Læknablaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 70
98
LÆKNABLAÐIÐ
Ölafur Ólafsson landlæknir
NÝ LÖGGJÖF UM ÓNÆMÍSAÐGERÐIR
Breyttar reglur um bólusetningar.
Skyldubólusetnng gegn bólusótt afnumin
Á árinu 1978 voru ný lög um ónæmisað-
gerðir samþykkt á Alþingi og gefin út hinn
11. maí það ár.
Eins og segir í 1. grein taka lög þessi til
nólusetningar gegn:
1. barnaveiki, 2. kikhósta, 3. stífkrampa,
4. mænusótt, 5. mislingum, 6. rauðum
hundum, 7. berklaveiki, 8. bólusótt, 9.
heilahimnubólgu, 10. hettusótt, 11. öðrum
sóttum ef virk ónæmisaðgerð gegn þeim
verður kunn og sérstök smithætta er fyrir
hendi, 12. enn öðrum sóttum þegar sérstak-
lega stendur á, einkum í sambandi við
ferðir manna úr landi.
I 2. grein er þess getið að almenningi
skuli gefinn kostur á ónæmisaðgerð sam-
kvæmt 1. gr. 1—5 svo og eftir því sem þörf
krefur samkvæmt 6—12 tl., þó samkvæmt
12 tl. aðeins að svo miklu leyti sem því
verður við komið.
Heilsugæslustöðvar annast ónæmisað-
gerðir. Lyfjaverslun ríkisins annast útveg-
un bóluefnis er kostnaður við framkvæmd
ónæmisaðgerða samkvæmt 1. gr. 1—11 tl.
laga þessara greiðist úr ríkissjóði.
Aðalbreytingar frá fyrri lögum nr. 36/
1950 eru þessar:
1. Skyldubólusetning gegn bólusótt er
numin úr gildi, en almenningi er áfram
gefinn kostur á þeirri ónæmisgerð.
2. Kostnaður við framkvæmd helstu ó-
næmisaðgerða er nú greiddur úr ríkis-
sjóði, en í fyrri lögum var einungis heim-
ilt að greiða bólusetningu gegn bólusótt
úr þeim sjóði.
Hin nýja ónæmislöggjöf auðveldar mjög
framkvæmd á þeirri ráðagerð heilbrigðis-
yfirvalda að hefja allsherjar ónæmisað-
gerðir, t. d. gegn mislingum og rauðum
hundum eins og lýst hefur verið í þessu
blaði og siuðlar jafnframt að því að þátt-
takan verði almenn.
I framhaldi af þessari lagasetningu var
haldin ráðstefna um bólusetningar í
Reykjavík dagana 8.—9. desember 1978 á
vegum Landlæknisembættisins og Rann-
sóknarstofu Háskóla íslands í veirufræð-
um. Þátttaka var góð og sóttu um 100
læknar og hjúkrunarfræðingar ráðstefn-
una. Verður nánar skýrt frá þeirri ráð-
stefnu síðar.
Leiðbeiningar landlæknis um tímasetn-
ingu ónæmisaðgerða voru endursamdar
haustið 1978 og sendar öllum læknum, sjá
töflu.
BÓLUSETNINGARKERFI
til fermingaraldurs
Aldur barns: Sjúkdómar:
3 mán. Barnaveiki, kikhósti og stífkrampi.
4 mán. Endurtekin bólusetning gegn sömu sjúkdómum.
6 mán. Endurtekin bólusetning gegn sömu sjúkdómum. Mænusótt.
7 mán. Endurtekin bólusetning gegn mænu- sótt.
14 mán. Endurtekin bólusetning gegn barna- veiki, kikhósta, stífkrampa og mænusótt.
2 ára Mislingar.
3—4 ára Endurtekin bólusetning gegn mænu- sótt.
6—7 ára Endurtekin bólusetning gegn barna- veiki og stífkrampa.
9 ára Endurtekin bólusetning gegn mænu- sótt.
12 ára Rauðir hundar (stúlkubörn).
14 ára Endurtekin bólusetning gegn mænu- sótt.
Greinin barst ritstjórn 12/02/19 /9
La-ndlæknir 1978.