Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 18

Læknablaðið - 01.04.1979, Blaðsíða 18
68 LÆKNABLAÐIÐ ferðum var beitt af nákvæmni og niður- stöðurnar voru áreiðanlegar á mælikvarða viðtekinna hugmynda um áreiðanleika eða hlutlægi. Það má ásaka læknana um að hafa brot- ið hinar mikilvægustu siðareglur og for- dæma aðgerðir þeirra á þeim forsendum. En samkvæmt hlutleysiskenningunni er aðferðafræðilega ekkert því til fyrirstöðu að gerðar séu alls konar tilraunir með fólk eða á fólki, því að vísindin sem slík eru sögð hlutlaus í siðferðilegum efnum, á þeirra svið skiptir sannleikurinn einn máli, og þá líka strangar aðferðir og rök- vísi. Hugsjón læknisfræðinnar um að líkna fólki og halda því á lífi virðist óviðkom- andi vísindunum sem slíkum, aðferðafræði þeirra og röklegum forsendum. Slíkur til- gangur er þeim framandi, samkvæmt um- ræddri hlutleysiskenningu. En er þá nokkur leið til að fordæma tilraunir hinna ímynduðu siðlausu lækna á vísindalegum forsendum? Við getum reynt að gera málstað þeirra svolítið skárri frá siðfræðilegu sjónarmiði og sagt að í raun hafi þeir einungis verið að gegna skyldum sínum við vísindin, í einkalífi sínu og á öðrum vettvangi séu þeir jafnvel allra manna siðprúðastir. Við getum einn- ig gert þeim upp tilfinningar og sagt að þeim hafi liðið mjög illa við þessar til- raunir, og jafnvel verið þvingaðir til þeirra. Siðferðilega séð eru þessir menn engu að síður sekir: Þeir hafa brotið gegn mannkyninu, ef ekki Guði. En framkoma þeirra er að minnsta kosti skiljanleg, við getum skilið ástæður þeirra þótt við neitum að taka þær gildar. Við getum jafnvel skilið þær svo vel að í rauninni hafi okkur sjálfa langað til að gera þessar tilraunir, en aldrei komið til hugar að framkvæma þær af siðferðilegum ástæðum. í rauninni held ég að visindalega þenkjandi menn í læknastétt h-ljóti stundum að hugsa með sér hvílíkur ávinningur það væri læknis- fræðinni, bæði frá hagnýtu og fræðilegu sjónarmiði, að geta gert tilraunir á fólki án þess að þurfa að taka mið af nokkrum siðareglum eða yfirleitt nokkru öðru en því sem stuðlað gæti að aukinni læknis- fræðilegri þekkingu. Það virðist eitthvað búa í vísindatækni- fræðum nútímans sem opnar leið til ósið- legra framkvæmda eða aðgerða sem brjóta í bága við siðgæði okkar. Það nægir engan veginn að segja að tæknivísindin séu í sjálfu sér hvorki góð né ill, að gott og illt eigi hvorki við vísindin né þau tæki sem þau fá okkur í hendur, heldur einungis við beitingu þeirra. Það sem máli skiptir er að tæknin gefur ekki aðeins tækifæri heldur líka tilefni til framkvæmda sem geta verið góðar eða illar eftir atvikum. M.ö.o. tækn- in sem við ráðum yfir er ekki fólgin í hlut- lausum tækjum, heldur í leiðum til fram- kvæmda sem beinlínis laða okkur að sér, heilla okkur. Ef við nýtum ekki möguleika tækninnar, þá vitum við aldrei hvers hún er megnug, og allar framfarir á sviði henn- ar yrðu úr sögunni. En um leið er tæknin siðlaus í þeim skilningi að hún freistar okkar til að skoða sérstök einkenni fyrir- bæranna án þess að hvetja okkur til að skoða önnur og hugsanlega mikilvægari einkenni sömu fyrirbæra. T.a.m. freistar hún okkar til að lita á menn sem flókin lífræn kerfi en ekki sem persónur. Auk þess veitir tæknin okkur engin ráð til að sjá fyrir allar afleiðingar sem beit- ing hennar getur haft í för með sér — af þeirri einföldu ástæðu að hún hvílir ekki á tæmandi þekkingu á þeim veruleika sem henni má beina að. Vitneskja okkar um raunveruleg náttúrufyrirbæri (þ.á.m. mannslíkama) kemst ekki í hálfkvist við kunnáttu okkar í því að hafa áhrif á þau. Af þessu leiðir einfaldlega að við vitum ekki og getum ekki vitað til neinnar hlítar hver verða áhrifin af beitingu tækninnar á viðkomandi náttúrufyrirbæri. Tæknina þekkjum við hins vegar til fullnustu. — Þessi óvissa er út af fyrir sig heillandi fyrir vísindamenn og eykur á eðlilega löng- un þeirra til að prófa tilgátur sínar og reyna tæki sín. Hér er læknir í nákvæmlega sömu að- stöðu og aðrir raunvísindamenn, og í fljótu bragði verður ekki séð að neitt mæli gegn því að hann fylgi fordæmi þeirra: beri fram tilgátur sinar og beiti tækjum sínum til að prófa þær — nema það eitt að hann er að fást við mannverur, sem eiga rétt á meiri tillitsemi en önnur raunveruleg fyrirbæri. Frá vísindalegu sjónarmiði virð- ist þessi ki-afa eða þessi réttur oft á tíðum ekki vera annað en þrándur í götu eðli-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.