Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1978, Síða 12

Læknablaðið - 01.12.1978, Síða 12
172 LÆKNABLAÐIÐ 1 h R ITD ÓML Nordisk symposium „KRONISK ARTHRIT'1, Göteborg 1977. 1J Ritstjórn: Börge Olhagen, Ragnhild Gullberg. J Útgefandi: The Boots Company Ltd., L_l J 1 Notthingham, England. 1 þessari bók, sem er 283 blaðsíður að stærð, eru 40 erindi um Kroniska liðagigt, og hring- borðsumræður, sem fóru fram í Gautaborg dagana 12. og 13. maí 1977. Forgöngu um þess- ar hringborðsumræður hafði prófessor Börge Olhagen, yfirlæknir á gigtsjúkdómadeild Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi. Hann er einn af norrænum forvigismönnum á sviði gigtsjúkdómafræðinnar, og hefur því góða yfir- sýn yfir fræðigreinina á Norðurlöndum. Hon- um tókst lika að fá fram á þessum fundi flest af því, sem er efst á baugi í rannsóknum á Kroniskri liðagigt á Norðurlöndum um þessar mundir, og afburða góð skipulagning Hans Haldane fyrir hönd „The Boots Company" tryggði útgáfu á öllum erindum ráðstefnunnar og umræðum á því sama ári og ráðstefnan var haldin. 1 þessari bók er því samankomin nor- ræn þekking á Kroniskri liðagigt í dag. Bókin er mjög vönduð og aðgengileg til iestrar. Efn- inu er skipt niður í þessa kafla: Pathofysiologi, diagnostik, systemisk farmakotherapi, local farmakotherapi vid synovit, klinisk prövning av lákemedel, og enskur gestafyrirlesari, S.S. Adams, á þarna erindi „The mode of action of non-steroidal anti inflammatory agents“, efni sem á erindi til allra lækna. 1 kaflanum um patofysiologi er fjallað um starfsemi eitilfruma og plasmafruma, frumu- ónæmi, rheumatoid factor og ónæmisflækjur (immunkomplex), kompliment, lysosóm og prostaglandin með meiru. 1 kaflanum um diagnostik ber hæst erindi Ernu Möller, erfðafræðings við Karolinska Institutet og Huddinge sjúkrahúsið í Sviþjóð, um HLA kerfið. I umræðum um þetta erindi eru birtar niðurstöður okkar Alfreðs Árnason- ar, erfðafræðings, um HLA og gigtsjúkdóma á Islandi, og vakti það athygli, að spondylitis ankylopoetica hefur hérlendis algera fylgni við HLA B27 og Properdin factor BfS. I þessum kafla eru einnig ágæt erindi um arthroskopi og technetium skann á sacroiliacaliðum, sem hvort tveggja er verulega gagnlegt við grein- ingu með réttri notkun. 1 kaflanum um systemiska lyfjagjöf á Káre Berglund, prófessor í gigtsjúkdómafræðum í Lundi, lærdómsríkt erindi um „Bruk och mis- bruk av anti-innflammatoriska medel vid kronisk artrit". Hann heldur þvi fram 1) að margir læknar hafi óljósa hugmynd um hvaða áhrifa megi vænta af hinum ýmsu gigtarlyfj- um, 2) að mikið skorti á að læknar geri sér grein fyrir því, hvaða meðferð henti sjúkling- um best og gefi því röng lyf, 3) gefi fleiri verkjalyf samtímis, 4) gefi þau tímum saman, þótt þau verki ekki á sjúkling, 5) fylgist ekki með lyfjagjöf, 6) aukaverkanir séu alltof margar, 7) að sjúklingnum sé sjaldnast gert ljóst hvaða áhættu hann, eða hún, taki við lyfjagjöfina. 1 þessum kafla eru svo ágæt erindi um gull, klórókín, penicillin, stera, cytostatica og podo- fyllotoxin. I kaflanum um local lyfjameðferð við lið- bólgum er fjallað um sterainnspýtingar í liði, og osmiumsýru-innspýtingar og ®o Yttrium. Marti Oka, frá Finnlandi, sem stjórnaði þessum þætti umræðna, dró þá ályktun, að sterainn- spýtingar í liði eigi alltaf við, og ef þær dugi ekki við liðbólgum þá eigi að grípa til osmium- sýru-innspýtinga hjá sjúklingum um fertugt og yfir fertugt, megi nota geislavirk efni. Ef það dugi svo ekki, eigi að ráðgast við ortopeda. Þessari ráðstefnu lauk með málþingi um kliniskar rannsóknir á lyfjum, m.a. einblindar og tvíblindar rannsóknir, en slíkar rannsóknar- aðferðir þurfa islenskir læknar að tileinka sér. Þessi kafli er því þörf hugvekja fyrir íslenska lækna, því að við höfum vanrækt þennan þátt lyfjarannsókna til þessa. „The Boots Company" hefur unnið þarft verk með útgáfu þessarar bókar, sem allir læknar með áhuga á gigtsjúkdómafræðum ættu að eignast. Þeir læknar, sem áhuga hafa geta skrif- að fyrirtækinu A.L. — Pharma a/s, Emdrupvej 28 B, 2100 Köbenhavn ö, og beðið um að fá bókina senda. Jón Þorsteinsson, læknir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.