Læknablaðið - 01.06.1973, Qupperneq 19
LÆKNABLAÐIÐ
103
Mynd 7.
Ef aortalokan lekur, lokast mitrallokan
hratt í upphafi díastólu, og vinstra forhólf
hefur ekki afl til að opna lokuna aftur, ef
lekinn er mikill. Til hægri er sýnd eðli-
leg hreyfing mitralloku til samanburðax*.
setja gerviloku á mitralstað, eða látið
nægja að stækka lokugatið með hví að
rjúfa samvexti milli lokublaðanna (valvo-
tomi).
Fallhraði lokunnar er oftast mikill hjá
sjúklingum með insufficientia v. mitralis,
einkum ef lokan er ekki mjög þröng. Þetta
stafar af háum þrýstingi í vinstra forhólfi
og hinu aukna blóðmagni, sem um lokuna
fer.
Ef lekinn stafar af því, að chordae
tendineae hafa slitnað, er fallhraðinn oft
meiri en 120 mm/sek og hreyfanleiki lok-
unnar meiri en hjá heilbrigðum.
Aukinn fallhraði sést bó ekki einvörð-
ungu í leka á mitralloku, heldur einnig
við aðra sjúkdóma, svo sem pericarditis
constrictiva og stundum í cardiomyopathia
congestiva. Ef væg stenosis og veruleg
regurgitatio fara saman, lokast fremra
blað lokunnar hratt fyrst, en siðan hægar.
Það er ljóst, að echografi veitir upp-
lýsingar um ástand og starfsemi mitrallok
unnar, sem ekki er unnt að fá með öðrum
aðferðum, að hjartaþræðingu meðtalinni
Stundum getur því þóð klínisk rannsókn
cg echografi gert þræðingu ónauðsynlega.
jafnvel þótt til aðgerðar komi. Þetta er
æskileg þróun, því að hjartaþræðing er
ekki hættulaus aðgerð.
Echografi getur verið gagnleg við grein-
ingu leka á aortaloku.11'21 Ef lekinn er
rnikill, lokast mitrallokan oft snemma í
díastólu og opnast ekki aftur, þó að for-
hólfin dragist saman (mynd 7). Þetta
stafar aí því, að brýstingur í vinstra slegli
verður hærri en í vinstra forhólfi vegna
bakstreymis inn í slegilinn. Fallhraði lok-
unnar er oft aukinn.
Echografi hefur enn fremur varpað ljósi
á hið umdeilda Austin--Flint óhljóð.21 27
Það virðist stafa af blóðstraumi frá aorta,
sem beinist að mitrallokunni og veldur
titringi í fremra lokublaðinu (mynd 8).
Það er vel kunnugt, að sjúklingar með
Austin-Flint óhlióð eru oft ranglega taldir
hafa stenosis valvulae mitralls. I bessu tii-
felli er því echografi mikilvægt hjálpar-
tæki til að rétt sjúkdómsgreining fáist.
Hjá sjúklingum með stenosis v. aortae