Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 2
Snorri segist hafa bundið miklar vonir við ljósleiðara sem lagður var að Reykholti árið 2001. Sá ljósleið- ari liggur ónotaður. „Nú ætlar rík- ið að setja peninga í hraðvirkt net- samband um byggðir landsins þar sem það hefur vantað. Við óttumst að verða útundan af því að við höf- um þessa svokölluðu háhraðateng- ingu sem ekki hefur virkað nógu vel,“ segir hann. Ríkisstjórnin lofar úrbótum Í september 2005 lofaði rík- isstjórnin að verja 2,5 milljörð- um af söluandvirði Landssímans til uppbyggingar á fjarskiptaþjón- ustu. Í tilkynningu frá samgöngu- ráðuneytinu þann 14. september 2005 segir að meðal annars eigi að „...efla stórlega aðgang landsbyggð- arinnar að háhraðatengingum“. Í þessu skyni var settur á fót sér- stakur fjarskiptasjóður og úr hon- um átti að veita einum milljarði til þessara mála, strax árið 2005. Eftir- stöðvarnar kæmu svo með jöfnum greiðslum árin 2007 til 2009. Ráðherrann ekki inni í málinu „Ég þarf að vera með móttak- ara á þakinu sem kostar tuttugu þúsund. Út úr þessu kemur algert skítasamband fyrir fimm eða sex þúsund krónur á mánuði, svo dett- ur þetta út í miðju niðurhali,“ segir Guðmundur Ólafsson hagfræðing- ur. Hann hefur nú aðsetur í Reyk- holti og hyggst stunda hluta af sinni vinnu þaðan með aðstoð netsins. „Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra er ekkert inni í þess- um málum. Hér eru tveir háskól- ar og fleiri menntastofnanir. Svo er þetta úr lagi heilu helgarnar. Þeg- ar Landssíminn var seldur átti allt að verða svo gott og fínt. Það hef- ur ekki verið staðið við neitt,“ segir Guðmundur. Rannsóknir í 24 ár Norðurljósarannsóknir í Borg- arfirði hafa verið stundaðar síð- an 1983 undir forystu Dr. Natsuos Sato frá japönsku pólrannsóknar- stofnuninni. Um er að ræða sam- anburðarrannsóknir þar sem Jap- anar reka aðra rannsóknarstöð á Suðurskautslandinu. Rannsóknar- stöðin hér á landi er rekin í sam- vinnu við Raunvísindastofnun Há- skóla Íslands. föstudagur 19. janúar 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is SigtRygguR aRi jóhannSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Dæmd fyrir dópsmygl Rúmlega þrítug kona var dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að skipuleggja innflutn- ing á tæplega tveimur kílóum af kókaíni síðastliðið sumar. Þrír karlmenn sem ýmist hjálp- uðu til við skipulagningu eða smygl fengu þriggja ára fang- elsi hver. Þá fékk burðardýrið, 18 ára stúlka, þriggja ára skil- orðsbundinn dóm. Ungur ald- ur, hreint sakavottorð og fíkni- efnameðferð voru metin til léttari refsingar hennar. Prófkjörsslagur í Suðurkjördæmi Prófkjör Framsóknarflokks- ins í Suðurkjördæmi er laug- ardaginn 20. janúar. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð- herra er sá eini sem býður sig fram í fyrsta sæti en þrír fram- bjóðendur berjast um annað sætið. Það eru Björn Bjarndal Jónsson skógarverkfræðingur, Eygló Harðardóttir fram- kvæmdastjóri og Bjarni Harð- arson bóksali. Þrír frambjóð- endur gefa kost á sér í þriðja sætið, þau Elsa Ingjaldsdóttir framkvæmdastjóri, Kjartan Lár- usson sauðfjárbóndi og Guðni Sighvatsson nemi sem býður sig fram í þriðja til fjórða sæti. Lækkandi verðbólga Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir 3,8% meðalverð- bólgu á þessu ári í endur- skoðaðri þjóðhagsspá sinni. Gert er ráð fyrir að verð- bólgan nái 5% markmið- um Seðlabanka Íslands um mitt árið. Á næsta ári er síð- an búist við að verðbólgan hjaðni niður í 