Læknablaðið - 01.04.1979, Page 102
120
LÆKNABLAÐIÐ
tímis stundi stúdentar nám í heilbrigð-
isfræði, heimilislækningum og endur-
hæfingu. Á þennan hátt væri unnt að
koma á því samstarfi sem rætt er um í
reglugerðinni og umfram allt að sam-
ræma námsefnið og koma í veg fyrir
óþarfa tvítekningar t.d. í faraldsfræði.
Við kennslu í félagslækningum skal
leggja áherslu á:
1. Skipan heilbrigðis- og tryggingamála,
lög og reglugerðir.
2. Félagslegar aðstæður og heilsufar.
3. Sérþarfir sjúklingahópa í ljósi far-
aldsfræðilegrar þekkingar.
Markmið námsins:
a. Að stúdentar geti hagnýtt sér far-
aldsfræðilegar aðferðir.
b. Að stúdentar skilji að viðhorf starfs-
fólks innan heilbrigðiskerfisins til
heilbrigðisvandamála hljóti að taka
mið af því hver vinnustaður þess er.
c. Geri sér grein fyrir þýðingu félags-
legra aðstæðna í greiningu og með-
ferð vandamála sjúklinga. Kunni skil
á hvar leita skal upplýsinga um bæt-
ur trygginga og sjúkrasamlaga og
hafi hlotið leiðsögn í færslu helstu
vottorða.
d. Kunni skil á lögum og reglum um
réttindi og skyldur lækna.
LOKAORÐ
Nefndin gerir ráð fyrir að í fyrstu verði
aðallega kennt með fyrirlestrum, en seinna
er greininni vex fiskur um hrygg er gert
ráð fyrir umræðufundum (seminar) með
stúdentum.
LÆKNAÞING
verður haldið í Domus Medica 24. og 25.
september n.k.
Þingið er opið öllum íslenzkum læknum
og efnisval frjálst.
Frestur til að skila erindum fyrir þingið
er til 15. ágúst. Flutningur erinda má lengst
taka 10 mínútur og 5 minútur síðan ætl-
aðar til fyrirspurna. Úrdrættir skulu vél-
ritaðir á sérstök eyðublöð, sem send hafa
verið til lækna, en eru einnig fáanleg á
skrifstofu læknafélaganna.
Úrdrættir verða allir prentaðir í dagskrá
en ekki er víst að hægt verði að taka öll
erindi til flutnings.
NÁMSKEIÐ
fyrir lækna verður haldið í Domus Medica
dagan 26. og 27. sept. n.k. og mun það fjalla
um atvinnusjúkdóma. Ráðstefna um at-
vinnuheilbrigðismál verður haldinn í beinu
framhaldi af námskeiðinu þann 28. sept.,
og verður aðilum vinnumarkaðarins boðin
þar þátttaka einnig.