Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 36
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Íslands, stýr-
ir liðinu í fyrsta sinn á stórmóti í handbolta. Alfreð
tók við landsliðinu fyrir ári síðan og stýrði liðinu
í leikjunum gegn Svíum þar sem það tryggði sér
sæti á HM.
Alfreð sagði að undirbúningur fyrir mótið gengi
vel. „Að vísu eru smá meiðsli í gangi en ég get ekki
sagt annað en að staðan sé góð á mannskapnum,
fyrir utan þessi litlu meiðsli,“ sagði Alfreð og bætti
við að hópurinn mætti ekki við meiri meiðslum.
„Við megum ekki við neinu. Það er nú bara
þannig að ef við ætlum okkur eitthvað í þessari
keppni þá má eiginlega ekkert gerast.“
Lið Úkraínu er hættulegt
Alfreð telur það kost að geta séð Úkraínu og
Frakkland spila sama dag og Ísland mætir Ástral-
íu.
„Ég tel Úkraínuleikinn vera mjög hættulegan.
Eftir það tel ég vera plús fyrir Frakkana að fá auð-
veldan leik gegn Ástralíu áður en þeir mæta okkur.
Þetta er sterkur riðill og Frakkarnir eru líklegastir
að mínu mati til að vinna mótið.“
Eru einhverjar aðrar þjóðir sem Alfreð sér fyr-
ir sér að geti unnið HM? „ Króatar, Spánverjar og
hugsanlega Þjóðverjar af því að þeir eru á heima-
velli.“
Leikmenn þurfa að eiga sínu bestu keppni
Markmið Íslands að sögn Alfreðs er fyrst og
fremst að komast í milliriðil.
„Markmið okkar eru að komast upp úr riðlinum
og sjá svo til hvað setur eftir það. Við tökum bara
einn leik fyrir í einu,“ sagði Alfreð. En hvað þarf til
að ná góðum árangri á stórmóti eins og þessu?
„Megnið af leikmönnum okkar þarf að eiga
sínu bestu keppni og það er mjög slæmt fyrir okk-
ur að missa bæði Garcia og Einar. Í skyttustöðun-
um hjá okkur skortir töluverða breidd.“
dagur@dv.is
Á mánudaginn tilkynnti Alfreð Gísla-
son, landsliðsþjálfari Íslands, hvaða 17
leikmenn fara til Þýskalands á HM í hand-
bolta.
Þrír markverðir eru í hópnum en Fram-
ararnir Sigfús Páll Sigfússon og Björgvin
Gústavsson, sem voru í upphaflega æf-
ingahópnum duttu úr hópnum.
„Markús Máni mun hvíla alla leikina
í riðlinum. Ég tek þrjá markmenn með í
mótið og það er mikilvægt að hafa ýmsa
möguleika í svona sterkri keppni,“ sagði
Alfreð.
Í æfingahópnum á undirbúningstíma-
bilinu voru fjórir markverðir og fyrir fram
var búist við að valið stæði á milli Hreið-
ars Guðmundssonar og Björgvins Gúst-
avssonar en Björgvin datt úr hópnum fyr-
ir Tékkaleikina um síðustu helgi.
„Ég er svolítið að líta til reynslunnar í
því sambandi. Ég sá Björgvin spila í meist-
aradeildinni og þar lék hann oft og tíðum
mjög vel. Þeir fengu báðir að spila gegn
Ungverjum og hvorugur stimplaði sig
eftirminnilega inn.
Í Danmörku skoðaði ég þá báða og
það verður bara að segjast eins og er að
þar kom Hreiðar einfaldlega betur út.
Hreiðar hefur meiri reynslu að baki. Hann
er að vísu að koma úr meiðslum og er
ekki leikmaður sem stendur heilan leik.
Mín reynsla er sú að Hreiðar kemur inn á
og ver vel.
Hreiðar sýndi það á móti Svíum að
hann getur komið inn og tekið nokkra
bolta,“ bætti Alfreð við.
Birkir er markvörður númer eitt
FöSTUDAGUr 19. jAnúAr 200736 Sport DV
H m í þ ýs k a l a n d i 2007
vantar fleiri
góðar skyttur
Landsliðsþjálfarinn Alfreð Gíslason stýrir
Íslandi í fyrsta sinn á stórmóti í handbolta.
HM-Hópur Íslands
Aldur Félag Leikir Mörk
Markverðir:
Birkir Ívar Guðmundsson
30 Tus. Lübbecke 102 1
Hreiðar Guðmundsson
26 Akureyri 32 0
roland Valur Eradze
35 Stjarnan 45 0
Aðrir leikmenn:
Alexander Pettersson
26 Grosswallstadt 41 151
Arnór Atlason
22 FC Kaupmannah. 44 82
Ásgeir örn Hallgrímsson
22 Lemgo 53 82
Einar örn jónsson
30 Minden 120 246
Guðjón Valur Sigurðsson
27 Gummersbach 163 714
Logi Geirsson
24 Lemgo 39 77
Markús Máni Michaelsson
25 Valur 38 57
Ólafur Stefánsson
33 Ciudad Real 237 1108
ragnar Óskarsson
27 Ivry 72 129
róbert Gunnarsson
26 Gummersbach 88 285
Sigfús Sigurðsson
31 Ademar Leon 115 284
Snorri Steinn Guðjónsson
25 Minden 93 260
Sverre Andreas jakobsson
29 Gummersbach 18 10
Vignir Svavarsson
26 Skjern 64 62
Hefur áhyggjur af breiddinni
Alfreð segir að flestir leikmenn þurfi að
eiga sína bestu keppni ef vel á að ganga.
Alfreð Gíslason
Sagði þegar
leikmannahópurinn
var tilkynntur að
Markús Máni muni
hvíla alla leikina í
riðlinum.
D
V
m
ynd D
aníel