Læknablaðið - 01.12.1978, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
185
frá 1974 greinast 4—6 tilfelli árlega. Þetta
bendir til svipaðrar þróunar hér og annars
staðar. Aukin þekking á eðli sjúkdómsins
ásamt betri aðferðum til greiningar, leiðir
til þess að fleiri tilfelli finnast.
Ýmsum erfiðleikum er þundið að gera
sér grein fyrir algengi eða nýgengi sarcoid-
osis í hinum ýmsu löndum. Þó virðist sar-
coidosis algengari á svæðum þar sem loft-
hiti er tempraður eða kaldtempraður svo
sem í Skandinavíu, Englandi og Norður-
Ameríku. Misjöfn greiningaratriði og þjóð-
félagshópar ásamt því, hvernig sjúklingar
finnast, gera samanburð erfiðan. Sums
staðar er um efnivið að ræða, sem fundinn
er við fjöldaskoðanir á lungum. Annars
staðar er rætt um sjúklinga, sem greindir
hafa verið á sjúkrahúsum, eins og hér er
gert. Á ráðstefnu í Stokkhólmi 1963 voru
lagðar fram tölur um algengi sarcoidosis frá
30 löndum/’ Hæstar voru þær frá Svíþjóð,
55 og 64 af 100 þúsund fjöldaskoðuðum i
tveimur rannsóknum. Yfir 20 tilfelli af 100
þúsund fundust i Noregi, Suður-írlandi og
Hollandi. Milli 10 og 20 tilfelli af 100 þús-
und fundust í Englandi, Norður-írlandi,
Frakklandi, Þýskalandi, Póllandi, Sviss,
Júgóslavíu, Kanada og Nýja-Sjálandi. Und-
ir 10 tilfelli af 100 þúsund fundust í Finn-
landi, Skotlandi, Tékkóslóvakíu, Ungverja-
landi, Portúgal, Brasilíu, ísrael, Argentínu,
Úrugúay, Japan og Ástralíu.
Danir hafa rannsakað nýgengi sarcoid-
osis vel.8 1961 telur Horwitz nýgengi vera
5.3 tilfelli hjá 100 þúsund íbúum, og 1967
u.þ.b. 5 tilfelli. Alsbirk finnur 3.4 tilfelli
hjá 100 þúsund íbúum 1962—63. Selroos
finnur nýgengi 5.3 tilfelli af 100 þúsund í-
búum í Finnlandi árin 1962—1967, en al-
gengi 7.5 tilfelli af 100 þúsund í fjöldaskoð-
un. Danmörk og Finnland virðast því hafa
verulega lægri sarcoidosis tíðni en Svíþjóð
og Noregur.8
1974—1976 voru að meðaltali greind 5
tilfelli hér árlega, og enda þótt þessi at-
hugun nái aðeins fram á mitt árið 1977, er
vitað um þrjú önnur tilfelli greind seinni
hluta ársins, þótt ekki séu þau talin með
hér. Má því álykta að nýgengi hafi verið
svipað 1974 til 1977 u.þ.b. 2.5 tilfelli á 100
þúsund íbúa.
Erlendis hefur tíðni sarcoidosis oft verið
breytileg eftir svæðum. Lausleg athugun
sýnir, að flestir sjúklinga hér eru af
Reykjavíkursvæðinu, nokkrir frá Akureyri.
Færri af öðrum stöðum. Þar sem flutning-
ur fólks hefur verið töluverður hér á milli
staða og ekki hefur verið grennslast fyrir
um uppruna sjúklinga, segja þessar upp-
lýsingar lítið um svæðaskiptingu á íslandi.
Sarcoidosis virðist geta komið á hvaða
aldri sem er. Mayock4 getur sjúklinga frá
3ja mánaða til 80 ára aldurs. 41% þeirra
greindist á fertugsaldri. Hér voru 15 sjúk-
lingar, u.þ.b. 38.5%, milli 30 og 40 ára og
23 eða 59% undir fertugu. Sharma7 finnur
2 af hverjum 3 tilfellum undir fertugu í
Kaliforniu.
Aldursdreifing sýnist hér svipuð og ann-
ars staðar. Sama má segja um kynskipt-
ingu sem er nokkuð jöfn hjá hvítum.
Mayock4 finnur meðal 1254 sjúklinga, víðs-
vegar að, 60% karlmenn. í Finnlandi voru
65 og 66% sjúklinga konur eftir árum.8
Hér reyndust konur 53.8%, karlar 46.2%.
Algengust byrjunareinkenni hér voru frá
lungum: Mæði, takverkur, hósti hjá 47.7%.
Slappleiki, hiti hjá 48.7%. Liðbólgur eða
liðverkir hjá 41.0%. Sharma7 telur lungna-
einkenni finnast hjá 20—50% sjúklinga.
Mayock4 finnur slappleika og þreytu hjá
Table II. Sex distribution of 39 patients with
Sarcoidosis.
No. of patients Females % 39 21 53.8 Males 18 % 46.2
Table III. Modes of presentation No. of patients %
Respiratory tract symptoms/signs: 19 48.7
dyspnoea cough sputum chest pain Constitutional: 19 48.7
fever malaise Joint symptoms: 16 41.0
arthritis arthralgia Erythema nodosum: 7 17.9
Other skin eruptions: 4 10.2
Ocular symptoms: 3 7.6
uveitis granulomatosa chorioretinitis orbital tumor Found on routine examination: 3 7.6