Læknablaðið - 01.02.1976, Qupperneq 50
30
LÆKNABLAÐlÐ
úr Garðahverfi 10-13 ára og voru 5 þeirra
jákvæð eða 35,7%.
Árið 1919 framkvæmdi héraðslæknirinn
á Akureyri Pirquetspróf á 148 bömum á
aldrinum 8-14 ár í bamaskólanum þar.
Taldi hann 65,5% jákvæð.124 Árið eftir
Pirquetspróf á börnum í barnaskólum í
Akureyrarlæknishéraði utan Akureyrar,
aldur 9-14 ár, alls 208. 20,0% þeirra talin
jákvæð.125 Er hér eingöngu um sveitabörn
að ræða enda rúmlega þrefalt færri smituð
þar en í Akureyrarkaupstað. Árið 1920
var gert Pirquetspróf á skólabörnum á
ísafirði, aldur 10-14, alls 169 að tölu. 40,5%
voru talin jÉLkvæð.145 Sama ár er gert
Pirquetspróf á 207 börnum í Síðuhéraði,
aldur 1-14, og voru 36,2% talin jákvæð.122
Eru hér áberandi mörg börn jákvæð, þeg-
ar tillit er tekið til þess, að börn frá 1 árs
aldri eru meðtalin og einnig að berkla-
dauði og fjöldi skráðra berklasjúklinga I
þessu héraði er lítill á þessu tímabili.
Á árunum 1921-25 er getið berklaprófs
(Pirquetsprófs) á skólabörnum í 7 læknis-
héruðum. Er hundraðstala jákvæðra svip-
uð því sem áður hefur verið greint.
Árið 1922 eru berklarannsóknir í Dala-
héraði langmerkastar.1 Var þar gert
Pirquetspróf á langflestum börnum héraðs-
ins á aldrinum 0-14 ára, eða alls 284 börn-
um. í ljós kom að mikill munur var á
smituninni í hinum fimm hreppum læknis-
héraðsins. í Saurbæjarhreppi, sem er lítill
hreppur og fremur einangraður, voru 27 %
barnanna smituð, en i hinum fjórum var
meðaltal jákvæðra 8,1%. Skráðir berkla-
sjúklingar voru líka langflestir í Saur-
bæjarhreppi eða 23 á 8 ára bilinu 1915-22.
Á sama tíma var skráður sjúklingafjöldi
allra hinna fjögurra hreppa héraðsins 32,
en í þeim var íbúafjöldinn nær sexfalt
fleiri. Af þessu dregur héraðslæknirinn þá
ályktun, að berklasmitunin verði aðallega
á berklaheimilum, sem séu gróðrarstíur og
útbreiðslustöðvar sjúkdómsins, en hann fari
yfirleitt hægt yfir, komi á tiltölulega fáa
nýja bæi í hverri sveit á alllöngu árabili.
Árið 1928 er gert Pirquetspróf á 304
skólabörnum í Vestmannaeyjum. Reyndust
55 beirra eða 18% jákvæð.28
Árið 1930 framkvæmdi héraðslæknirinn
í Berufjarðarhéraði berklapróf (Pirquets-
próf) á 677 manns af 866 íbúum héraðsins
eða 78,2% íbúanna.2 Prófið framkvæmdi
hann mð húðrispu í dropa af óþynntu
tuberkulini. Skoðað var eftir 24 til 48 klst.
eftir ástæðum. Jákvæð svörun var það
talið, þegar fram kom roði og þroti, rautt
þykkildi í og út frá rispunni, en neikvæð,
þegar algerlega var laust við al'lan roða
og þrota, bæði í rispunni sjálfri og í kring.
Ef árangur prófsins var eigi greinilegur
var útkoman talin vafasöm.
Læknishérað þetta er fremur lítið og
dreifbýlt sveitahérað. Samkvæmt rann-
sókninni er nokkur mismunur á berkla-
smitun hinna ýmsu hluta héraðsins, þó er
þessi munur eigi verulegur og minnst
áberandi meðal hinna yngstu aldursflokka.
Hjá fólki yfir 14 ára aldur er smitunin
minnst í Beruneshreppi, 32 % karla já-
kvæðir og 37% kvenna, en mest í Geit-
hellnahreppi. Þar eru 57% karla og 69%
kvenna yfir 14 ára aldur jákvætt. Yfir-
leitt er smitunin útbreiddari meðal kvenna
en karla.
Héraðslæknirinn kemst að þeirri niður-
stöðu, að í héraðinu séu tiltölulega fáir
smitaðir eða um 36% þeirra, er rann-
sóknin tók til, enda nær smitun fullorðinna
tæplega 60% í neinum aldursflokki. Enn-
fremur, að smitun barna sé ekki algeng,
ca. 14%, en því algengari meðal full-
orðinna. Smitunina rekur hann langoftast
til berklaheimila, en eigi gesta eða mann-
funda. Dregur hann þá ályktun, af þessari
og áðurgreindri rannsókn í Dalahéraði, ,,að
íslenzka þjóðin hafi verið að smitast af
berklaveiki undanfarna áratugi og sé enn
að smitast."1 2
Þessar rannsóknir Árna Árnasonar hér-
aðslæknis í Dalahéraði 1922 og í Beru-
fjarðarhéraði 1930, eru nær eiria víðtæka
tilraunin, sem gerð var hér á landi fram
til ársins 1930 til þess að komast að, hve
útbreidd berklasmitun var meðal þjóðar-
innar. Því miður vantar mikið á, að rann-
sóknir þessar geti talizt hafa fullt gildi.
Er aðsins beitt cutan (Pirquets) aðferð við
berklaprófið, og næst því eigi nema nokk-
ur hluti hinna jákvæðu. Ennfremur hefur
árangur berklaprófsins í mörgum tilfellum
verið dæmdur of snemma (eftir 24 klst.
í stað 72). Þá eru eigi greinileg mörk sett,
hvað talið sé jákvæð og neikvæð svörun
(mælt í mm) og ekki getið, hvers konar