Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 54
MORO-PRÓF (percutan próf)
Moro-próf er gert á börnum til 12-13 ára aldurs. Við framkvæmd prófsins
er notaður túberkúílínáburður Moro og heftiplástur. Klipptir eru niður tveir
lappar ca. 2V2 X cm að stærð og setit örlítið af áburði á annan þeirra, sem
síðan er komið fyrir vinstra megin á brjósti barnsins. Hægra megin er settur
samanburðarplástur án áburðar (mynd A 1 og 2).
Plástrarnir eru teknir burtu eftir IV2 sólarhring, en dæma skal prófið að
3 sólarhringum liðnum. Reynist prófið jákvætt, sést allt frá roðahellu (mynd
A 3) og einstaka sinnum blöð'rum1 niður í nokkrar smábólur, þar sem áburður-
inn var settur. Til þess að prófið teljist jákvætt, þurfa að sjást minnst 3 bólur.
Roðni undan báðum plástrunum, bendir það til ofnæmis fyrir þeim, og er
þá rétt að gera mantoux-próf, og eins ef útkoma er svo lítil, að erfitt sé að dæma
um, hvort hún eigi að teijast jákvæð eða ekki.
MANTOUX-PRÓF (intracutan próf)
Prófið er no-tað við þá, sem eru eldri en 12 ára, og er túberkúlínið í tveim
styrkleikum, þ. e. 1 T. U. (1 eining) í 0.1 ml, sem svarar til 1/50000 úr mg af
túberkúlíni (hreinsað túberkúlín), og 10 T. U. (10 einingar) í 0.1 ml, sem svarar
til 1/5000 úr mg.
Oftast er nægilegt að nota veikari styrkleikann, en einstaka sinnum er þó
nauðsynlegt að grípa til 10 T. U., ef ekki fæst jákvæð svörun, Á þetta einkum
við um gamalt fólk og þá, sem bólusettir hafa verið gegn berklaveiki, en nokkur
hluti þeirra sýnir fyrst jákvæða svörun, sé sá styrkleiki notaðúr.
Nauðsynlegt er að nota sérstakar mantoux-sprautur og (einnota) intracutan
nálar.
Mantoux-prófið er gert á vinstri framhandlegg, innanvert og rétt neðan
olnbogabótar. Efninu er sprautað í húðina (intracutant), Vw úr ml, og á þá að
myndast blaðra, 6—8 mm að stærð, sé prófið gert á réttan hátt, þ. e. ekki
stungið of djúp-t og þess gætt, að ekkert leki með nálinni (mynd B 1).
Prófið er athugað eftir 3 sólarhringa. Reynist það jákvætt, sést roði og
bólga á stungustaðnum, serrt mæld er á eftirfarandi hátt:
1. Roði án þrota: neikvæð svörun.
2. Þvermál þrota í mm, og verður hann að mælast minnst 8 mm, til þess að
prófið teljist jákvætt (mynd B 3).
Þroti minni en 6 mm: Neikvæð svörun (mynd B 2). Þroti 6-8 mm: Vafasöm
svörun. Prófið endurtakist með 10 T.U., ef til er.
Athugasemd. Fundizt hefur á seinni árum fjöldi sýkla (mycobacteria), sem
eru svo skyldir berklasýklum, að þeir geta stundum valdið jákvæðu berkla-
prófi. í flestum tilfellum eru sýklar þessir óskaðlegir mönnum. Hér á landi
hefur á undanförnum áratug öðru hverju orðið vart við jákvæð berklapróf, sem
ástæða er til að ætla, að séu þannig til komin.
Oftast er þó svörun lí-til og fremur endingarstutt, þ. e. sé viðkomandi endur-
prófaður að nokkrum árum liðnum, reynist hann oftas-t algjörlega neikvæður.
Framleidd hafa verið efni úr þessum sýklum á sama hátt og í sama styrkleika
og túberkúlín, og nefnast þau sensitin til aðgreiningar frá venjulegu túberkúlíni.
Sé prófað samtímis með túberkúlíni og sensitini fæst oft sterkari svörun
með því síðarnefnda, sé smitunin af slíkum uppruna.