Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 78
FÖSTUDAGUR 19. jAnúAR78 Helgarblað DV
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-þjónn lögreglunnar á höfuð-borgarsvæðinu, hefur löngum
vakið athygli fyrir alúðlega og alþýð-
lega framkomu. Hann á auðvelt með
að ræða við háa sem lága og heldur
fast í kristna trú sína á sinn einstaka
hátt. Hann hefur trú á að hægt sé að
bjarga mun fleirum úr klóm fíkniefna
með hárbeittum og markvissum að-
gerðum.
Kominn á fætur eins og venju-lega eftir góðan svefn í nýja rúminu frá Svefni og heilsu.
Undirbúningur fyrir daginn hefst með
því að eiga gott samtal við Skaparann
minn, sem er alveg
ómissandi á hverj-
um morgni. Þá tek
ég fram heilaga ritningu og fæ þar
andlegt fóður og svo Morgunblaðið á
eftir. Þar með hef ég nært mig ágæt-
lega andlega.
Líkamlega næringin var næst, með
því að fara í Graf-
arvogslaug og synda þar að lágmarki
500 metra og svo gott spjall við sund-
vini mína í heita pottinum.
F undur með mínum þar sem farið var
yfir það helsta sem gerðist um helg-
ina. Sem betur fer var helgin bara
nokkuð róleg eða mun færri afbrot en
um venjulega helgi.
V enju-bundnu verk voru
næst. Það er að svara símtölum sem
eru að jafnaði 20-40 hvern virkan dag.
Ætlaði að taka mér matar-tíma en eins og svo oft gafst nú lítill tími til svo-
leiðis hugleiðinga
enda þurftu nokk-
uð margir að ræða við mig málin
þennan dag.
V inn í máli aðila sem illa er farinn af neyslu fíkniefna en því miður berast okkur mörg
þannig tilfelli. Að-
standendur í ör-
vinglan leita til
okkar um hjálp og reynum við eins og
okkur er fært að kanna hvað hægt er
að gera svo bjarga megi mannslífum.
Ástandið hefur frekar versnað og tök-
um við það inn á okkur að sjá allt of
margt ungt fólk illa farið af neyslu örv-
andi efna og komið á kaf í innbrot. Því
brennur nú mjög á að finna góð neyð-
arúrræði sem virka, því ég veit að hægt
er að bjarga svo mörgum með hár-
beittum og markvissum aðgerðum.
V inna í skýrslugerð, en það hef-ur beðið hjá mér vegna anna og síðan ætlaði ég að verða
klár á kóræfingu hjá Lögreglukórnum
kl. 17.00. Þá bár-
ust þau tíðindi að
vegna veikinda félli æfingin niður og
þá var ekkert annað að gera en halda
áfram að vinna í verkefnum.
T ími til að fara heim því kvöld-
maturinn beið mín. Hundurinn tók
fagnandi á móti mér og síðan aðrir
heimilisfastir og kvöldmaturinn. Síð-
an ætlaði ég nú bara að taka því rólega
og horfa á sjónvarpið en eins og svo
oft áður lagðist yfir mig svefndrungi
og konan sagðist hafa þurft að þola
hrotublástur fram eftir kvöldi. Gengið
var til náða um miðnættið.
Dagur í lífi
Geirs Jóns Þórissonar
Mánudagur 15. janúar
kl. 5.30
kl. 16.00
að lokum
kl. 18.45
kl. 8.30
kl. 6.30
Trogsöðull
Sigurður H. Guðjónsson skrif-
ar góðar greinar um
fasteignir, hina
síðustu um, að
skillitlir blekki
aðra með
skrúði í klæð-
um og bílum.
Líka er hægt
að blekkja á hinn
veginn, svo sem seg-
ir í Eyrbyggju: „Þorleifur keypti
þann hest er hann fékk bestan.
Hann hafði og steindan söðul
allglæsilegan. Hann hafði búið
sverð og gullrekið spjót, myrk-
bláan skjöld og mjög gylltan,
vönduð öll klæði. En Snorri var í
svartri kápu og reið svörtu mer-
hrossi góðu. Hann hafði fornan
trogsöðul og vopn lítt til fegurð-
ar búin.“ En innan klæða hafði
Snorri goði sjóð, sem hann not-
aði til að ná Helgafelli af Berki
digra.
Tabú
Forustufólki Sjálfstæðisflokksins
er illa við, að talað sé og skrifað
um nýja mynt á Ís-
landi. Að hætti
Davíðs gamla
er sagt, að
spjall um
evru jaðri
við landráð.
Það tali niður
krónuna og geri
hagstjórn erfið-
ari. Hvaða hagstjórn? Auðvitað
er það nær landráðum að sigla
á fylleríi með hagkerfið, heldur
en að leyfa sér að ræða breytta
mynt. Þótt Davíð sé hættur, tel-
ur forustufólk flokksins enn, að
það geti einhliða ákveðið, hvað
megi ræða og hvað ekki. Auðvit-
að á að fjalla sem mest um tabú
á borð við evru og Evrópusam-
band, Írak og Afganistan, varnir
og hleranir.
Klisjur
Pólitíkusar okkar tala undarlega
staðlað mál. Þeir segja, að mál-
flutningur í öðrum flokkum sé
„mikill misskiln-
ingur“. „Allir
viti“, að hin
og þessi mál
séu „ekki til
umræðu“.
Menn í öðr-
um flokkum
hafi „ekki unnið
heimavinnuna sína“ og „rjúki
upp til handa og fóta“. Enda séu
þeir „andstæðingar okkar“ og
„stundi málþóf“ af minnsta til-
efni. Þeir „slái pólitískar keilur“,
sem „veki undrun almennings“,
þegar þeir „máli skrattann á
vegginn“. Auðvitað séu allir þess-
ir aðilar „ábyrgðarlausir“. Sam-
eiginlegt einkenni
þessa orðavals
er, að alla
röksemda-
færslu
skortir.
jonas@hestur.is
Laddi sextugur, hann er að
verða jafngamall og Þórður
húsvörður!
