Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 38

Læknablaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 38
78 LÆKNABLAÐIÐ eftirliti. Þetta tvennt — annars vegar beit- ing stærðfræði við að setja viðfangsefnin upp í rökleg kerfi eða reikningskerfi, hins vegar tilraunir með fyrirbærin, eru helstu ástæðurnar fyrir framgangi raunvísinda á síðustu öldum og áratugum. Um leið hafa raunvísindin sífellt orðið tæknilegri og hagnýtari, og gert mönnum kleift að hafa þvílík áhrif bæði á umhverfi sitt, náttúr- una, og eigið samfélagslíf, að boðendur heimsendis eru nú hvað trúverðugastir spámenn. Og ein ástæðan er sú að vísindamenn „gleymdu“ að skoða þann raunverulega heim sem við byggjum. Þeir gleymdu sem sé þeim raunveruleika sjálfum sem er í senn tilefni og viðfangsefni allra reynslu- vísinda. Þessi sérkennilega „gleymska“ sigldi í kjölfar hinnar nýju eðlisfræði sem mótuð var á nýöld. Rætur hennar liggja þó ef- laust dýpra í sögunni. En á 18. og 19. öld verður vélhyggjan sjálfsögð í augum fjölda náttúruvísindamanna. Skopast var að rómantískum heimspekingum sem höfn- uðu vélhyggjukenningu eðlisfræðinnar og boðuðu að náttúran væri óendanlega flók- ið og dásamlegt lífríki sem umlyki mann- lífið, vísindi og tækni. Þessum hugmyndum var hafnað sem óskiljanlegri þvælu og kjaftæði sem í skásta tilfelli mætti flokka undir lélegan skáldskap. Heimurinn skyldi skoðaður eins og gífurlega flókin vél sem lyti fáeinum meginlögmálum, en svo stór og margbrotin að hóp sérfræðinga þyrfti til að kynnast hverjum einstökum þætti í gangverki hans. Þessi vélhyggjukenning um vísindin og veröldina á enn miklu fylgi að fagna, þrátt fyrir það hversu hryllilegar afleiðingar fylgispekt við hana hefur haft. En sannleiksgildi kenningar verður heldur ekki hrakið með því að benda á slæmar afleiðingar hennar og þess vegna missir öll gagnrýni á tæknihyggjuna marks, ef hún tekur einungis til spjallanna af völdum tækninnar.11 Sannleikurinn er sá, að tæknihyggja nú- tímavísinda á ekki fylgi sitt að þakka því einu hversu mikil not eða ónot má hafa af tækni og vísindum, heldur því að hinn tæknilegi hugsunarháttur virðist á yfir- borðinu skynsamlegur og í anda sannra vísinda. Tæknihyggjan boðar að tekist sé á við öll úrlausnarefni sem vandamál sem unnt eigi að vera að leysa eftir öruggum tækni- legum leiðum. Þessi boðskapur getur virst sjálfsagður og eðlilegur. Hann er þó ó- skynsamlegur og háskalegur: Óskynsam- legur vegna þess að mörg mikilvægustu úrlausnar- og áhyggjuefni manna eru ekki þess eðlis að unnt sé að greiða úr þeim með neinum tæknibrögðum; háskalegur vegna þess að hann leiðir menn á villigötur, hindrar að menn geri sér ljósa grein fyrir ýmsum brýnum viðfangsefnum og takist raunverulega á við þau. Sú skoðun að tæknihyggjan sé mótuð i anda sannra vísinda er einnig alröng. Tæknin er heild þeirra aðferða og leiða sem við höfum til að framleiða hluti og hafa áhrif á gang mála í heiminum. Tækni- hyggjan er hins vegar lífsviðhorf eða heimspeki, þar sem allt er skoðað undir sjónarhorni tækninnar. Þegar slíkt við- horf verður allsráðandi í vísindum, þá eru vísindin ekki aðeins á villigötum, siðferði- lega og félagslega séð, þau eru einfaldlega ekki lengur vísindi, í eiginlegri merkingu þess orðs, vegna þess að þau leita ekki lengur þekkingar á heiminum þekkingar- innar vegna, heldur leita þau að áhrifum áhrifanna sjálfra vegna. 15. HUGMYNDAFRÆÐI VÍSINDA OG TÆKNI, OG LÆKNISFRÆÐI Nú er mál til komið að spyrja hvernig þessar hugleiðingar og athugasemdir um hugmyndafræði vísinda á okkar dögum varði læknisfræði sérstaklega. Læknisfræðin er undir þessa hugmynda- fræði seld eins og önnur vísindi og tækni. Eins og best sést af námskrá læknadeildar háskólans er læknisfræðin byggð upp sem raunvísinda- og tæknigrein í þrengsta skilningi. Hvergi örlar á námskeiðum sem lúta að siðferðilegum, félagslegum, menn- ingarlegum eða sögulegum þáttum læknis- fræðinnar sem vísinda-, tækni- og list- greinar í senn. Eitt helsta einkenni nútíma vísindatæknihyggju er einmitt að bann- færa spurningar um forsendur fræða og vísinda og fordæma vangaveltur um verð- mæti og tilgang fræðanna sem óvísindaleg viðfangsefni. Tilgangurinn með því að úti- loka slíkar spurningar og vangaveltur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.