Læknablaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 80
104
LÆKNABLAÐIÐ
a) hvaða námsgrein,
b) sérfræðiviðurkenning á íslandi,
í Svíþjóð,
c) áætluð námslok vegna sérfræði-
viðurkenningar.
4. Hvenær starf hófst í Svíþjóð.
5. Áform um að flytja til íslands.
6. Atvinnuhorfur á íslandi og í Svíþjóð að
loknu sérnámi.
Niðurstöður
Tveir þeirra, er sent var spurningablað,
voru fluttir til íslands. Könnunin tók því
til 140 lækna.
f fyrstu lotu svöruðu 90 eða 64%. Með
ítrekunum bréflega og í síma fengust 39
svör til viðbótar. Lokaheimtur urðu því
129 svör eða 92%.
Af þeim 11, sem ekki svöruðu, neituðu
þrír að taka þátt í könnuninni. í tveimur
tilvikum var sú ástæða tilgreind, að við-
komandi hyggðust ekki flytja aftur til ís-
lands. Að öðru leyti er ekki vitað um á-
stæður fyrir þátttökuleysi. Af þessum 11
eru alls 9 útskrifaðir á síðustu 5 árum.
Einn er sérfræðingur en hinir í framhalds-
námi. Upplýsingar um sérgreinaval þess-
ara 11 er að mestu byggt á spjaldskrá
FÍLÍS.
í ljós kemur að íslenskir læknar eru
starfandi á 29 stöðum í Svíþjóð (Tafla 1).
Flestir eru í Gautaborg, Stokkhólmi og
Malmö-Lundi.
í háskólaborgunum, en það eru auk áð-
urnefndra borga, Uppsalir, Umeá og Lin-
köping eru alls starfandi 70 læknar eða
rétt tæpur helmingur. Athygli vekur að á
12 stöðum er aðeins einn íslenskur læknir
starfandi.
Lækningaleyfi
Af þeim 129, sem þátt tóku í könnun-
inni, eru 119 með íslenskt lækningaleyfi.
Hinir eru annars vegar þeir sem ekki hafa
lokið kandidatsári og hins vegar læknar,
sem dvalist hafa lengi erlendis.
Meirihlutinn, eða alls 71, hefir ekki
sænskt lækningaleyfi. Þessi háa tala stafar
væntanlega af því að margir hafa komið
til Svíþjóðar á síðustu 2 árum og hafa því
ekki átt þess kost enn að sækja þau
tveggja vikna námskeið, sem krafist er, til
TAFLA I
Skipting þeirra, sem könnunin nær til,
eftir búsetu í árslok 1978
Gautaborg 26 Umeá 2
Stokkhólmur 17 Skellefteá 2
Málmey-Lundur 15 Alingsás 1
Vásterás 10 Helsingborg 1
Skövde 9 Karlskrona 1
Vanersborg 9 Kungalv 1
Uppsalir 7 Landskrona 1
Borás 6 Lindesberg 1
Eskilstuna 5 Ljungby 1
Jönköping 5 Norrköping 1
Örebro 4 Sundsvall 1
Lidköping 4 Trelleborg 1
Linköping 3 Uddevalla 1
Falun Vástervik 3 2 Várnamo 1
TAFLA II
Sérfræðingar og sérgreinaval
Skipting sérfræðinga og þeirra, sem eru í fram-
haldsnámi, eft.ir sérgreinum. (Sérgreinaval þeirra
sem ekki svöruðu fyrirspurnum er sýnt í svigum)
/ námi
Sérgrein sér- fræð- ingar ■ Alls Náms- lok 1978-79 Náms- lok 1980-81
Augnlækningar 0(1) 4(1) 0 3
Barnageðlækningar 0 1 1 0
Barnalækningar 1 6(1) 0 5
Bæklunarlækningar 3 8 3 2
Háls-, nef- og eyrnalækn. 1 3 0 i
Almennar handlækningar 5 7(1) 1 3
Barnahandlækningar 1 0 0 0
Brjóstholshandlækningar 2 1 1 0
Þvagfærahandlækningar 0 1 0 1
Heimilislækningar 1 25 5 16
Húð- og kynsjúkdómar 0 1 0 0
Kvensjúkdómar 5 5(1) 2 2
Líffærameinafræði 1 1 0 1
Lungnasjúkdómar 0 2 2 0
Almennar lyflækningar 0 1 1 0
Bráðir smitsjúkdómar 0 i 1 0
Giktars j úkdómar 0 i 0 0
Orkulækningar 0 2 1 0
Svæfingar 2 6 2 3
Taugasjúkdómar 0 2 2 0
Taugahandlækningar 1 0 0 0
Geðlækningar 2 1(1) 0 1
Félagslækningar 0 1 1 0
Geislagreining 4 5 2 2
Krabbameinslækningar 0 3 0 2
Krabbakvensjúkdómar 1 0 0 0
Öldrunarlækningar 0 1 0 0
Óákveðin - 11(5) - -
Samtals 30(1) 100(10) 25 42