Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.02.1976, Side 29

Læknablaðið - 01.02.1976, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ 13 og er lögreglustjóra þá heimilt að annast flutning sjúklingsins þangað á kostnað hans. Slíkan sjúkling má eigi útskrifa frá sjúkrahúsinu, nema læknir sjúkrahússins og héraðslæknir votti fyrir hlutaðeigandi lögreglustjóra, að af honum stafi engin smithætta lengur eða full ástæða sé til að ætla, að hann muni gæta allrar varúðar og fylgja öllum settum reglum“. Gat lög- reglustjóri þá fellt niður fyrri úrskurð. Þetta ákvæði laganna var notað nokkrum sinnum, einkum þegar í hlut áttu óreglu- samir, berklaveikir sjúklingar. Ýmis önnur ákvæði, er voru sérstaklega mikilsverð fyrir framkvæmd berklavarn- anna voru tekin upp í lögin við endur- skoðun þeirra. Hafa mörg þessara ákvæða komið að miklu gagni svo sem tímabundn- ar rannsóknir á starfsfólki í ákveðnum at- vinnugreinum. Eins og áður greinir var strax árið 1935 ákveðið, að berklasjúklingar skyldu að- eins vistaðir á sjúkrahúsum og hælum sam- kvæmt beiðni berklavarnastöðva eða berklayfirlæknis (mynd 1). Ákvörðun þessi var nauðsynleg, þar sem sjúkrarúm fyrir berklaveika voru þá af skornum skammti og ráðstöfun þeirra varð að koma að sem mestum notum fyrir þá sjúklinga, er voru í mestri þörf. Nýttust sjúkrarúmin á þennan hátt mun betur en ella. Árið 1939, þegar starfslið berklavarn- anna fékkst verulega aukið, fjölgaði mjög þeim, sem voru berklarannsakaðir. Það ár voru alls um 11 þúsund manns rannsak- aðir, eða rúm 9% þjóðarinnar. Um 2800 manns voru rannsakaðir í 20 héruðum landsins með ferðaröntgentækjum einum og 3,5% þeirra, eða tæplega 100 manns, reyndust með virka berklaveiki.29 Árið 1940 tóku rannsóknirnar til nálega helmings allra læknishéraða landsins, og voru þá alls 18657 manns eða 15,2% lands- manna rannsakaðir. Það ár voru heildar- rannsóknir í héruðum hafnar, þ. e. allir íbúar, sem til náðist, voru rannsakaðir, og fóru þær fram í 4 læknishéruðum, Kefla- víkur, Svarfdæla, Ólafsfjarðar og Bolung- arvíkur, en einstök svæði voru rannsökuð í öðrum (Saurbæjarhreppur í Eyjafirði).30 Rúmlega 8 þúsund manns voru þetta ár rannsakaðir með ferðaröntgentækjum í 16 héruðum landsins. Rannsóknin í Keflavík- urhéraði tók alls til' 3349 manns. 7 sjúkl- ingar fundust áður óþekktir.101 Næsta ár var heildarrannsókn gerð í þremur héruðum, Hafnarfirði, Húsavík og Vík í Mýrdal.31101 í Hafnarfirði tók rannsóknin til 3644 manns eða allra, er talið var að gætu komið. 9 áður óþekktir sjúklingar fundust. Árið 1942 var heildarrannsókn fram- kvæmd aðeins í einu læknishéraði, Reyðar- fjarðarhéraði (í Eskifjarðarkauptúni), og árið 1943 var endurtekin heildarrannsókn i Keflavík. Hóprannsóknir voru aftur á móti framkvæmdar í mörgum héruðum á þess- um árum. Árið 1944 var heildarrannsókn gerð á Akranesi (tók hún til 1960 manns eða allra, sem taldir voru geta komið), í Bolungarvík (í annað sinn) og í Hornafjarðarhéraði. Árið 1942 hafði aðstoðarlæknir berklayfirlæknis, Ól- afur Geirsson, ráðist í aðstoðarlæknisstöðu á Vífilsstaðahæli, og dró það því eðlilega úr heildarrannsóknum í héruðum það ár og næstu, enda þótt aðrir læknar gegndu því starfi að hálfu. En árið 1945 réðst ungur læknir, Jón Eiríksson, sem unnið hafði lengi erlendis að berklarannsóknum, í þessa stöðu, og hefur hann stöðugt gegnt henni fram á þetta ár, 1975. Það ár (1945) var heildarrannsókn gerð á íbúum Reykjavíkur, en íbúafjöldinn var þá um 45800 manns. 98,15% íbúanna voru rannsakaðir með tuberkulinprófi og rönt- gen, en 1,1%, einkum gamalmenni, voru skoðaðir í heimahúsum án röntgenrann- sóknar (hlustun og hrákarannsóknir). Tók rannsóknin til 44117 manns eða 99,32% íbúanna. Aðrir, eða 0,68%, voru fjarver- andi eða burtfluttir, meðan á rannsókn- inni stóð. Við rannsóknina fannst 71 sjúkl- ingur með virka berklaveiki. Þeir voru allir óþekktir áður.101110 111112 113 Það ár voru 40,8% allrar þjóðarinnar berklarann- sökuð (53371 manns). Árið 1948 fengust keypt til landsins röntgenskyggnimyndatæki,72 myndastærð 70 mm, sem einnig var hæigt að nota sem ferðatæki. Áður höfðu allar röntgenrann- sóknirnar við heildar- og hóprannsóknir utan Reykjavíkur verið gerðar með gegn- lýsingartækjum og röntgenmyndaðir þeir einstaklingar, sem ástæða þótti til. Með hinum nýju skyggnimyndatækjum var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.