Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.1979, Síða 8

Læknablaðið - 01.10.1979, Síða 8
228 LÆKNABLAÐIÐ kynþroska kvenfólk nema því séu um leið tryggðar öruggar getnaðarvarnir í næstu þrjá mánuði á eftir bólusetningunni. öll þessi þrjú rauðuhundabóluefni eru mun lélegri ó- næmisvakar en eðlileg rauðuhundasýking. Er því æskilegt að fylgst sé vandlega með ár- angri bólusetninga bæði hvað varðar fjölda þeirra, sem mynda verndandi mótefni eftir þær, magn og endingu mótefnanna og hlut- fall sýkinga hjá bólusettum, ef faraldrar ganga. Hér í blaðinu er nú að finna fyrsta þáttinn í slíkri langtíma könnun á árangri fyrstu rauðuhundabólusetningarinnar hér á landi. Takmarkið með rauðuhundabólusetningu er eingöngu útrýming fósturskemmda. Erlendis greinir menn á um leiðirnar að þessu marki. Sumir telja vænlegast til áragnurs að bólu- setja öll börn, bæði pilta og stúlkur, um tveggja ára aldur og álíta að þannig megi minnka hóp smitberanna í þjóðfélaginu og koma í veg fyrir sýkingar á eldri árgöngum og rauðuhundafaraldra. Aðrir vilja beina kröftunum eingöngu að bólusetningu ung- Iingsstúlkna í von um að mótefnin endist hverri einstakri til að verjast sýkingu á barn- eignaskeiði ævinnar. Enn er of snemmt að draga endanlegar ályktanir um varanlegan árangur þessara aðgerða. Pær eru allar yngri en 10 ára, þannig að ekkert barn bólusett á mjög ungum aldri er enn komið á barneigna- skeið og bólusetningar unglingsstúlkna hafa enn aðeins náð til fárra árganga. Greinilegt er þó, að víðtækar bólusetningar á ungum börnum hafa ekki dugað til að koma í veg fyrir afmarkaða rauðuhundafaraldra í eldri árgöngum, enda mikil bjartsýni að búast við að slíkt gagni með stórþjóðum, þar sem fólksflutningar eru tíðir milli staða og erfitt að ná til fólks. Hér á landi hófust reglulegar mótefnamæl- ingar gegn rauðuhundaveiru í blóði ófrískra kvenna fyrir 5 árum. Árið 1976 hófust um- fangsmikíar mótefnamælingar á unglings- stúlkum, undanfari þeirrar bólusetningar, sem lýst er hér í blaðinu. Grimmur rauðu- hundafaraldur sem hér herjaði síðasta árið og enn er virkur bætti umtalsverðum hópi við fjölda mældra kvenna. í vor var svo kom- ið að um helmingur þeirra 54.000 kvenna sem hér eru á aldrinum 12—45 ára hafði verið athugaður. Var þá ákveðið að ganga í að mæla hinn helminginn einnig og nota það einstaka tækifæri sem okkur gefst til að nýta til fulls þá tækni, sem tiltæk er í bar- áttunni gegn fósturskemmdum af völdum rauðra hunda. Hér verður í fyrsta skipti í sögu rauðuhundarannsókna gengið í að veita hverri einstakri konu á barneignaskeiði í heilu þjóðfélagi vitneskju um ónæmisástand sitt gegn rauðum hundum. Þeim mótefna- lausu verður síðan gefinn kostur á bólusetn- ingu, ef þær fallast á að nota öruggar getn- aðarvarnir í næstu 3 mánuði á eftir. Það er mjög mikilvægt, þar sem þunganir svo skömmu eftir bólusetninguna eru full ástæða til fóstureyðingar. Tveimur til þremur mán- uðum eftir bólusetningu er svo ætlunin að mæla mótefni og skrá árangur þessarar ó- næmisaðgerðar, svo að fylgjast megi með hverri bólusettri konu næstu árin á eftir bólusetningunni. Til viðbótar við þessa frum- vinnu er svo ætlunin að mæla mótefni hjá hverjum nýjum árgangi 12 ára stúlkubarna, bólusetja þær mótefnalausu og mæla árang- urinn með sama hætti. Með þessum aðgerð- um vinnst tvennt: í fyrsta lagi munu allar konur fá tækifæri til að þekkja ónæmisástand sitt, og þær sem myndað hafa eðlileg mót- efni þurfa engu að kvíða þó að þær séu ó- frískar þegar faraldrar aanga. Auðvelt mun reynast að fylgjast með endingu ónæmis eftir bólusetningarnar og gefa út aðvaranir ef bilanir verða. Beinn kostnaður við ofangreindar aðgerðir virðist vera minni en beinn kostnaður ís- lensks þjóðfélags vegna eins barns sem fæð- ist gallað af völdum rauðra hunda og þarf á aðstoð að halda til frambúðar. Margrét Guðnadóttir.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.