Læknablaðið - 01.10.1979, Qupperneq 39
LÆKNABLAÐIÐ
245
Björg Rafnar
UM BÓLUSETNINGU GEGN RAUÐUM HUNDUM
INNGANGUR
Þegar tekin er upp almenn bólusetning
gagnvart smitsjúkdómi, þarf að taka af-
stöðu til eftirfarandi þátta:
A. Hvaða bóluefni á að nota.
B. Hverja á að bólusetja.
C. A hvaða aldri á að bólusetja til að ná
æskilegasta árangri.
Bólusetning gegn rauðum hundum er
nokkuð óvenjuleg, þar eð ekki er verið að
verja einstaklinginn sem bólusettur er,
heldur afkvæmi hans ófætt. Því er ending
mótefnanna, sem myndast, sérstaklega mik-
ilvægur þáttur í þessari bólusetningu.
A. Val á bóluefni.
Á vestrænum markaði eru nú aðallega
þrjár tegundir lifandi bóluefna gegn rauð-
um hundum. Tafla I sýnir uppruna þeirra
og gerð.
Fjórða bóluefnið er japanskt að uppruna.
Nefnist það TO-336, og er veiklað í fersku
naggrísnýra. Hefur það lítið sem ekkert
verið rannsakað og notað í hinum vestræna
heimi. f rannsókn Best1 * * * 5 gefur það bæði
góða mótefnamyndun í upphafi og tiltölu-
lega vægar aukaverkanir samanborið við
önnur bóluefni. Komið hafa fram kenning-
ar um, að þessi stofn ylli síður fóstur-
skemmdum en hin bóluefnin. Sé svo er
það stór kostur fram yfir önnur bóluefni,
en ekki hefur það verið staðfest. Mun
þetta bóluefni því ekki verða til frekari
umræðu hér.
Við val bóluefnis gegn rauðum hundum
verður að taka tillit til:
1. Mótefnamyndunar.
2. Aukaverkana við bólusetningu.
3. Endingar mótefna og endursýkingar-
tíðni eftir bólusetningu.
4. Smithættu frá þeim nýbólusettu, þar
sem öll þóluefnin eru lifandi.
5. Fósturskaða, sem bóluefnin geta vald-
ið í nokkrar vikur eftir bólusetning-
una.
1. Mótefnamyndun og inngjöf bóluefnis.
Bæði við eðlilega sýkingu og bólusetn-
ingu koma fram mismunandi tegundir mót-
efna í blóði. Helstu tegundir þeirra eru:
a) hemagglutininþindandi mótefni (HI-
mótefni), b) neutraliserandi mótefni (N-
mótefni), c) komplementbindandi mótefni
(CF-mótefni), d) þeta — og e) iota mót-
efni. IgA slímhúðarmótefni eru einnig
mjög mikilvæg.
Hl-mótefni.
Hl-mótefni koma undantekningarlaust
fram eftir eðlilega rauðu hunda sýkingu.
Þau eru ekki hin eiginlegu vemdandi mót-
efni. Verndandi eru neutraliserandi mót-
efni (N-mótefni), en nær 100% fylgni er
milli HI og N-mótefna eftir eðlilega sýk-
ingu. Síðan auðveld aðferð fannst til að
mæla Hl-mótefni, hafa þau verið notuð til
TAFLA I
Helstu rauðu liunda bóluefni
1. Cendehill stofn: Ræktaðist úr þvagi barns með
Cendevax rauða hunda 1963. Sáð x3 í
Vervet Monkey Kidney (VMK).
Sáð í x51 Primary Rabbit Kidn-
ey (PRK).
2. RA 27/3:
Almevax
3. HPV-77
Ræktaðist úr veiku fóstri 1964.
Sáð x3 í vef úr mannsfósturs-
nýra (HEK).
Sáð xl7—x25 í mannafibroblasta.
Wistar Institute 38 (Wi—38).
Hiti við seinni ræktanir 35°C—
30°C.
Ræktaðist úr hermanni með
rauða hunda 1961. Sáð x77 í
Vervet Monkey Kidney (VMK).
4. HPV-77 DE5:
Meruvax
Gert úr HPV-77 að viðbættum 5
sáningum í andafóstur (DE).