Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.12.1978, Page 48

Læknablaðið - 01.12.1978, Page 48
190 LÆKNABLAÐIÐ stíflueinkenni. Magaspeglun (gastroscopia) var gerð aðeins stöku sinnum fyrir árið 1970, en í flestum tilvikum reglulega frá árinu 1972. Verður af þessari ástæðu ekki gerð sérstök grein fyrir niðurstöðum maga- speglunar hér. EFNIVIÐUR Kannaðar voru rækilega sjúkraskýrslur allra þeirra sjúklinga, sem vistaðir voru á lyflækningadeild Heilsuverndarstöðvar og síðar Borgarspítalans frá árinu 1956—1975 að báðum árum meðtöldum, samtals 20 ár, og höfðu greininguna ulcus pepticum, hae- matemesis og melaena. Þeir sjúklingar voru eingöngu teknir með, sem höfðu góð einkenni um magasár og röntgenmynd af maga, sem staðfesti sárið. Ýmsir aðrir þættir voru kannaðir, svo sem magasýrur, tóbaksneyzla, fylgikvillar og aðrir melting- Figure I. Keptic olcek J WHITÍ AHCA ■■ WOMIN 5HAÞE0 AREA : MEN arsjúkdómar. Verður drepið lauslega á suma þessa þætti. Ennfremur voru allir þeir sjúklingar í þessum efnivið fundnir með hjálp tölvu Borgarspítalans og Krabba- meinsleitarstöðvarinnar sem skráðir höfðu verið með magakrabbamein á þessu tíma- bili fram til ársloka 1976, og verður gerð stuttlega grein fyrir þeim í lokin. Tilgang- urinn með síðastnefndri athugun var fyrst og fremst sá, að kanna í fyrsta lagi, í hve mörgum tilvikum magasársgreiningin reyndist röng og hins vegar, hvort maga- sárssjúklingar fengju magakrabbamein síð- ar á ævinni, og þegar um það var að ræða, hvort samhengi reyndist vera milli stað- setningar magasársins í upphafi og mynd- un krabbameins síðar, og þá ekki sízt hvort eitthvað kæmi fram, sem benti til þess, að magakrabbamein væri tíðara hjá sjúkling- um, sem áður höfðu haft magasár. NIÐURSTÖÐUR Á þessu árabili (20 árum) fundust alls 1067 sjúklingar með magasár, 628 karlar (tæplega 59%) og 439 konur (rúmlega 41%). Á töflu I sést aldursdreifing alls hópsins og á mynd I sést aldursdreifing beggja kynja án tillits til staðsetningar sárs. Fram kemur af töflu I, að flestir sjúklinganna eru í aldurshópnum 41—60 ára, eða 44.1%, næstflestir í aldurshópnum 21—40 eða 29.8%. Athyglisverður er aldurshópurinn undir 20 ára, eða 5.5%, yngsti sjúklingur- inn reyndist 10 ára, en sá elzti 90 ára. Af mynd I sést að flestir karlar eru í aldurshópnum 41—50 ára, eða 157, 25% allra karla, næstflestir í aldursflokknum 31—40, eða 140, 22.3% allra karla. Flestar konur eru í aldursflokknum 51—60 ára, eða 112, og 41—50 ára, eða 111, um 25.5% í báðum þessum aldursflokkum. Ennfrem- ur kemur glöggt fram, að í yngri aldurs- Table I. Pept-ic ulccr. Age distribution Men and women Age Number Percent 0—20 26 patients 5.5% 21—40 318 patients 29.8% 41—60 503 patients 44.1% 61 + 220 patients 20.6% Total 1067 100%

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.