Læknablaðið - 01.07.1979, Síða 43
LÆKNABLAÐIÐ
141
flestir sullir á aldrinum 50—80 ára, en
næstu 19 árin þar á eftir, hefur aldurinn
færzt upp í 70—100 ár. Bendir það á að
sýking hafi farið stórminnkandi á síðustu
tugum 19. aldar.
UMRÆÐA
Til upprifjunar skal aðeins minnzt á lífs-
skeið sulls í líkamanum. Eggið er í chitin-
hylki, sem leysist upp í magasýrunum og
lirfan úr því borar sig síðan gegnum slím-
húð garnanna og berst með vena porta
til lifrarinnar og er talið að þannig fari í
70% tilfella. Sumar lirfur komast í gegnum
lifrina og berast til lungnanna (20% til-
fella). Örfáar eða 10% komast í gegnum
lungun og geta þá borizt til hvaða líffæris
sem er í líkamanum, oftast þó í milta, heila
eða bein.6
Sullirnir sem hér hafa fundizt voru mis-
munandi stórir, en innihald í þeim stærsta
var 16 lítrar. Var þar um að ræða 51 árs
gamla konu, sem krufin var árið 1944
(sectio 63/44). Niels Dungal skýrði frá
þessum sjúklingi í ritgerð árið 1946 og var
álitið að það væri stærsti sullur, sem þá
var vitað um.1 2 3
Stærsti sullur sem þá hafði fundizt var
á skrá frá Devé (1920) og var innihald.
hans 10.5 lítrar. Lichtman (1949) skýrir
frá því, að Barnett hafi fjarlægt sull, sem
innihélt 42 lítra (11 gallons) og verður það
met sennilega seint slegið.r>
Athyglisvert er, að aðeins 5 af sullunum
hérlendis hafa fundizt í fólki, sem fætt er
árið 1900 eða síðar. Yngst var stúlka frá
Ólafsvík, fædd 1937, dáin 1960, (sectio
274/60) og var hún með sull í beinum
(ecchinococcus ossis ilii dxt.), sem er sjald-
gæf staðsetning hérlendis.1 Hitt fólkið var,
26 ára karl (S. 33/39), 43 ára karl (S.
34/45), 32 ára kona (S. 182/51) og 60 ára
karl (S. 260/60), sem var fæddur 15/2
1900.
Árangurinn, sem náðst hefur í þessari
baráttu, er fyrst og fremst að þakka eftir-
farandi:
1. Aukinni fræðslu (Bæklingur um sulla-
veiki 1863).
2. Hundahreinsunarlögunum (1890).
3. Tilkomu sláturhúsanna (eftir 1900).
4. Ákvæði um að brenna og grafa sýkt
innyfli (1890).
5. Fráfærur hætta (eftir fyrsta tug 20.
aldar).
6. Sauðahald hættir (sauðum slátrað 3—4
ára).
7. Haustslátrun (lömbum slátrað 4-5 mán.
svo að sullir nái ekki að þroskast, hafi
lambið smitazt).
8. Aukið hreinlæti og betri híbýlakostur.
9. Bannað hundahald.
Undanfarið hefur verið mikið rætt um
hundahald í þéttbýli landsins og sýnist sitt
hverjum. Tekið skal fram að þessi athugun
var gerð áður en nefndar umræður hófust.
TABLE II.
Autopsies 1949—1967.
Ycar Number of autopsies Number of cases with hydatid disease
1949 170 i
1950 164 6
1951 194 10
1952 226 13
1953 227 9
1954 240 7
1955 238 7
1956 279 4
1957 273 6
1958 295 7
1959 330 3
1960 324 5
1961 370 7
1962 374 3
1963 418 8
1964 453 6
1965 442 4
1966 476 8
1967 507 5
Total 6000 119
M/F ratio 18/71 = 0.67
TABLE III.
Age distribution of hydatid diseases found
at autopsies 1930—1967.
Age group 1930— 191^8 19 49— 1967 Total
Under 40 2 2 4
40—49 7 0 7
50—59 15 0 15
60—69 25 7 32
70—79 21 32 53
80—89 6 60 66
90—99 1 18 19
Total 77 119 196