Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 48
föstudagur 19. janúar 200748 Sport DV
H m í þ ýs k a l a n d i 2007
Útsala
20-50% afsláttur
Langholtsvegi 111, 104 Rvk. Sími 568 7900
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-16
30% afsláttur af rúmum
Nýtt kortatímabil
Baðsloppar
20% afsláttur
Handklæði
30% afsláttur
Rúmteppasett
20-40% afsláttur
Sængurfatnaður
20% afsláttur
rafstillanleg og hefðbundin.
Snorri Steinn Guðjónsson leik-
stjórnandi og róbert gunnarsson línu-
maður þekkjast vel. Þeir voru saman í
fjölbrautaskólanum við Ármúla og hafa
verið herbergisfélagar með landsliðinu í
fimm ár, frá því á EM í svíþjóð og þeir fé-
lagar telja þrjá mánuði þar sem þeir hafa
búið saman.
„Þetta hefur verið góð sambúð og við
erum eins langt frá skilnaði og hugsast
getur, við pælum ekki einu sinni í öðrum
herbergisfélögum,“ segir snorri.
„Í blíðu og stríðu á ekki við hjá okk-
ur, heldur einungis í blíðu – það er ekk-
ert stríð. Við kippum okkur ekki einu sinni
upp við hvort það er eitt rúm eða tvö í
herberginu, þó að snorri vilji hafa tvö,“
bætir róbert við.
Einu illindin á milli þeirra félaga er
þegar þeir spila Playstation og þar verður
fIfa-leikurinn fyrir valinu. “Við spiluðum
50 leiki á EM í sviss og þar enduðu leikar
25-25, og núna í danmörku unnum við 4
leiki hvor, en það er hiti í þessu, við viljum
báðir vinna,” segir snorri.
„Okkar styrkur er klárlega að ef ég
er góður í einhverju þá er snorri góður í
því líka og ef ég er lélegur í einhverju þá
er snorri lélegur í því,“ bætir róbert við.
Það má til sanns vegar færa en þeir fé-
lagar voru afbragðs knattspyrnumenn.
róbert var í marki með fylki og KVa og
þótti öflugur á milli stanganna. snorri lék
sem framherji og þótti afar markheppinn
og er undantekningarlaust markahæstur
þegar landsliðið hitar upp í fótbolta. Hins
vegar eru þeir slakir í körfubolta.
Ingibjörg ragnarsdóttir sjúkranuddari,
sem átti leið framhjá þar sem blaðamaður
ræddi við þá félaga bætir við að herbergi
þeirra sé einnig alltaf snyrtilegt. „Það er
alltaf snyrtilegt hjá okkur, það er snorra að
þakka,“ segir róbert. „Það er ákveðið mottó
þegar maður er í landsliðsferð sem er að
hafa ekki drasl í kringum sig, þess vegna
tökum við reglulega til, annað en í hinum
herbergjunum,“ segir snorri og hlær.
Markús Máni Michaelsson Maute lék upp alla yngri flokka
Vals áður en hann söðlaði um og gekk í raðir düsseldorf í þýsku
deildinni. Eftir 2 ár í Þýskalandi ákvað hann að koma heim og þá
kom fátt annað til greina en að spila með Val. Hann hefur leikið
vel með Valsliðinu í vetur, en það trónir á toppi dHL-deildarinnar
hér heima. Markús vinnur hjá straumi-Burðarás og líkar lífið vel
hér á Íslandi. Hann kláraði viðskiptafræði í Háskóla Íslands áður
en hann fór út til düsseldorf, en viðurkennir að það hafi verið
töluverð viðbrigði að koma heim og byrja að vinna.
„Það er náttúrulega öðruvísi að koma inn í landsliðið sem
heimamaður en ekki atvinnumaður, munar þar mestu um bíla-
leigubílinn,“ segir hann og hlær. „Það eru náttúrulega kröfur í
vinnunni líka og ég hef metnað þar líka.“ Íslenska landsliðið lék
á æfingamóti í danmörku fyrir tveimur vikum þar sem liðið fékk
slæman skell á móti noregi í fyrsta leik. „Ég held að það hafi ver-
ið fínt fyrir hópinn að fá svona skell eins og á móti noregi, þó svo
að alfreð hafi ekki verið sáttur.“ Íslenska landsliðið leikur í Magde-
burg og telur Markús að það verði nánast á heimavelli. „alfreð,
Óli, sigfús og arnór eru náttúrulega allir þekktir þar og svo höf-
um við æft þarna nokkrum sinnum áður og ég held að þetta
henti okkur mjög vel. Markmiðið er náttúrulega að komast upp
úr riðlinum og svo setjum við okkur ný markmið í milliriðlinum.“
Einar Örn Jónsson hornamaður Mind-
en í Þýskalandi var kallaður inn í hópinn
eftir að nafni hans Hólmgeirsson meiddist.