Áfram frost um land allt
„Já, ég á níu texta af þessum tut-
tugu og fjórum,“ sagði Kristján, sem
var á leið í hljóðver síðdegis í gær
þegar DV náði tali af honum. „Það
hlýtur að vera heimsmet að sami
maðurinn eigi meira en þriðjung
þeirra lagatexta sem fluttir eru í
keppni sem þessari!“
En eru þeir þá ekki allir eins; hver
öðrum líkur?
„Nei, þeir eru alls ekki líkir. Þeg-
ar maður hefur möguleika á að skila
af sér níu mismunandi textum, þá
segir það sig sjálft að þeir fjalla um
allt milli himins og jarðar; allt milli
draums og veruleika – að öllu með-
töldu.“
Eru þetta textar sem þú áttir á
lager?
„Nei, ekki aldeilis. Hver texti er
saminn sérstaklega fyrir hvern laga-
höfund.“
Kristján er Kópavogsbúi sem
fluttist búferlum tvítugur, en segist
ekki sækja innblástur á æskustöðv-
arnar.
„Ég tók innblásturinn með mér
úr Kópavoginum og textarnir mín-
ir eru allir samdir í Skerjafirðinum,
þangað sem ástin bar mig. Ástin
hefur reyndar dregið mig víða um
heim og plantaði mér niður í Skerja-
firðinum.“
Svo varðstu fimmtugur fyrir hálf-
um mánuði...
„Já, og bauð öllum sem vildu
koma heim til mín í veislu. Ástin
mín og vinkonur hennar tvær sáu
um veisluhöldin; ég fékk bara að
njóta og þetta var einn besti dagur-
inn í lífi mínu. Það var meðal annars
boðið upp á rússneskar pönnukök-
ur, blini, sem eru skonsur með rauð-
lauk, sýrðum rjóma og kavíar. Og svo
fékk fólk kaffi og Sprite með sítrónu
að hætti hússins. Svo ég orði þetta
eins og Pétur heitinn Kristjánsson,
sem hefði orðið 55 ára þennan sama
dag: „Það komu á þriðja hundrað
kvikindi í veisluna.““
Í söngvakeppninni í fyrra átti
Kristján fjóra texta, þannig að hann
er að toppa sjálfan sig hressilega að
þessu sinni.
„Ætli það endi ekki með að ég gefi
út þrettán laga plötu í sumar með
textunum úr söngvakeppnunum
2006 og 2007?“ segir hann hlæjandi.
Þér hlýtur að þykja vænna um
einn texta en annan af þessum níu?
„Það er fullkomlega ómögulegt
að taka einn fram yfir aðra.“
En samt hlýtur þér að þykja einn
bera af?
„Já, ég neita því nú ekki,“ svarar
hann og skellihlær. „Hins vegar get
ég ekki sagt hvaða texti það er, Anna
mín!“
Ertu tilbúinn að semja fyrir okk-
ur eina vísu með einni ljóðlínu úr
hverjum þeirra?
„Já, gefðu mér tuttugu mínút-
ur...“
Fimmtán mínútum síðar hringdi
hann og sagðist vera með atómljóð:
Orðin komu aldrei, örlagadís
en ég les í lófa þínum bjarta brosið.
Þú ert eitt símtal í burtu,
húsin hafa augu
og villtir skuggar sýna mér
kl. 10.00
Undanúrslitakeppni RÚV fyrir Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva hefst í Sjónvarpinu annað kvöld þegar fyrstu átta lög-
in verða flutt.
„Ekki er annað að sjá um helgina
en áfram verði frost á landinu. Dálítil
lægð verður hér suður undan á laug-
ardag og hæð jafnframt yfir Græn-
landi. Því verður norðaustlæg átt og
strekkingsvindur víða um land,“ segir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing-
ur um horfur næstu daga.
Hann segir óvíst með hve víða
snjói. Ofankomu sé þó spáð á norð-
anverðum Vestfjörðum og austan- og
suðaustanlands.
„Meiri vafi leikur á með Norð-
urland, hvort þar verði snjókoma
sem heitið getur. Á sunnudag er síð-
an reiknað með að norðuráttin verði
frekar hæg. Utan Norðausturlands,
þar sem búast má við smáéljum, er
spáð björtu og fallegu vetrarveðri
á landinu með nokkru frosti inn til
landsins,“ segir Einar.
Nú er búið að opna öll skíðasvæði
landsins og til stendur að opna í Blá-
fjöllum nú um helgina.
„Það verður fyrirtaks útivistarveð-
ur, sérstaklega á sunnudag, en einn-
ig á laugardag, sérstaklega um land-
ið sunnanvert og ef til vill víðar þótt
sums staðar verði fólk að klæða vel af
sér næðinginn. Eftir helgina, það er á
þriðjudag, gæti síðan brugðið til blota
á landinu, en hvort hann boði breyt-
ingar á kaldri vetrartíðinni skal ósagt
látið. Í það minnsta eru verulegar lík-
ur á hláku í einhverri mynd um miðja
vikuna.“
Kristján Hreinsson á
níu texta í eurovision
kl. 13.30
kl. 12.00
veðrið um Helgina ritstjorn@dv.is
Laugardagur
2
2
5
1
3
1
3
3
3
2
7
5
510
3
5
3
2
2
4
5
4
6
3
3
5
2
3
5
5
4
5
2
5
3
8
3
Sunnudagur
6
3