Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1978, Síða 81

Læknablaðið - 01.12.1978, Síða 81
LÆKNABLAÐIÐ 211 ustu 4—5 árin, bæði tæki sem eru notuð við rannsóknir tengdar daglegri þjónustu og einnig tæki, sem þarf til að stunda erfðarannsóknir. Mest munar um sjálfvirka blóðþvotta- skilvindu og vél til mótefnagreiningar og mótefnamælinga. Þessi tæki eru sérstak- lega hjálpleg við Rhesus-vamir, sem Blóð- bankinn annast fyrir allt landið hvað snertir blóðflokkun og mótefnarannsóknir. Blóðrauðamælir, sem lesa má af blóð- magnsgildi í grömmum telst til meiriháttar framfara við slíkar mælingar á blóðgjöf- um. Djúpfrystiskápur hefur verið keyptur með styrk frá Erfðafræðinefnd Háskólans og Vísindasjóði Landspítalans. Hann er sér- staklega þarfur við varðveislu á greining- arefnum og til geymslu á sýnishornum af blóðvatni og frumum til lengri tíma. Nákvæm vigt hefur verið keypt til að gera mögulegt að búa til rannsóknarupp- lausnir til nota við rafdráttarrannsóknir. Starfslið og starfsemi Á síðustu 6 árum hefur deildarskipting Blóðbankans verið að festast í sessi með fjölgun starfsliðs. Skrifstofudeild, blóð- tökudeild og rannsóknadeild eru megin starfseiningarnar, sem tengdar eru blóð- bankaþjónustunni. Nýrri deild var komið á fót fyrir 3 árum: Erfðarannsóknadeild með, sérstökum deildarstjóra. Alls eru um 22—24 starfandi í Blóðbankanum að jafn- aði. Með eflingu starfsliðsins, umbótum á húsnæði og tækjabúnaði hefur Blóðbank- inn á síðustu árum vaxið að hæfni til að takast á við fleiri og fjölþættari rannsókna- verkefni en áður. Blóðflokkarannsóknir hafa verið auknar og gerðar ítarlegri, samræmingapróf hafa verið bætt og mótefnarannsóknir auknar og Rhesus-varnir hafa eflst. Smitvarnir með tilliti til Australíu-antigen og sára- sóttar hafa verið bættar. Rannsóknir á ó- næmisefnum hjá blóðgjöfum og Rh-nei- kvæðum konum hafa farið fram. Unnið er að framkvæmd rannsóknaáætl- ana, sem gerðar hafa verið um sérstaka sjúkdóma og sjúkdómaflokka. Þar má minna á rannsóknir á: Arfgengum göllum á rauðum blóðkornum, blæðingasjúkdóm- um eins og Von Willebrandssjúkdómi og beinbrotasýki (osteogenesis imperfecta). Vefjaflokka- og próteinrannsóknir, sem unnar hafa verið síðustu þrjú ár í Blóð- bankanum hafa þegar veitt verðmætar upplýsingar um gigtsjúkdóma, sykursýki og fleiri sjúkdóma. Þessar rannsóknir hafa tengst starfi á sjúkradeildum Landspítal- ans og komið af stað og styrkt samvinnu um meiriháttar læknisfræðilegar rann- sóknir, sem víst má telja að verði Land- spítalanum og fleiri sjúkrahúsum til efl- ingar. Réttarlæknisfræðirannsóknir hafa einnig notið góðs af rannsóknarstarfi Blóðbankans. Samvinna Blóðbankans við Erfðafræðinefnd Háskólans hefur verið veigamikill þáttur í rannsóknarstarfinu frá 1972. Erlend samvinna Mikið af rannsóknastarfi, sem unnið hef- ur verið í Blóðbankanum síðustu ár, hefði verið óframkvæmanlegt, ef ekki hefði not- ið við margra ágætra erlendra samstarfs- manna, stofnana og fyrirtækja. Dýr grein- ingarefni hafa verið gefin til vefjaflokka- greininga og próteinrannsókna, mörg hver ófáanleg á alþjóðlegum markaði. Ráðlegg- ingar þessara aðila og langvinn skoðana- skipti um viðfangsefni hafa verið ómiss- andi liður í rannsóknarstarfinu. Þakkarorð Blóðbankinn sendir blóðgjöfum og sam- starfsmönnum öllum hérlendis og erlendis bestu þakkir á þessum tímamótum. Ólafur Jensson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.