Einar hefur ekki átt fast sæti að undanförnu
í landsliðinu og segir að það sé gott að vera
kominn aftur.
„Það var hálfleiðinlegt að detta svona
út, en gaman að vera kominn aftur. Þó
að það sé leiðinlegt undir þessum kring-
umstæðum að Einar Hólmgeirsson hafi
meiðst, en eins manns dauði er annars
brauð. Það er slæmt að missa Einar Hólm-
geirs út en ég slæ ekki hendinni á móti að
taka þátt í þessu.“
Einar örn lék með Val og Haukum hér
heima en hefur verið í atvinnumennsku
undanfarin ár. Hann var fastamaður í lands-
liðinu á árum áður, en eftir töluvert flakk á
milli liða datt hann út úr landsliðshópnum.
Hann hefur því töluverða reynslu af stór-
mótum og líst vel á HM í Þýskalandi.
„Þetta verður náttúrulega stærsta mót
frá upphafi, síðasta HM í túnis var svona
töluvert klúður og þar á undan í Portúgal,
það var enginn glæsibragur yfir því en núna
hef ég fylgst vel með undirbúningi Þjóð-
verja og þetta verður í allt öðrum stærðar-
flokki en undanfarin mót. framkvæmda-
stjórinn hjá okkur í Minden er formaður
skipulagsnefndar HM þannig að ég hef
fengið reglulega fréttir af gangi mála, og
það er að verða uppselt á alla leiki, þannig
ég hlakka bara til. Þegar Þjóðverjar taka eit-
hvað svona að sér þá gera þeir þetta 300%
og þetta verður allt fyrsta flokks. Þetta eru
líka allt saman kunnuglegar hallir sem við
munum spila í, Magdeburg var annað
heimili sigfúsar, Óla, alfreðs og arnórs.svo
tala flestir málið þannig að menn geta að-
eins skroppið út í staðinn fyrir að vera bara
inni á hótelherbergi, en það gildir reyndar
um fleiri lið. Mörg lið eru með 10–12 leik-
menn í þýsku búndeslígunni.“
Gott að vera
kominn aftur
Í sambúð
í þrjá mánuði
Sakna bílaleigubílsins
Hef lítið spilað sem skytta í vetur
Hafnfirðingurinn Ásgeir Örn Hall-
grímsson hefur leikið vel með Lemgo í
þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í vetur
og hann var nokkuð ánægður með und-
irbúning íslenska liðsins.
„undirbúningurinn hefur geng-
ið ágætlega. Við höfum æft vel og það
gekk alveg sæmilega á mótinu í dan-
mörku og þetta lítur bara ágætlega út,“
sagði Ásgeir örn sem aðallega hefur leik-
ið í stöðu hægri hornamanns hjá Lemgo
í vetur.
„Við erum bara þrír örvhentir hjá Lem-
go. Hornamaðurinn hjá okkur meiddist
fyrir tveimur mánuðum síðan þannig að
við höfum verið tveir að skipta þessu á
milli okkar og ég hef meira verið í horn-
inu.“
Í kjölfar meiðsla Einars Hólmgeirsson-
ar hefur Ásgeir örn leikið töluvert í stöðu
hægri skyttu í undirbúningnum.
„Ef ein hægri skytta dettur út þá þarf
önnur að fylla í skarðið og það er mitt
hlutverk. Það er líka gott að vera með
Ólaf, hann leiðbeinir mér og segir mér til
sem er bara mjög gott. Hann kann þetta
allt og það er um að gera að nýta það,“
sagði Ásgeir örn sem greinilega var orð-
inn spenntur.
„Það er langt síðan maður fór að spá í
mótið og nú telur maður bara niður dag-
ana.“
Ásgeir Örn Hall-
grímsson mun fá
það hlutverk að
leika í stöðu Einars
Hólmgeirssonar
ásamt Ólafi Stef-
ánssyni á HM.