Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 13

Læknablaðið - 01.02.1976, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ 5 sem fleiri sjúklingar fengu nú betri og meiri rannsókn. Telja má því víst, að mynd sú, sem læknar gefa af heilsufari lands- manna í skýrslum sínum um aldamótin síðustu sé að þessu leyti sem næst hinu sanna. Á fimm ára tímabilinu 1896-1900 voru á öllu landinu taldir skráðir frá 167-266 berklasjúklingar árlega, en á fyrsta tug tuttugstu aldarinnar, 1901-10, voru skráðir frá 204-459 berklasjúklingar ár hvert. Ekki fengust skráningarskýrslur úr öllum héruð- um.-° 27 Vegna hinnar hraðvaxandi aukningar berklaveikinnar var héraðslæknirinn í Reykjavík, Guðmundur Björnsson, feng- inn árið 1898 til þess að þýða ritgerð úr dönsku, sem bar nafnið „Um berklasótt“.9 Var hún gefin út af landssjóði og útbýtt meðal almennings til að vekja athygli hans á sjúkdómnum. Fáum árum síðar (árið 1902) fól Alþingi landsstjórninni að láta semja og gefa út „alþýðurit um berkla- veiki og varnir gegn henni“. Var sami læknir fenginn til þess. Þýddi hann kver um þetta efni, sem kom út í tveimur út- gáfum árin 1903 og 1904.02 Um gang berklaveikinnar á íslandi fram til ársins 1911, er dánarvottorð voru lög- leidd,132 virðist mega álykta eftirfarandi: Það má telja fullvíst, að berklaveiki hafi verið hér á landi þegar á landnámsöld. Um útbreiðslu veikinnar þá og fram á miðja 17. öld er þó ekkert vitað með vissu. Úr því verður vart einstakra sjúkdóms- tilfella og dánarlýsinga, sem benda í þá átt, að sjúkdómurinn hafi stöðugt verið til meðal þjóðarinnar og víst má telja að svo hafi verið eftir 1760. Fram yfir miðja 19. öld virðist hann hafa náð mjög lítilli útbreiðslu og gengið hægt yfir, enda þótt gera verði ráð fyrir, að hann hafi verið mun útbreiddari en í skýrslum segir og læknar greina frá. Á síðustu tveimur tug- um 19. aldarinnar virðist veikin grípa um sig og aukast jafnt og þétt út þetta tímabil. Fyrsta löggjöf, sem einvörðungu varðar berklaveiki, var sett árið 190313° og tók gildi í byrjun næsta árs. Merkilegasta ákvæði laganna var án efa, að læknum bæri skylda til að skrá alla berklasjúkl- inga, er leituðu þeirra, svo að ákveða mætti fjölda berklasjúklinganna og þar með út- breiðslu sjúkdómsins í landinu. Næstu ár sýndu, eins og þegar hefur verið getið, sífellda aukningu skráðra sjúklinga og einnig dauðsfalla af völdum berklaveiki. Vegna þessarar ískyggilegu aukningar var árið 1906 stofnað félag, sem bar nafnið Heilsuhælisfélagið. Aðalhvatamaður félags- stofnunarinnar var Guðmundur Björnsson, þá nýskipaður landlæknir, og nokkrir fé- lagar hans úr Oddfellowstúkunni Ingólfi i Reykjavík.27 05 Tilgangur félagsins var að koma hið fyrsta á fót nýtísku heilsuhæli fyrir berklaveika. Félagið, sem að öllu leyti líktist sams konar félögum, sem stofn- uð höfðu verið í sama tilgangi meðal ná- grannaþjóðanna, náði þegar fullum stuðn- ingi þjóðarinnar allrar. Samskot voru haf- in um land allt og fé safnað til hælis- byggingar. Þannig var Vífilsstaðaheilsu- hæli komið upp, en þar voru í fyrstu rúm fyrir 80 sjúklinga, og tók það til starfa í septembermánuði 1910.90 Stofnun þessi varð stærsta berklahæli landsins og veitti á árunum 1940-50 meir en 200 sjúklingum sjúkrarúm og meðferð, enda þá miklu meira en fullsetið.73 Til þess að geta sem nákvæmast metið rétt tíðni, útbreiðslu og gang sjúkdómsins í ákveðnum héruðum landsins eða því öllu eru eftirfarandi gögn talin vera nauð- synleg:101 1. Nákvæm skráning allra þekktra sjúklinga með virka berklaveiki. Þetta er mikill, en þó engan veg- inn öruggur mælikvarði á tíðni og útbreiðslu sjúkdómsins. 2. Dánarvottorð gefa til kynna fjölda dauðsfalla úr ákveðnum sjúkdóm- um. Fjöldi dauðsfallanna gefur eigi aðeins upplýsingar um útbreiðslu sjúkdómsins, heldur er hann ásamt sjúklingafjöldanum einnig mæli- kvarði á, hver gangur sjúkdóms- ins er, góðkynja eða illkynja, og um árangur meðferðar hans. 3. Mjög mikilsvert er, að líkskurður fari fram á sem flestum látnum. Rannsóknir við líkskurð gefa ör- uggasta vitneskju um berklasmit- un, berklasýkingu og berkladauða og eru því nauðsynlegar, til þess
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.