Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ
31
TABLE 7
Results of tuberculin tests on children 7-13 years of age in the entire coiuntry
by age and selected five year periods of testó 1931-70.
______________Age (years)______________ Total 7-13 years
eal 7 8 9 10 11 12 13 percentage
Percentage tested of
total population in
the 7-13 year age
percentage positive positive group
1931 21.3 21.0 26.4 33.6 36.5 37.2 46.5 32.4 12.7
1935 15.7 20.9 21.4 23.4 28.6 30.9 34.2 26.1 43.1
1940 7.5 12.6 12.3 15.8 21.6 21.6 21.8 16.1 33.5
1945 5.8 8.2 8.0 8.5 10.8 12.0 16.1 10.1 75.0
1950 5.2 6.4 8.1 9.4 10.0 13.4 18.1 9.5 70.2
1955 3.4 3.9 4.1 5.0 6.0 7.8 8.7 5.3 67.4
1960 1.6 2.3 2.6 2.7 3.3 3.4 4.1 2.8 71.8
1965 0.6 1.2 1.4 1.6 1.9 2.2 2.6 1.7 84.0
1970 0.2 0.4 0.6 0.7 0.7 1.1 1.1 0.7 84.8
tuberkulin hafi verið notað til rannsókn-
anna. Allt þetta gefur rannsóknunum
minna gildi en ella. En metnar með þess-
um fyrirvara gefa þær þó engu að síður
nokkra hugmynd um berklasmitun áður-
greindra héraða. f ritgjörðum sínum gerir
héraðslæknirinn ennfremur gleggri grein
fyrir berklasjúklingafjölda í héruðunum en
hægt hefði verið að hafa úr opinberum
skýrslum. Virðist gangur og útbreiðsla
veikinnar rakin í héruðum þessum nokk-
urn veginn eftir því sem föng voru á.
Heilbrigðisstjórnin stofnaði tvívegis til
sérstakra rannsókna í læknishéruðum þar
sem mikil brögð voru að berklaveiki. Þar
voru framkvæmd berklapróf. (Húsavík
19 3 2,58 Raufarhöfn 193410<J).
Eftir 1930 fjölgar einnig þeim læknum,
sem framkvæma berklapróf í héruðum sin-
um, en sem fyrr ná þessar rannsóknir svo
að segja eingöngu til barna á aldrinum
7-13 ára. Flestir læknanna munu ávallt
hafa notað Pirquets-cutan-próf, en eigi
percutan eða intracutan-próf. Árið 1935
sendi heilbrigðisstjórnin (berklayfirlækn-
ir) í fyrsta sinn öllum héraðslæknum
sams konar tuberkulin til rannsóknanna
ásamt glöggum fyrirmælum um hvernig
þær skyldu framkvæmdar. Hafa þeir síðan
einu sinni á hverju ári fengið tuberkulin
á þennan hátt, ef það hefur verið fáanlegt.
Tuberkulinið, sem notað var á árunum
1935-40 var tuberkulináburður frá Serum-
stofnuninni í Kaupmannahöfn til húðprófs
(percutanprófs ad. mod. Moro) og fyrir-
mælum þeirrar stofnunar um notkun
áburðarins, svo og hvernig dæma bæri
rannsóknina fylgt sem nákvæmast. f fjölda
vafatilfella mun rannsóknin hafa verið end-
urtekin, sumpart með sams konar prófi
eða cutanprófi (Pirquetsprófi). Eftir 1940
var einnig notað percutanpróf (hefti-
plástursaðferð ad mod. Volmer), þar eð
hið fyrra efni var þá ófáanlegt sökum
ófriðarins.
Á töflu 7 og mynd 15 sést árangur þessa
berklaprófs á börnum á aldursskeiðinu 7-13
ára með fimm ára bilum á 40 ára tímabil-
inu 1931-70 og nær það til alls landsins.
Er ljóst að þessar rannsóknir verða æ tíð-
ari eftir 1930 og ná þegar til um 13% barna
í þessum aldursflokkum á árinu 1931. Árið
1935 taka þær mikið stökk við hvatningu
berklayfirlæknis og ná þá til yfir 40%
barna í hinum greindu aldursflokkum. Auk
þess verður árangur rannsóknanna eftir
þetta mun öruggari, þar sem nú er notað
sama efni cg sama aðferð við framkvæmd
prófanna um allt landið. Ennfremur senda
nú 36 af 49 læknishéruðum landlækni
árangur berklaprófanna á þar til gerðum
eyðublöðum, svo að fullt samræmi fékkst
einnig á mati prófanna. Á næstu árum
náðu rannsóknir þessar til meira en helm-
ings barnanna í hinum greindu aldurs-
flokkum (árin 1938 og 1939), en lækka
strax árið 1940, er samgöngur stöðvast við
Danmörku vegna ófriðarins og eru það ár