Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.07.1979, Qupperneq 27

Læknablaðið - 01.07.1979, Qupperneq 27
LÆKNABLAÐIÐ 133 Pedro Olafsson Riba NOTKUN Á LIDOCAIN í SLAGÆÐ VIÐ SKOÐUN Á ÚTLIMAÆÐUM MEÐ SKUGGAGJAFA INNGANGUR Samhliða örri þróun í skurðlækningum hafa kröfur af hálfu skurðlækna um ná- kvæma kortlagningu sjúklegra breytinga í æðunum fyrir aðgerð vaxið. Þetta á ekki síst við um hrörnunarsjúkdóma í útlima- æðum, sem gefa æðasigg, æðaþrengsli eða stíflur, þar sem flæðisbætandi uppskurður er fyrirhugaður svo sem innanhreinsun, framhjáveituaðgerð, ísetning bláæðaígræðl- inga, gerfiæðar eða buxnalaga gerfiæðar. Aortofemoral-angiografia eða skoðun ós- æðar, lenda-, lær- og hnésbótaæða með skuggagjafainnspýtingu er sú skoðun, sem gefur nákvæmastar upplýsingar um ástand þessa hluta æðakerfisins. Rannsóknarað- ferðin sjálf er tiltölulega einföld í æfðum höndum, hvort sem um er að ræða beina ástungu í útlimaæð (selectiv femoral angio- grafia), þræðingu upp í æð (percutan trans- femoral angiografia) eða beina ástungu í aorta abdominalis (translumbal angio- grafia). Fylgikvillar eru mjög sjaldgæfir eða < 1% og frábendingar engar ef ofnæmi fyrir joði er undanskilið. Á hinn bóginn er rann- sóknin óþægileg fyrir sjúklinginn vegna þeirrar hitatilfinningar og ósjaldan óbæri- legs sársauka í lendum og fótleggjum sem verður samfara inndælingu skuggagjafans. Minningarnar eftir æðaskoðun eru stundum slíkar að viðkomandi veigrar sér við endur- tekinni skoðun nema í svæfingu. Ástæðan fyrir þessum óþægindum er skuggaefnið, sem veldur útvíkkun á æðunum og þar með hitatilfinningu, en ertir einnig innanþekju æðanna og það er þessi erting, sem er talin vera orsök sársaukans að vísu mismikils eftir einstaklingum. Oft kveður svo rammt að þessu að viðkomandi getur ekki legið Frá Röntgendeild Landspitalans. Barst ritstjórn 22/02/79. Sent í prentsmiðju 01/03/79. kyrr, hann spennir sig allan, hreyfir fæt- urna og æpir jafnvel af verkjum. Afleið- ingin verður gölluð skoðun vegna hreyfi- óskerpu. Undanfarin 8—10 ár hefur notkun lido- cains í æð til að draga úr óþægindunum, sem eru samfara skoðun á útlimaæðum með joðskuggagjafa farið í vöxt og margar greinar hafa birst bæði vestan hafs og aust- an um ágæti þessa lyfs, gefið sem staðdeyf- ing í slagæð.0 7 10 11 Tilgangurinn með þessari grein er að skýra frá reynslu okkar á notkun lidocains við útlimaæðaskoðanir á 38 sjúklingum seinni hluta árs 1978 og að fenginni eigin reynslu og annarra að koma með tillögur um besta notkunarmáta lyfsins. EFNIVIÐUR OG RANNSÓKNARAÐFERÐ Á árinu 1978 voru á Röntgendeild Land- spítalans framkvæmar um 110 útlimaæða- skoðanir, langflestar eða um 96% á lenda- og ganglimaæðum. Við 41 skoðun á samtals 38 sjúkl., 23 körlum 33 til 71 árs og 15 kon- um á aldrinum 44 til 78 ára, var notað Lidocain, sem deyfing í slagæð. Valið á sjúklingum var algjörlega handa- hófskennt, þ.e.a.s. ekki var tekið tillit til kyns, aldurs eða almenns ástands þeirra fyrir skoðun. Rannsóknaraðferðin skiptist þannig: Af 38 fóru 22 í ósæðar-, lenda- og lær- æðaskoðun, hjá 10 var gerð bein ástunga í útlimaæð, 8 fóru í translumbal-angiografiu og hjá einum var gerð angiografia á hægri griplim með þræðingu transfemoralt.. Hjá 3 sjúklingum, tveim konum og einum karli, hafði áður verið gerð æðaskoðun á hefð- bundinn hátt. Hjá öðrum þremur var bæði gerð aortofemoralinnspýting og sérinnspýt- ing í aðra hvora a.femoralis í sömu skoðun. Svæfingarlæknar ákváðu forgjöfina, sem oftast samanstóð af Valium, Fortral og Atropin í mismunandi skömmtum, allt eftir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.