Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.1979, Page 19

Læknablaðið - 01.10.1979, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ 233 Table VII Visual fields. Functional status of 12^8 eyes with ojien angle glaucoma by males and females at tlie Glaucoma Clinic, St.Joseph's Hospital, Iceland. Males Females Number Number Both of of sexes eyes % eyes % % Incipient 282 43.7 350 58.2 50.6 Bjerrum scotoma 205 31.7 171 28.4 30.2 Arcuate scotoma 64 9.9 35 5.8 7.9 Terminal 48 7.4 23 3.8 5.7 Total blindness 47 7.3 23 3.8 5.6 Total 646 100.0 602 100.0 100.0 Mjög áberandi er hversu misjafnt sjúkdómur- inn herjar á augu hjá sama einstaklingi, annað augað getur verið með lítil sem engin einkenni og hitt með sjúkdóminn á háu stigi. Vable VIII Visual acuity of 62Jf patients witli open angle glaucoma (323 males, 301 females) at the Glaucoma Clinic, St.Joseph‘s Hospital, Reykjavík Iceland. Total eyes Better eye Both Both sexes Males Females sexes MalesFemales 6/6 37.3 36.5 38.2 46.4 47.1 45.7 6/9-6/15 30.5 26.8 34.5 37.0 32.8 41.4 6/18-6/36 13.3 13.9 12.6 12.0 13.3 10.6 6/60-LP Total 13.1 15.5 10.5 4.6 6.5 2.3 blindness 5.8 7.3 4.2 0.0 0.3 0.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 100.0 Sjónskerpa (með bezta gleri) meðal karla og kvenna er sýnd í 8. töflu. Er sjón skipt í flokka eftir skerpu: 6/6 er óskert sjón, 6/9—6/15 nokkur sjónskerð- ing, en læs á venjulegt bókarletur, 6/18—6/24 alvarlega skert sjón (partial sight) og getur viðkomandi ekki lesið nema stórt letur. 6/60 og minni sjón er skilgreining WHO á blindu, sem skiptist í starfsblindu og alblindu. Rúmlega 37% allra glákuaugna hafa fulla sjónskerpu, en rúmlega 46% sjúklinga er með 6/6 sjón á betra auga og er ekki marktækur munur milli kynja hvað þetta snertir. Um 68% allra glákuaugna hafa lestrarsjón (6/6—6/15) og um 83% einstaklinga á betra auga. Um 17% glákusjúklinganna eru því alvarlega sjónskert- ir þ.e. 6/18 eða minna á betra auga. Af 624 glákusjúklingum eru 29 starfsblindir (22 karl- ar og 7 konur). Um 4.6% glákusjúklinganna teljast því í flokki ,,blindra“. Alvarlega skert sjón á glákuaugum er algengari meðal karla, en kvenna, sbr. 8. töflu. Sjónskerpa í aldursflokkum meðal sjúk- linga með hægfara gláku öll augu og betra auga er sýnd á 3. mynd, bæði kyn saman. í aldursflokknum 50—59 ára eru 86% gláku- sjúklinga með fulla sjónskerpu, í aldursflokkn- um 70—79 ára um 38% og 80 ára og eldri um 13%. Sjóndepru gætir lítið fyrr en um sjötugt, en eykst hröðum skrefum, einkum þó eftir áttrætt, en þá er rúmlega þriðjungur allra sjúklinga kominn með alvarlega skerta sjón. Table IX Eye-diseases among 621/ open angle glaucoma patients (323 males, 301 females) at tlie Glaucoma Clinic, St.Josepli’s Hospitál, Reykjavík, Iceland. Males Females Cataract 84 96 Aphakia 37 27 Deg. macularis senilis 12 22 Retinopathia centralis 4 Hæmorrhagia retinae 2 2 Ablatio retinae 1 1 Trombosis v.centralis retinae 2 1 Occlusio a.centralis retinae - 1 Neuritis retrobulbaris, seqv. 1 Chorioretinitis seqv. 2 Uveitis ant. seqv. post op. 1 2 Keratitis dendritica, seqv. 1 1 Ulcus corneae, Mooren’s seqv. 1 Kerat.itis 2 Dystrophia cornea 1 Herpes zoster ophth. seqv. 1 Amaurosis post trauma 2 Nebula corneae post trauma 1 3 Ulcus rodens seqv. 1 Amblyopia ex anopsia 2 3 Retinopathia diabet.ica 1 152 166 Aörir sjúkdómar í glákuaugum. Aðrar orsak- ir sjóndepru meðal glákusjúklinga en þær, sem stafa af glákuskemmdum í sjóntaug eru taldir í 9. töflu. Langalgengust er drermyndun i augasteini (cataracta senilis sive complicata). 1 þessari athugun er skilgreining drers: Ský á augasteini, ef sjónskerpa er 6/9 eða minni af þess völdum. Af öllum glákusjúklingum eru 39.1% með drer á öðru eða báðum augum (37.5% karla og 40.9% kvenna) eða augasteinn verið numinn á brott. Næst algengasta orsök sjóndepru meðal glálcusjúklinga er ellirýrnun í miðgróf sjónu (degeneratio macularis senilis). Er þessi kvilli algengari meðal kvenna en karla (7.3% á móti 3.7%). Skilgreining þessa kvilla er: Sjónskerpa 6/9 eða minni með sýnilegum sjúklegum breyt- ingum í miðgróf. Með sykursýki á klinisku stigi voru 3 karlar og 3 konur (um 1%). Einn karlanna var með sjónskerðingu af völdum sykursýkisskemmda í sjónu.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.