Læknablaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 42
248
LÆKNABLAÐIÐ
in vekur. Tekist hefur að rækta veiru úr
nefkoki eftir bóluseitningu undir húð með
öllum bóluefnunum. Einnig er hugsanleg-
ur munur á mótefnavekjandi hæfileikum
bóluefnanna, þ. e. a. s. að RA 27/3 hafi
mótefnavaka, sem horfið hafi við veiklun
hinna tveggja bóluefnanna. Má í því sam-
bandi vekja athygli á, að RA 27/3 er eina
bóluefnið sem virkt er við intra nasal
gjöf3 56 8e. Gætu hin, bóluefnin við veiklun
hafa misst hæfileika til að ná fótfestu í
slímhúð nefkoks og til að vekja þar stað-
bundna mótefnamyndun.
Sem dæmi um þessa mismunandi mót-
efnasvörun má að lokum nefna athugun
Horstmann o. fél.43 á hermönnum frá
Hawaii. í þeim hópi voru a) 149 með mót-
efni eftir eðlilega sýkingu, b) 15 menn
bólusettir með Cendehill, c) 26 neikvæð-
ir menn. Voru mæld HI-, CF-, theta- og
iota-mótefni. í hópi a) höfðu allir HI- og
theta-mótefni (57/57 = jákvæðir menn/
mældir alls). 81/130 höfðu CF-mótefni
og 32/57 höfðu iota-mótefni. í hóbi b) höfðu
6/15 CF-mótefni, en enginn iota-mótefni af
15 bólusettum. Að nokkrum tíma liðnum
höfðu allir 26 neikvæðir í hópi c) myndað
öll þessi mótefni (9 veiktust, 17 sub-klinisk-
ar sýkingar). Af hinum 15 bólusettu höfðu
10 fengið fjórfalda Hl-mótefnahækkun eða
meiri, þ. e. endursýkingu og allir þessir
15 höfðu myndað io-ta mótefni. Fimm menn
með mótefni eftib eðlilega sýkingu fengu
endursýkingu. Voru þeir allir án CF- og
iota-mótefna fyrir endursýkingu, en fjórir
mynduðu CF-mótefni og iota-mótefni við
TAFLA II
Geometric
mean titer
Aldur Fjöldi HPV
einstakl. ein- Cende- -77 RA
Höfundar (í árum ) stakl. hill DE5 27/3
Grillner o.fél.**2 full- orðnir 511 32 39 51
Böttinger o.fél.it 12—14 906 82 73 185
Enell o.fél.20 12—14 384 104 139 218
Carlsson o.féH^ full- orðnir 158 56 72 118
Fogel o.fél27 13—17 82 92 116 170
Zealey o.fél.80 14 2004 98 162
Wallaco o.fél.80 5—6 49 56.1 64.0
Best o.fél.5 17—32 107 39.3 63.1 61.9
hana. Auk þess hafði Hl-mótefnamagn
þeirra verið mikið lægra en hinna eða
GM gildi 27.6 á móti GM gildi 101 hjá
þeim sem vörðust endursýkingu. Virðist
því af þessu sem myndun, magn og var-
anleiki allra þessara mótefna hafi ein-
hverja þýðingu hvað snertir vörn, þó að
ekki sé vitað á hvern hátt.
Hvað snertir gjöf bóluefnis er aðeins
hægt að gefa RA 27/3 bæði um nef og undir
húð3 10 2H66 68 e7. Myndun mótefna við gjöf
um nef er líkari mótefnamyndun eftir
eðlilega sýkingu. Þó hafa rannsóknir leitt
í ljós að meiri hætta er á, að bólusetning
mistakist og engin mótefnamyndun eigi
sér stað við gjöf um nef10 27 Getur þar
skipt máli, að t. d. aukið nefrennsli vegna
kvefs geti varnað veiru að ná fótfestu í
nefkoki. Eihnig þarf betri samvinnu við
einstakling til að bólusetning um nef tak-
ist. Ber sérstaklega að athuga þetta þeg-
ar börn eru bólusett. Er gjöf bóluefnis
undir húð því öruggari.
2. Aukaverkanir.
Þær aukaverkanir, sem koma fram við
bólusetningu gegn rauðum hundum eru
flestar hinar sömu og einkenni eðlilegrar
sýkingar. Helstar eru hiti, hálssæri'ndi, út-
brot og eitlastækkanir, liðeinkenni og
skyntruflanir.
Örfáir sjúklingar hafa verið skráðir,
þar sem alvarlegur útbreiddur myelitis
hefur fylgt rauðu hunda bólusetningu. í
a. m. k. tveim af þrem sjúklingum var um
varanleg mein að ræða. Hjá engum þei'rra
er þó hægt að segja með vissu, að bólu-
setningin hafi valdið þessum einkennum,
en vissulega ber að hafa þetta í huga við
almenna bólusetningu4 42.
Tíðni aukaverkana við bólusetningu er
háð aldri einstaklingsins og er þetta í sam-
ræmi við einkenni eðlilegrar sýkingar.
Gildir þetta um öll þrjú bóluefnin, þó að
munur sé á tíðni við samanburð þeirra.
Hefur athygli beinst mest að liðverkjum,
liðbólgum og skyntruflunum þar eð hinar
aukaverkanirnar eru mjög mildar. Tví-
vegis hefur tekist að rækta veiru úr lið-
vökva eftih bólusetningu, í annað skiptið
4 mánuðum eftir bólusetningu62 8I. Rann-
sóknir á börnum bólusettum með RA 27/3
sýna ýmist mjög lítinn eða engan tölfræði-