Læknablaðið - 01.06.1972, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
31
a inddyrI
b ■ f grald* I •
C bIdilofi
d Ijfftur
C ungbarn*vetnd
] s lysevardttof■
I t-knlr
.n búningiklefar
m. hJúkrunarkona
O v sa
p rsdsttng
r fttmuskodun
S stjirnun
t f rsmkðl I un
U rðntgen
V kontrsster
X hrlngsttgl
y vs. sýnltaká
Z rannsóknarstofa
gudm þöt pitsson
arkl takt
í janúar 1970 lágu fyrir teikningar að læknamiðstöð. Verk þetta
var boðið út í marz 1970 og er því nú að fullu lokið.
Með grein þessari fylgja uppdrættir af 1. og 2. hæð suður- og
tengiálmu hússins. Inn á uppdrættina eru settir bókstafir og til skýr-
ingar listi yfir þær einingar, sem merktar eru bókstöfum.
Eins og sjá má, eru tvennar dyr á fyrstu hæð, — aðrar sem aðal-
inngangur í sjúkrahúsið og hinar ætlaðar slysavarðstofu. Þessi inn-
gangur er í krika milli þjónustudeilda í suðurálmu og sjúkradeilda
og eldhúss í austurálmu, Nauðsynlegt er, að sérstakur inngangur sé
í slysavarðstofu, svo að fólk, sem verður fyrir slysum og er flutt
með sjúkrabíl, ónáði ekki þá, sem um aðalinngang fara. Úr slysastofu
(J) er greiður vegur að röntgenstofu (U), — öndvert slysavarðstofu
er rannsóknastofa (Z) með sýnitökusalerni (Y). Úr kjallara og upp
á 3. hæð liggur hringstigi (X). Á hæðinni eru fjórar viðtalsstofur
lækna (L) með búningsklefum (N), og er þannig gengið frá þeim,
að þeir notast einnig sem myrkraherbergi.
Næst aðalinngangi verða lyftur (D) og við aðalinngang er einnig
barnavernd (E).
Á annarri hæð beint yfir barnavernd, næst slysagangi, er að-
staða fyrir einn lækni, og verður þetta húsnæði væntanlega notað
sem skrifstofa yfirlæknis lyflæknisdeildar og á þriðju hæð fyrir yfir-
lækni skurðdeildar.
Við hönnun þessa húsnæðis hefur verið leitazt við að búa svo
um hnútana, að unnt væri að nýta hinar ýmsu einingar á fleiri en
einn máta. Þá er og sá möguleiki fyrir hendi, að unnt er að breyta