Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 50
föstudagur 19. janúar 200750 Sport DV H m í þ ýs k a l a n d i 2007 Ingibjörg Ragnarsdóttir: Er að fara á sitt ellefta stórmót með landsliðinu Ingibjörg Ragnarsdóttir er kon- an á bak við tjöldin hjá íslenska landsliðinu. Hún hefur verið með landsliðinu frá því á HM í Frakk- landi 1999. Strákarnir okkar leita til Ingibjargar með ýmis vandamál enda er hún eina konan í hópnum. Hún lýsir venjulegum degi á stór- móti svona: „Ég vakna mjög snemma og tek allt til sem þarf að nota á æfingunni sem er yfirleitt um morguninn. Síð- an eftir æfinguna er nudd og eitt- hvað tilheyrandi en þetta er sam- felld dagskrá allan sólarhringinn. Dagskráin felst í því að sinna strák- unum í liðinu, hvort sem það er að nudda þá, gera við vesti og bún- inga, en ég stoppa nú ekki í sokka,“ segir þessi brosmilda kona. Það getur oft tekið á taugarnar að sitja á bekknum í hvaða íþrótta- grein sem er en Inga segist sitja pollróleg við hliðina á æstum lýðn- um á varamannabekknum. „Ég er sú rólegasta á bekknum og ég haggast aldrei, ég leyfi bara hinum að æsa sig.“ Ingibjörg og Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hafa áður unnið saman en Inga var konan á bak við tjöldin hjá KA-liðinu í handbolta, þegar Alfreð var þar við stjórnvöl- inn. „Alfreð sagði við mig fyrir alveg skelfilega mörgum árum að það væri ekki mitt hlutverk að æsa mig og ég hef bara alltaf haldið mig við það. Hins vegar fer púlsinn upp, ég viðurkenni það.“ Inga segir að starf hennar sé aldrei leiðinlegt en hins vegar séu þetta miklar tarnir. „Þetta er töluvert stress og langir dagar en þetta er aldrei leiðinlegt. Það er líka svo gott fólk að vinna með liðinu.“ Ingu líst vel á heimsmeistara- mótið og er bara nokkuð bjartsýn. „Mér líst feykilega vel á mótið, ég held að við eigum eftir að koma ánægjulega á óvart. Þetta er gott lið með mörgum sterkum einstakling- um og þetta er mjög góður hópur. Ég er viss um að það verður þægi- legt flug heim frá Þýskalandi,“ segir þessi hressa kona að lokum. benni@dv.is Ingibjörg Ragnarsdóttir Er á leið á sitt ellefta stórmót og líst vel á HM sem er fram undan. Stuðningssamtökin Í blíðu og stríðu voru stofnuð föstudaginn 12. janúar með pompi og prakt. Sam- tökin heita stuðningi við íslenska landsliðið hvað sem bjátar á. Heið- ursstjórn félagsins er ekki af verri endanum en hana skipa: Sigurður Valur Sveinsson, handboltakempa Elva Ósk Ólafsdóttir, leikkona Árni Pétur Jónsson, forstjóri Vodafone Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Jakob Sigurðsson, framkvæmdastjóri og fyrrverandi handboltamaður Magnús Skúlason, geðlæknir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Geir H. Haarde, forsætisráðherra Í tilefni af stofnun félagsins voru gef- in út „boðorðin tíu“ og stofnuð heima- síða þar sem Íslendingar geta skráð sig og tekið þátt í að styðja strákana. Á heimasíðunni mun síðan landslið- ið blogga á meðan keppninni stendur. Slóðin er ibliduogstridu.is StuðningS- boðorðin 10 Við lítum á okkur sem „stuðn- ingsmenn“ – en ekki „áhangendur“. Við vitum að stuðningur okkar er mikilvægur fyrir liðið og getur haft mikil áhrif á árangur þess. Við vitum að stuðningur er ekki síst nauðsynlegur í stríðu – ekki bara í blíðu! Við gerum okkur raunhæfar vænt- ingar. Við teljum það ekki minnimáttar- kennd að taka það með í reikninginn að 300 þúsund manna þjóð er að keppa við milljónaþjóðir. Það er bara viðurkenning á stað- reyndum. Við gerum þá kröfu til landsliðs- ins að það „haldi haus“ í mótlæti, og skuldbindum okkur til þess að gera slíkt hið sama. Við heitum því að yfirgefa ekki skútuna ef miður gengur – við heit- um því að halda út allt til enda og sýna „úr hverju við erum gerð“. jákvæður stuðningur er skemmti- legur og gefandi – ekki bara fyrir landsliðið heldur líka okkur stuðn- ingsmennina og þjóðarkarakterinn. Við getum ekki öll orðið landsliðs- menn – en við getum orðið stuðn- ingsmenn – í blíðu og stríðu. sama hvernig gengur og sama hvernig fer – þá lofum við alltaf einu: Við höfum ánægju af leiknum. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice- landair er í stjórn Í blíðu og stríðu og er mikill handboltaáhugamaður. Hann er bjartsýnn á gott gengi í Þýskalandi. „Mér líst vel á mótið, þetta er örugg- lega eitt besta landslið sem við höfum nokkurn tímann átt. Það er líka mik- ilvægt að við stöndum þétt að baki landsliðinu. Við Íslendingar höfum ekki verið þekktir sem góðir stuðn- ingsmenn og erum yfirleitt byrjaðir að rakka liðið niður í hálfleik ef það geng- ur illa, en það á bara að hafa gaman af þessu.“ benni@dv.is Hressilegur og jákvæður stuðningur eflir ekki aðeins landsliðið heldur stuðningsmennina sjálfa og þjóðina alla. Stuðningurinn Skiptir máli Fríður hópur jón Karl Ólafsson, Halla tómasdóttir, sigurður sveinsson, Elva Ósk Ólafsdóttir og geir H. Haarde.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.