2,3%. Hagvöxt- ur verður lítið eitt minni en á nýliðnu ári og atvinnuleysi eykst lítillega en ráðuneytið efast um að það fari ofar en 2,2% að meðaltali yfir árið. Fríblöð valda bréfberum Íslandspósts erfiðleikum. Vandinn er þekktur í Danmörku: Fríblöð valda vandræðum „Fullir póstkassar af einhverjum blöðum valda okkur oft vanda,“ seg- ir Anna Katrín Halldórsdóttir, fram- kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Íslandspósts. Bréfberar Íslandspósts hafa ekki alltaf getað borið út póst í fjölbýlishúsum vegna aukins magns af blöðum sem sett eru óumbeðið í póstkassana. „Fríblöðin eru komin í kassana þegar bréfberar okkar koma. Þá eru kassarnir einfaldlega orðnir fullir, þeir eru of litlir fyrir allt þetta magn sem sett er í þá,“ segir Anna. Þeir sem ekki tæma póstkassa sína reglulega fá orðsendingu þess efnis að bréfberar geti ekki borið út póstinn og því verði þeir að hringja í þjónustuver Ís- landspósts til þess að nálgast póstinn sinn. Samkvæmt frétt Politiken er þolinmæði danska sam- göngumála- ráðherrans gagnvart frí- blöðum á þrot- um. Hann hefur gefið það út að ef ekki verði búið að koma dreifingunni í lag fyrir 1. apríl verði lög sett um starfsemi blaðanna. Í Politiken segir að kvartanir hafi hrann- ast inn til danska neytendaráðsins frá fólki sem hefur frá- beðið sér fríblöð en fær þau samt. Í Dan- mörku fjölgar sífellt þeim póstkössum sem merktir eru sérstak- lega með límmiðum sem afþakka fríblöð. Póstur sendi dreifibréf Þeir sem eiga fulla póstkassa fá þessa orðsendingu frá póstinum. anna Katrín halldórsdóttir Póstkassarnir eru troðnir af óumbeðnum blöðum og almennur póstur kemst illa eða ekki fyrir. Stopult netsamband í Borgarfirði truflar gagnasendingar vísindamanna japönsku pólrannsóknarstofnunarinnar. Snorri jóhannesson óttast að Borgfirðingar verði horn- reka í áformum ríkisins um úrbætur. Dyr Framsóknar lokaðar Framsóknarmenn sem ætluðu að kjósa utan kjör- fundar í prófkjöri komu að lokuðum dyrum á Selfossi á þriðjudaginn. Eitthvað hafði þá misfarist við að manna kjörstaðinn og opnuðust dyr Framsóknarhússins ekki fyrr en tveimur og hálfum tíma eftir auglýstan tíma. Kjör- fundur í prófkjörinu er á morgun, laugardag, en talið verður á sunnudaginn. Ár- mann Ingi Sigurðsson í kjör- stjórn segir það gert vegna þess að kjördæmið sé stórt og eins og komið hafi í ljós geti tekið sinn tíma að koma öllum atkvæðum á einn stað. „Það kemur fyrir að rannsóknargögnin komast ekki sína leið. Þessi tenging skilar ekki þeim hraða sem um var talað, fyrir utan að bilanir eru tíðar,“ segir Snorri Jóhannesson, bóndi á Augastöð- um í Borgarfirði. Japanska pólrannsóknarstofnunin hefur að- stöðu fyrir norðurljósamælitæki á Augastöðum og þarf að reiða sig á gagnaflutninga um internet frá Borgarfirði. Netsamband spillir norðurljósarannsóknum norðurljósin yfir Íslandi eru aðdráttarafl á fjölda ferðamanna til landsins Því miður gengur stundum illa að senda upplýsingar um þau á netinu. Snorri jóhannesson bóndi á augastöðum í Borgarfirði Hefur áhyggjur af því að verða útundan þegar hraðvirkt netsamband kemur til „ég þarf að vera með móttakara á þakinu sem kostar tuttugu þúsund. Út úr þessu kemur al- gert skítasamband fyrir fimm eða sex þúsund krónur á mánuði.“ guðmundur ólafsson hagfræðingur og íbúi í Reykholti „Ég þarf að vera með móttakara á þakinu sem kostar tuttugu þúsund og úr honum kemur algjört skítasamband.“ Norðurljósarannsóknir líða fyrir slæmt netsamband
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.