Læknablaðið - 01.07.1979, Qupperneq 66
154
LÆKNABLAÐIÐ
1973, er slík deild var opnuð í Heilsugæzlu-
stöð Kópavogs til viðbótar deild á Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur. Sjúklingar fengu
því greiðari aðgang að þjónustu, enda hef-
ur aðsókn þeirra að göngudeildum stór-
aukizt. Að sögn lækna á Heilsugæzlustöð
Kópavogs hafa leitað þangað fjölmargir
sjúklingar sem áður vistuðust skemmri og
lengri tíma á húðdeild Landspítalans. —
Margir þeirra eru nú vinnufærir allt árið.
Niðurstaða
Á árunum 1972-—76 hefur allstór biðlisti
húðdeildar Landspítalans sem er eina húð-
deild landsins lagzt af. Á árinu 1976 voru
2—3 rými af 14 rúmum deildarinnar ekki
nýtt fyrir sjúklinga með húðsjúkdóma.
Orsakir þessara breytinga eru að allra
áliti þessar:
1. Sjúklingar með erfiða psoriasis og
aðra húðsjúkdóma fá húðlyf að fullu niður-
greidd frá 1974. Aðrir sjúklingar fá þessi
lyf á viðráðanlegu verði. Þessir sjúklingar
hafa því síður þurft sjúkrahúsvistunar við
en áður.
Hinn aukni lyfjakostnaður frá 1972—
1976 samsvarar rekstri um tveggja rúma á
húðdeild á ársgrundvelli.
2. Göngudeildarstarfsemi var mjög auk-
in á höfuðborgarsvæðinu með opnun húð-
deildar Heilsugæzlustöðvar Kópavogs. Að-
streymi sjúklinga að þessum deildum hef-
ur stóraukizt með ári hverju.
Við teljum því, að fjárhagslegur sparn-
aður við þessa breytingu hafi orðið allnokk-
ur, þótt lyf jakostnaður hafi aukizt, vegna
færri legudaga á deildinni og minnkaðra
dagpeningagreiðslna til sjúklinga.
Að lokum ber að geta þess, að fjölda-
margir sjúklingar hafa sloppið við að liggja
langtímum saman á sjúkrahúsi eða bíða
eftir sjúkrahúsvist, en eru þess í stað starf-
hæfir.
Samantekt
Vel rekin göngudeildarstarfsemi og við-
ráðanlegar greiðslur sjúklinga vegna lækn-
ishjálpar (lyf) hefur dregið úr sjúkrahús-
vistun sjúklinga með húðsjúkdóma og enn-
fremur hefur heildarkostnaður vegna um-
önnunar og lækningar þessara sjúklinga
lækkað frá því sem áður var, er meiri á-
herzla var lögð á meðferð þeirra á sjúkra-
húsi.
Á húðsjúkdómadeild Landspítalans eru
nú fáir á biðlista.
SUMMARY
In this paper an assessment is made of the
cost of two health care systems for patients
with dermatological diseases.
In 1974 the Health Authorities decided that
all drugs used in the treatment of psoriasis and
eczema should be free of charge. At the same
time increased outpatient facilities were pro-
vided. This resulted in a sharp reduction in
dermatological admission making possible re-
duction in dermatological beds. The resulting
reduction of hospital expenses outweighs the
expenses of the free drugs and outpatient
facilities.
TILVITNANIR
1. A. Grimsson og Ó. Ólafsson. Lyfjanotkun í
Reykjavík. Læknablaðið 1977, 3-4:69-72.
2. Lyf á Islandi. Lyfjamáladeild Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytis 1976.
XVIII NORDISKA REUMATOLOG-
KONGRESSEN
1.—4. júní, 1980, Helsingfors, Finland
Kongresspresident: Prof. Otto Wegelius
Generalsekreterare: Docent Claes Friman
Korrespondens: XVIII Nordiska
Reumatologkongressen, Postbox 130,
00171 Helsingfors 17, Finland
37:e NORDISKA KONGRESSEN
för INTERNMEDICIN
Uppsala 9—11 juni 1980
Akademiska Sjukhuset. 75014 Uppsala
President Professor Harry Boström
Generalsekreterare Docent Jonas Boberg
Frekari upplýsingar á skrifstofu
læknafélaganna