Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.07.1979, Síða 53

Læknablaðið - 01.07.1979, Síða 53
LÆKNABLAÐIÐ 145 ræða. Bjarna var hér nokkur vandi á höndum. Hann var háður sínum tíma um það að ögra varlega þeim, sem honum voru hærra settir, hvort sem voru kenni- feður eða kóngsins yfirvöld-“ (6, bls. 46). Af ævisögu Bjarna Pálssonar0 verður ekki séð, að hann hafi skort einurð til að segja álit sitt umbúðalaust við hvern sem var, og í því tilviki, sem hér um ræðir, má ætla, að það hefði orðið útlátalaust fyrir hann, þó það væri annað en yfir- boðara hans. Sá ágreiningur gat ekki ógn- að neinum lagafyrirmælum né kostað rík- ið fjárútlát. En það hlaut að vera Bjarna kappsmál, að skcðun hans á landlægum sjúkdómum á íslandi væri rökrétt gagn- vart því fræðikerfi, sem hann aðhylltist. Og það eitt er vænlegt til að veita réttar leiðbeiningar um skilning hans á sulla- veiki, að vita deili á því sjúkdómafræði- kerfi. En hvert var það nánar tiltekið? G.M. bendir á stíflur, sem veigamikinn þátt í sjúkdómafræði B.P. og segir þær að nokkru leyti í samræmi við þeirra tíma kenningar um vessa líkamans. Ef hér er átt við vessakenningar Galenusar þar sem órétt hlutfall aðalvessa líkamans (slím, blóð, gult og svart gall) er megin orsök sjúkdóma, þá eiga stíflurnar (ob- struktionirnar) ekki þar heima. Þær eru eitt aðalsérkenni jatromekanisku kenn- ingarinnar, sem leggur megin áherslu á hreyfingu vessanna og vélræna (mekan- iska) hindrun á þeim, vegna samdrátta í æðavegg eða trefja (fibra) utan æðanna (þessar trefjar svara nánast til vefja í nútíma skilningi). Þannig stafar bólga af samdrætti í smæstu æðum, svo blóðkorn- in komast ekki áfram, en teppa æðarnar og blóðið safnast fyrir á staðnum. Og tepptar vessaæðar valda bjúg, ascitis og hydatids, en það er þar sem sullir eiga heima, og skal þess vegna tilfærður hér kafli úr Fundamenta medicinae (Halæ 1695) eftir Friedrich Hoffmann (1660- 1742) í enskri þýðingu Lester S. Kings, sem fjallar um þetta: ,,28. Hydrops is called ascites when the extravasion and accumulation of lymph occurs in the abdominal cavity, from a rupture of the lymphatic channels. 29. When the lymphatic vessels are obstructed and new serum is brought continuously, these chan- nels broaden and swell. Since the lymph cannot flow retro- grade because of the position of the valves, hydatids or great vesicles are formed. When these rupture there occurs a great extravasation of lymph, and thus hydrops can arise suddenly.“ (4, bls. 65). Hér er lítill greinarmunur gerður á hydatids og ascitis, hvort tveggja fellur undir hydrops, Vatter Soot, vatnssótt, sem hjá Bjarna Pálssyni var ein af afleiðing- um stíflanna og skv. prestþjónustubók Reykjavíkur látast tveir skurðsjúklingar hans úr Vatter Soot (6, bls. 36). F. Hoffmann, sem var prófessor við há- skólann í Halle, og Hermann Boerhaave (1668-1738), prófessor í Leyden, voru aðal- hvatamenn jatromekanisku kenningarinn- ar og þó að kennisetningunni, sem hún var reist á, væri áfátt í ýmsu, þá var starf þessara lækna, er að sjúkrabeði kom, raun- hæft, og að fordæmi Hippokratesar og Sydenhams mest lagt upp úr reynslu. Sjúkdómslýsingar þeirra, er fylgdu hinni jatromekanisku kenningu, voru því oft miklu raunsærri en ætla mætti, væru þær leiddar af kennisetningunni, og á þetta einnig við um lýsingar B.P., J.P. og S.P. á sullum, sem vafalaust styðjast við eigin innlenda reynslu, eins og V.J. álítur, enda auðfengin, þar sem efamál er, að annar innlendur sjúkdómur hafi valdið meiri örkumlum á þeim tímum en sullaveikin. í sambandi við athugasemdir S.P. í lækningabók J.P. segir V.J.: „leynir sér ekki, að þekking Sveins á sullum hefur verið miklu fjær öllum veruleika og sjálfsreynslu en þekking bókarhöfundar“ (6, bls. 51) og vísar um þetta til Sögu sullaveikinnar eftir G.M., bls. 16-18. Nú er S.P. aðalheimildin um B.P. og af þeirri ástæðu þýðingarmikið að kunna skil á þekkingu Sveins á sullum, þegar meta skal álit hans á aðgerðum Bjarna við þeim, sem síðar verður hér nánar að vikið. G.M. dæmir þekkingu J.P. á sullaveiki út frá bók hans „Lækningabók fyrir almúga“13 og S.P. af eftirfarandi ritum: Registur

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.