Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 29
LÆKNABLAÐIÐ
13
og er lögreglustjóra þá heimilt að annast
flutning sjúklingsins þangað á kostnað
hans. Slíkan sjúkling má eigi útskrifa frá
sjúkrahúsinu, nema læknir sjúkrahússins
og héraðslæknir votti fyrir hlutaðeigandi
lögreglustjóra, að af honum stafi engin
smithætta lengur eða full ástæða sé til
að ætla, að hann muni gæta allrar varúðar
og fylgja öllum settum reglum“. Gat lög-
reglustjóri þá fellt niður fyrri úrskurð.
Þetta ákvæði laganna var notað nokkrum
sinnum, einkum þegar í hlut áttu óreglu-
samir, berklaveikir sjúklingar.
Ýmis önnur ákvæði, er voru sérstaklega
mikilsverð fyrir framkvæmd berklavarn-
anna voru tekin upp í lögin við endur-
skoðun þeirra. Hafa mörg þessara ákvæða
komið að miklu gagni svo sem tímabundn-
ar rannsóknir á starfsfólki í ákveðnum at-
vinnugreinum.
Eins og áður greinir var strax árið 1935
ákveðið, að berklasjúklingar skyldu að-
eins vistaðir á sjúkrahúsum og hælum sam-
kvæmt beiðni berklavarnastöðva eða
berklayfirlæknis (mynd 1). Ákvörðun
þessi var nauðsynleg, þar sem sjúkrarúm
fyrir berklaveika voru þá af skornum
skammti og ráðstöfun þeirra varð að koma
að sem mestum notum fyrir þá sjúklinga,
er voru í mestri þörf. Nýttust sjúkrarúmin
á þennan hátt mun betur en ella.
Árið 1939, þegar starfslið berklavarn-
anna fékkst verulega aukið, fjölgaði mjög
þeim, sem voru berklarannsakaðir. Það ár
voru alls um 11 þúsund manns rannsak-
aðir, eða rúm 9% þjóðarinnar. Um 2800
manns voru rannsakaðir í 20 héruðum
landsins með ferðaröntgentækjum einum
og 3,5% þeirra, eða tæplega 100 manns,
reyndust með virka berklaveiki.29
Árið 1940 tóku rannsóknirnar til nálega
helmings allra læknishéraða landsins, og
voru þá alls 18657 manns eða 15,2% lands-
manna rannsakaðir. Það ár voru heildar-
rannsóknir í héruðum hafnar, þ. e. allir
íbúar, sem til náðist, voru rannsakaðir, og
fóru þær fram í 4 læknishéruðum, Kefla-
víkur, Svarfdæla, Ólafsfjarðar og Bolung-
arvíkur, en einstök svæði voru rannsökuð
í öðrum (Saurbæjarhreppur í Eyjafirði).30
Rúmlega 8 þúsund manns voru þetta ár
rannsakaðir með ferðaröntgentækjum í 16
héruðum landsins. Rannsóknin í Keflavík-
urhéraði tók alls til' 3349 manns. 7 sjúkl-
ingar fundust áður óþekktir.101
Næsta ár var heildarrannsókn gerð
í þremur héruðum, Hafnarfirði, Húsavík
og Vík í Mýrdal.31101 í Hafnarfirði tók
rannsóknin til 3644 manns eða allra, er
talið var að gætu komið. 9 áður óþekktir
sjúklingar fundust.
Árið 1942 var heildarrannsókn fram-
kvæmd aðeins í einu læknishéraði, Reyðar-
fjarðarhéraði (í Eskifjarðarkauptúni), og
árið 1943 var endurtekin heildarrannsókn i
Keflavík. Hóprannsóknir voru aftur á móti
framkvæmdar í mörgum héruðum á þess-
um árum. Árið 1944 var heildarrannsókn
gerð á Akranesi (tók hún til 1960
manns eða allra, sem taldir voru geta
komið), í Bolungarvík (í annað sinn)
og í Hornafjarðarhéraði. Árið 1942
hafði aðstoðarlæknir berklayfirlæknis, Ól-
afur Geirsson, ráðist í aðstoðarlæknisstöðu
á Vífilsstaðahæli, og dró það því eðlilega
úr heildarrannsóknum í héruðum það ár
og næstu, enda þótt aðrir læknar gegndu
því starfi að hálfu. En árið 1945 réðst
ungur læknir, Jón Eiríksson, sem unnið
hafði lengi erlendis að berklarannsóknum,
í þessa stöðu, og hefur hann stöðugt gegnt
henni fram á þetta ár, 1975.
Það ár (1945) var heildarrannsókn gerð
á íbúum Reykjavíkur, en íbúafjöldinn var
þá um 45800 manns. 98,15% íbúanna voru
rannsakaðir með tuberkulinprófi og rönt-
gen, en 1,1%, einkum gamalmenni, voru
skoðaðir í heimahúsum án röntgenrann-
sóknar (hlustun og hrákarannsóknir). Tók
rannsóknin til 44117 manns eða 99,32%
íbúanna. Aðrir, eða 0,68%, voru fjarver-
andi eða burtfluttir, meðan á rannsókn-
inni stóð. Við rannsóknina fannst 71 sjúkl-
ingur með virka berklaveiki. Þeir voru
allir óþekktir áður.101110 111112 113 Það ár
voru 40,8% allrar þjóðarinnar berklarann-
sökuð (53371 manns).
Árið 1948 fengust keypt til landsins
röntgenskyggnimyndatæki,72 myndastærð
70 mm, sem einnig var hæigt að nota sem
ferðatæki. Áður höfðu allar röntgenrann-
sóknirnar við heildar- og hóprannsóknir
utan Reykjavíkur verið gerðar með gegn-
lýsingartækjum og röntgenmyndaðir þeir
einstaklingar, sem ástæða þótti til. Með
hinum nýju skyggnimyndatækjum var