Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 39
PER 10,000 POPUIATION
LÆKNABLAÐIÐ
19
MORBIDITY RATE, NEW CASES AND RELAPSES PER 10,000 POPULATION
ICELAND, 1939-1970
1940 1945 1950 1955 1960 1965 1970
Fig. 8.
haldið honum þar, enda þótt langt væri
liðið frá því, er hann var seinast undir
læknishendi. Hefur þessi óvissa læknanna
um hið raunverulega ástand nokkurs
hluta sjúklinganna tvímælalaust orðið til
þess að hækka tölu hinna skráðu veru-
lega.
Tafla 2 svo og myndir 8, 9 og 10 gefa
glögga mynd af skráningu berklaveikra
á tímabilinu 1941-70. Skráningin fer þar
í aðalatriðum fram samkvæmt reglum
þeim, er settar voru árið 1939, og er með
henni fylgst af berklayfirlækni og starfs-
liði hans. Hinn hraðlækkandi fjöldi ný-
skráðra og sjúklinga í heild vekur strax
athygli og er einkum áberandi eftir 1950,
er hin sérhæfða lyfjameðferð kemur til
sögunnar. Einstök ár svo sem 1942, 1946
og 1947, sem öll sýna hækkun nýskráðra
frá árunum næst á undan, verða tæplega
skýrð með öruggri vissu. Áhrif styrjaldar-
innar árið 1942 með mjög aukinni vinnu
og oft verri aðbúnaði, einkum matarvenj-
um (skrínukostur) en áður tíðkaðist, eink-
um meðal karla, geta þó ef til vill hafa
haft nokkur áhrif.78 Árið 1946 gengu far-
sóttir svo sem inflúensa, ltíkhósti og mænu-
sótt og 1947 mislingar, og eru sumar þess-
ara farsótta alkunnar að því að verka
þannig á nýsmitaða berklasjúklinga, að
sjúkdómurinn blossi upp og smitun breið-
ist út. Annars er aukning nýskráðra á
þessum árum ekki meiri en svo, að til-
viljun getur hér ein ráðið, og verður því
ekkert fullyrt um áhrif nefndra sjúkdóma
í þá átt að auka á tíðni hinna skráðu
berklasjúklinga á þessum árum.
Á þessu 30 ára bili fer tíðni sjúkdóms-
ins samkvæmt skráningunni jafnt og hratt
lækkandi í landinu og er í lok þessa tíma-