Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 50
30 LÆKNABLAÐlÐ úr Garðahverfi 10-13 ára og voru 5 þeirra jákvæð eða 35,7%. Árið 1919 framkvæmdi héraðslæknirinn á Akureyri Pirquetspróf á 148 bömum á aldrinum 8-14 ár í bamaskólanum þar. Taldi hann 65,5% jákvæð.124 Árið eftir Pirquetspróf á börnum í barnaskólum í Akureyrarlæknishéraði utan Akureyrar, aldur 9-14 ár, alls 208. 20,0% þeirra talin jákvæð.125 Er hér eingöngu um sveitabörn að ræða enda rúmlega þrefalt færri smituð þar en í Akureyrarkaupstað. Árið 1920 var gert Pirquetspróf á skólabörnum á ísafirði, aldur 10-14, alls 169 að tölu. 40,5% voru talin jÉLkvæð.145 Sama ár er gert Pirquetspróf á 207 börnum í Síðuhéraði, aldur 1-14, og voru 36,2% talin jákvæð.122 Eru hér áberandi mörg börn jákvæð, þeg- ar tillit er tekið til þess, að börn frá 1 árs aldri eru meðtalin og einnig að berkla- dauði og fjöldi skráðra berklasjúklinga I þessu héraði er lítill á þessu tímabili. Á árunum 1921-25 er getið berklaprófs (Pirquetsprófs) á skólabörnum í 7 læknis- héruðum. Er hundraðstala jákvæðra svip- uð því sem áður hefur verið greint. Árið 1922 eru berklarannsóknir í Dala- héraði langmerkastar.1 Var þar gert Pirquetspróf á langflestum börnum héraðs- ins á aldrinum 0-14 ára, eða alls 284 börn- um. í ljós kom að mikill munur var á smituninni í hinum fimm hreppum læknis- héraðsins. í Saurbæjarhreppi, sem er lítill hreppur og fremur einangraður, voru 27 % barnanna smituð, en i hinum fjórum var meðaltal jákvæðra 8,1%. Skráðir berkla- sjúklingar voru líka langflestir í Saur- bæjarhreppi eða 23 á 8 ára bilinu 1915-22. Á sama tíma var skráður sjúklingafjöldi allra hinna fjögurra hreppa héraðsins 32, en í þeim var íbúafjöldinn nær sexfalt fleiri. Af þessu dregur héraðslæknirinn þá ályktun, að berklasmitunin verði aðallega á berklaheimilum, sem séu gróðrarstíur og útbreiðslustöðvar sjúkdómsins, en hann fari yfirleitt hægt yfir, komi á tiltölulega fáa nýja bæi í hverri sveit á alllöngu árabili. Árið 1928 er gert Pirquetspróf á 304 skólabörnum í Vestmannaeyjum. Reyndust 55 beirra eða 18% jákvæð.28 Árið 1930 framkvæmdi héraðslæknirinn í Berufjarðarhéraði berklapróf (Pirquets- próf) á 677 manns af 866 íbúum héraðsins eða 78,2% íbúanna.2 Prófið framkvæmdi hann mð húðrispu í dropa af óþynntu tuberkulini. Skoðað var eftir 24 til 48 klst. eftir ástæðum. Jákvæð svörun var það talið, þegar fram kom roði og þroti, rautt þykkildi í og út frá rispunni, en neikvæð, þegar algerlega var laust við al'lan roða og þrota, bæði í rispunni sjálfri og í kring. Ef árangur prófsins var eigi greinilegur var útkoman talin vafasöm. Læknishérað þetta er fremur lítið og dreifbýlt sveitahérað. Samkvæmt rann- sókninni er nokkur mismunur á berkla- smitun hinna ýmsu hluta héraðsins, þó er þessi munur eigi verulegur og minnst áberandi meðal hinna yngstu aldursflokka. Hjá fólki yfir 14 ára aldur er smitunin minnst í Beruneshreppi, 32 % karla já- kvæðir og 37% kvenna, en mest í Geit- hellnahreppi. Þar eru 57% karla og 69% kvenna yfir 14 ára aldur jákvætt. Yfir- leitt er smitunin útbreiddari meðal kvenna en karla. Héraðslæknirinn kemst að þeirri niður- stöðu, að í héraðinu séu tiltölulega fáir smitaðir eða um 36% þeirra, er rann- sóknin tók til, enda nær smitun fullorðinna tæplega 60% í neinum aldursflokki. Enn- fremur, að smitun barna sé ekki algeng, ca. 14%, en því algengari meðal full- orðinna. Smitunina rekur hann langoftast til berklaheimila, en eigi gesta eða mann- funda. Dregur hann þá ályktun, af þessari og áðurgreindri rannsókn í Dalahéraði, ,,að íslenzka þjóðin hafi verið að smitast af berklaveiki undanfarna áratugi og sé enn að smitast."1 2 Þessar rannsóknir Árna Árnasonar hér- aðslæknis í Dalahéraði 1922 og í Beru- fjarðarhéraði 1930, eru nær eiria víðtæka tilraunin, sem gerð var hér á landi fram til ársins 1930 til þess að komast að, hve útbreidd berklasmitun var meðal þjóðar- innar. Því miður vantar mikið á, að rann- sóknir þessar geti talizt hafa fullt gildi. Er aðsins beitt cutan (Pirquets) aðferð við berklaprófið, og næst því eigi nema nokk- ur hluti hinna jákvæðu. Ennfremur hefur árangur berklaprófsins í mörgum tilfellum verið dæmdur of snemma (eftir 24 klst. í stað 72). Þá eru eigi greinileg mörk sett, hvað talið sé jákvæð og neikvæð svörun (mælt í mm) og ekki getið, hvers konar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.