Læknablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 55
LÆKNABLAÐIÐ
193
Table VIII. Admissions.
1956—1960 185 patients
1961—1965 215 patients
1966—1970 315 patients
1971—1975 352 patients
Total 1067 patients
Table IX. Meðalfjöldi legudaga.
1965—1960 29.6 dagar
1961—1965 25.8 dagar
1966—1970 26.1 dagar
1970—1975 18.8 dagar
fyrri sögu um magasár. Af þeim höfðu 261
eða 73.3% haft einu sinni áður greiningu á
magasári, 68, eða 19% tvisvar sinnum áður
og um 29 sjúklingar eða um 7.7% þrisvar
eða oftar fengið magasársgreiningu áður.
Tafla VIII sýnir fjölda innlagna á tíma-
bilinu.
Tafla IX sýnir meðal legudaga á tímabil-
inu þar sem fram kemur stytting úr 29.6
dögum fyrstu 5 árin í 18.8 daga seinustu 5
árin á tímabilinu.
Ekki hafa afdrif þessara sjúklinga verið
könnuð nema að nokkru leyti, enda ekki
tilgangur þessarar greinar. Aftur á móti
þótti forvitnilegt að grennslast eftir hverjir
þessara sjúklinga fengu illkynja æxli á
tímabilinu, einkum krabbamein í maga.
Þessar upplýsingar hafa fengist hjá
Krabbameinsfélagi íslands og kemur í ljós,
að fram til ársloka 1976, frá 1 ári og upp í
21 ár eftir meðferð, fá alls 56 sjúklingar
greininguna illkynja æxli. Af þeim fá 7
krabbamein í maga, 6 krabbamein í önnur
meltingarfæri (bris, lifur, ristil o. f 1.), en
43 fá æxli utan meltingarfæra.
Sérstaklega er áhugavert að kanna nán-
ar þá sjúklinga, sem fengu magakrabba-
mein.
Tafla X sýnir alla þá sjúklinga, 7 að tölu,
sem fengu magakrabbameinsgreininguna á
tímabilinu. Meðalaldur er greinilega hærri
en í efniviðnum í heild, 5 karlar og 2 kon-
ur, frá 44 ára til 84 ára við magasársgrein-
inguna. Rúmlega helmingur þeirra hafa
lengri en 5 ára magasárssögu, 2 af 7 hafa
hækkaðar sýrur, allir hinir lágar sýrur,
sumir verulega lækkaðar. 3 hafa upphaf-
lega sár í magabol (corpus), 2 í porthelli
(antrum), 1 í magastúf (stoma) og 1 í
skeifugörn. Flest sáranna eru ekki fullgró-
in við útskrift, en öll nema eitt hafa
minnkað í legunni. Tími frá magasársgrein-
ingu til krabbameinsgreiningar er frá rúm-
lega V2 ári upp í 7 ár (2 sjúklingar).
Tveir sjúklinganna, annar með sár í
magabol (corpus), hinn með sár í porthelli
(antrum) eru þegar grunaðir um krabba-
mein í legunni, enda krabbamein greint
tæplega ári síðar hjá báðum þessum sjúk-
lingum. Hjá tveimur sjúklingum í viðbót
greinist krabbamein rúmlega einu ári og
tveimur árum síðar, bæði sárin upphaflega
í magabol, og má vel vænta, að í þessum
tilfellum hafi verið um „missed cancer“ að
ræða fremur en þróun krabbameins í maga
sjúklinga með magasár, þótt erfitt sé að
kveða nánar á um þetta atriði á þessu stigi.
Þrír sjúklingar fá krabbameinsgreininguna
fimm árum (1 sjúklingur) og 7 árum (2
sjúklingar) síðar, einn þeirra hafði skeifu-
garnarsár, annar sár í porthelli og sá þriðji
magastúfssár. Ekki verður gerð tilraun til
að kanna hvort hér sé um tölfræðilegan
mun að ræða, hvað snertir hærri eða lægri
tíðni á krabbameini í maga hjá magasár-
Table X. Pcptic ulcer and gastric cancer.
Patient Sex Year of ulcer diagn. Age at diagn. Duration of symptoms Acids Site of ulcer Ulcer size on discharge Year of cancer diagn. Time from ulcer diagn. to cancer diagn.
1. S.L. p 1962 47 > 5 years Elevated Duodenum Decreased 1969 7 years
2. M.G. M 1963 57 < 1 year Elevated Antrum Unchanged 1963 < 1 year
3. E.J. M 1964 44 >5 years Lowered Corpus Decreased 1965 1 year
4. S.A. M 1965 76 > 5 years Very low Antrum Not controlled 1970 5 years
5. E.J. M 1967 60 < 1 year Very low Stoma (op. 1936) Healed 1974 7 years
6. B.Þ. M 1969 54 > 5 years Normal Corpus Decreased 1971 2 years
7. H.S. F 1973 84 2 years Lowered Corpus (anemia) Decreased 1974 1 year