Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 28
12
LÆKNABLAÐIÐ
Fig. 6. — The x-ray unit being carried on horseback over the Skeiðará glacier in July
1944. In the background the outlet of river Skeiðará.
ár frá ári og fleiri heildarrannsóknir voru
gerðar.
Til þess að auðvelda þessar rannsóknir
og gera þær ennþá áhrifaríkari hafði
berklayfirlæknir árin áður, 1937-38 fram-
kvæmt gagngerða endurskoðun berkla-
varnalaganna og var uppkast að frum-
varpi sent heilbrigðisstjórn snemma árs
1939. Var frumvarpið samþykkt á Alþingi
sama ár.13B Voru þar sett inn sérstök
ákvæði um rannsóknir á fólki, sem sér-
stök ástæða var talin til að ætla, að gæti
verið haldið berklaveiki. Því hljóðar 6.
gr. laganna þannig: „Hafi læknir ástæðu
til að ætla, að sjúklingur sé haldinn berkla-
veiki, skal hann svo fljótt sem auðið er
gera ráðstafanir til þess að fá úr því skor-
ið, hvort um berklaveiki sé að ræða og
tilkynna það tafarlaust héraðslækní
(heilsuverndarstöð)“. Og ennfremur: „Hér-
aðslæknir (heilsuverndarstöð) skal hafa
vakandi auga á, að allar rannsóknir, sem
nauðsynlegt er að framkvæma í umhverfi
berklaveiks manns, til þess að hindra út-
breiðslu veikinnar, verði framkvæmdar, og
öllum settum fyrirmælum þar að lútandi
hlýtt. Ef nauðsynlegt þykir skal leita full-
tingis lögreglustjóra, til þess að fram-
kvæma rannsóknir á slíkum, heimilum eða
öðrum stöðum, þar sem grunsamlegt þykir,
að um smitandi berklaveiki sé að ræða.
Má lögreglustjóri fella úrskurð um, að
rannsókn fari fram á einstökum mönnum
eða heimilum, sem skorast hafa undan að
ganga undir slíka rannsókn“. Úrskurðar
af þessu tagi hefux aðeins verið leitað í
eitt skipti. Og 7. gr. laganna hljóðar þann-
ig: „Fari hinn berklaveiki, aðstandendur
hans eða aðrir, sem hann umgengst, eigi
eftir reglum þeim, er læknir hefur sett til
að koma í veg fyrir útbreiðslu veikinnar,
er lækni, heilsuverndarstöð eða öðrum,
sem um það er kunnugt, skylt að tilkynna
það héraðslækni, sem, ef þörf er, leitar
fulltingis lögreglustjóra. Lögreglustjóri get-
ur að fenginni umsögn berklayfirlæknis,
úrskurðað hinn berklaveika í sjúkrahús.
Nú óhlýðnast sjúklingurinn úrskurðinum,