. Oft hæfir að ræða síðan niðurstöður höfundar og bera saman við fyrri þekkingu um sama efni. Að lokum skulu niðurstöður dregnar. Öllum greinum byggðum á eigin reynslu höfundar skal fylgja efniságrip (summary) á ensku. Handrit skulu vera vélrituð, helzt í tveimur eintökum, með breiðri (ca. 5 cm.) spássíu og tvöföldu línubili. Handritið skal vera snyrtilegt og hreint; leiðréttingar skulu vera greinilegar. Þá hluta handrits, sem prenta á með smáletri (petit) (sjúkdómslýsingar, aðgerðir o. fl.) á að skrifa með sama línubili, en merkja greinilega á spássíu. Greinartitill skal vera stuttur, en skýr, og lýsa viðfangsefni grein- arinnar. Stundum er betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðaltitill þá eitt eða fleiri lykilorð, sem nauðsynleg eru til réttrar færslu greinar- innar í spjaldskrá. Undir titil greinarinnar setur svo höfundur nafn sitt og ef til vill nafn stofnunar þeirrar, þar sem að greininni hefur verið unnið. Töflur spara oft langt mál í texta og ætti ekki að nauðsynjalausu að endurtaka í texta þær upplýsingar, sem í töflum standa. Töflur skulu hafðar eins einfaldar og skýrar og unnt er. Hver tafla skal skrifuð sér á blað, og þær skulu tölusettar í þeirri röð, sem um þær er rætt í texta. Töflur mega hafa titil, og þeim skal fylgja stuttur skýringatexti, svo að skilja megi þær án þess að lesa greinartexta. í handriti skal merkt á spássíu, hvar staðsetja á hverja töflu. Myndir skal velja af kostgæfni, og forðast ber að ofhlaða greinar með myndum. Ljósmyndir skulu vera skýrar og verða að þola nauð- synlega smækkun. Línurit og teikningar verða að vera skýrar og snyrtilegar og teiknaðar með tússi á hálfgegnsæjan pappír. Höfimdur verður að yfirvega, hvort línurit eða töflur skýri mál hans betur. Myndir skulu tölusettar í þeirri röð, sem þær eru ræddar í greininni. Ekki skal líma myndirnar á blað, en á bak þeirra skal límdur miði með myndnúmeri og nafni höfundar. Ekki má skrifa á bak myndanna sjálfra. Hverri mynd skal fylgja stuttur skýringatexti. Myndatexta skal skrifa sér á blað. í handrit skal merkja á spássíu, hvar staðsetja á myndir. Myndum, sem ekki eru runnar frá höfundi sjálfum, skal fylgja skýring á uppruna þeirra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.