Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ
5
sem fleiri sjúklingar fengu nú betri og
meiri rannsókn. Telja má því víst, að mynd
sú, sem læknar gefa af heilsufari lands-
manna í skýrslum sínum um aldamótin
síðustu sé að þessu leyti sem næst hinu
sanna.
Á fimm ára tímabilinu 1896-1900 voru
á öllu landinu taldir skráðir frá 167-266
berklasjúklingar árlega, en á fyrsta tug
tuttugstu aldarinnar, 1901-10, voru skráðir
frá 204-459 berklasjúklingar ár hvert. Ekki
fengust skráningarskýrslur úr öllum héruð-
um.-° 27
Vegna hinnar hraðvaxandi aukningar
berklaveikinnar var héraðslæknirinn í
Reykjavík, Guðmundur Björnsson, feng-
inn árið 1898 til þess að þýða ritgerð úr
dönsku, sem bar nafnið „Um berklasótt“.9
Var hún gefin út af landssjóði og útbýtt
meðal almennings til að vekja athygli hans
á sjúkdómnum. Fáum árum síðar (árið
1902) fól Alþingi landsstjórninni að láta
semja og gefa út „alþýðurit um berkla-
veiki og varnir gegn henni“. Var sami
læknir fenginn til þess. Þýddi hann kver
um þetta efni, sem kom út í tveimur út-
gáfum árin 1903 og 1904.02
Um gang berklaveikinnar á íslandi fram
til ársins 1911, er dánarvottorð voru lög-
leidd,132 virðist mega álykta eftirfarandi:
Það má telja fullvíst, að berklaveiki hafi
verið hér á landi þegar á landnámsöld.
Um útbreiðslu veikinnar þá og fram á
miðja 17. öld er þó ekkert vitað með vissu.
Úr því verður vart einstakra sjúkdóms-
tilfella og dánarlýsinga, sem benda í þá
átt, að sjúkdómurinn hafi stöðugt verið
til meðal þjóðarinnar og víst má telja að
svo hafi verið eftir 1760. Fram yfir miðja
19. öld virðist hann hafa náð mjög lítilli
útbreiðslu og gengið hægt yfir, enda þótt
gera verði ráð fyrir, að hann hafi verið
mun útbreiddari en í skýrslum segir og
læknar greina frá. Á síðustu tveimur tug-
um 19. aldarinnar virðist veikin grípa
um sig og aukast jafnt og þétt út þetta
tímabil.
Fyrsta löggjöf, sem einvörðungu varðar
berklaveiki, var sett árið 190313° og tók
gildi í byrjun næsta árs. Merkilegasta
ákvæði laganna var án efa, að læknum
bæri skylda til að skrá alla berklasjúkl-
inga, er leituðu þeirra, svo að ákveða mætti
fjölda berklasjúklinganna og þar með út-
breiðslu sjúkdómsins í landinu. Næstu ár
sýndu, eins og þegar hefur verið getið,
sífellda aukningu skráðra sjúklinga og
einnig dauðsfalla af völdum berklaveiki.
Vegna þessarar ískyggilegu aukningar var
árið 1906 stofnað félag, sem bar nafnið
Heilsuhælisfélagið. Aðalhvatamaður félags-
stofnunarinnar var Guðmundur Björnsson,
þá nýskipaður landlæknir, og nokkrir fé-
lagar hans úr Oddfellowstúkunni Ingólfi i
Reykjavík.27 05 Tilgangur félagsins var að
koma hið fyrsta á fót nýtísku heilsuhæli
fyrir berklaveika. Félagið, sem að öllu
leyti líktist sams konar félögum, sem stofn-
uð höfðu verið í sama tilgangi meðal ná-
grannaþjóðanna, náði þegar fullum stuðn-
ingi þjóðarinnar allrar. Samskot voru haf-
in um land allt og fé safnað til hælis-
byggingar. Þannig var Vífilsstaðaheilsu-
hæli komið upp, en þar voru í fyrstu rúm
fyrir 80 sjúklinga, og tók það til starfa
í septembermánuði 1910.90 Stofnun þessi
varð stærsta berklahæli landsins og veitti
á árunum 1940-50 meir en 200 sjúklingum
sjúkrarúm og meðferð, enda þá miklu
meira en fullsetið.73
Til þess að geta sem nákvæmast metið
rétt tíðni, útbreiðslu og gang sjúkdómsins
í ákveðnum héruðum landsins eða því
öllu eru eftirfarandi gögn talin vera nauð-
synleg:101
1. Nákvæm skráning allra þekktra
sjúklinga með virka berklaveiki.
Þetta er mikill, en þó engan veg-
inn öruggur mælikvarði á tíðni og
útbreiðslu sjúkdómsins.
2. Dánarvottorð gefa til kynna fjölda
dauðsfalla úr ákveðnum sjúkdóm-
um. Fjöldi dauðsfallanna gefur eigi
aðeins upplýsingar um útbreiðslu
sjúkdómsins, heldur er hann ásamt
sjúklingafjöldanum einnig mæli-
kvarði á, hver gangur sjúkdóms-
ins er, góðkynja eða illkynja, og
um árangur meðferðar hans.
3. Mjög mikilsvert er, að líkskurður
fari fram á sem flestum látnum.
Rannsóknir við líkskurð gefa ör-
uggasta vitneskju um berklasmit-
un, berklasýkingu og berkladauða
og eru því nauðsynlegar, til þess