Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 65
föstudagur 19. janúar 2007 65DV Skák
Johann Hjartarson (2590)
– Viktor Kortschnoj (2640)
Áskorendaeinvígið, Saint John, 1988
Jóhann hafði á undirbúningstím-
anum fyrir einvígið gert ráð fyrir því
að Kortschnoj myndi beita opna
afbrigðinu af spánska leiknum og
hann ásamt félögum sínum hafði
legið lengi yfir afbrigðinu. „Við töld-
um okkur hafa fundið veikleika sem
myndi duga gegn Kortschnoj.“
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4
Rf6 5. 0–0 Rxe4 6. d4 b5 7. Bb3 d5
8. dxe5 Be6 9. c3 Be7 10. Rbd2 Rc5
11. Bc2 Bg4 12. He1 Dd7 13. Rf1
Hd8 14. Re3 Bh5
15. b4!
Þetta er lykilleikurinn. Þessum leik
hafði einungis verið leikið einu sinni
áður í stuttri jafnteflisskák en eft-
ir einvígi Jóhanns og Kortschnojs er
þetta afbrigði talið óteflandi á svart
og nánast aflagt. -Re6 16. Rf5 d4 17.
Be4 Bg6 18. g4 h5 19. h3 Kf8 20. a4
hxg4 21. hxg4 De8 22. axb5 axb5 23.
Ha6! Óvæntur leikur sem setur mikla
pressu á sjöttu reitaröðina. -Rb8
24. Hxe6!!
Skiptamunsfórn sem rústar svörtu
stöðunni. Hvítur vinnur strax lið til
baka og framhaldið er tæknileg úr-
vinnsla, sem Jóhann átti í litlum erf-
iðleikum með. -fxe6 25. Rxe7 Bxe4
26. Hxe4 dxc3 27. Rg6+ Kg8 28.
Hd4 Hxd4 29. Dxd4 Hh3 (Ridd-
arinn á g6 var friðhelgur vegna 30.
Dd8+ Kh7 31. Rg5+ og vinnur.) 30.
Rg5 Hh6 31. Rf4 Rc6 32. Dxc3 Dd8
33. Rf3 Rxb4 34. Bd2 Da8 35. Kg2
Rc6 36. g5 b4 37. Dc5 Hh7 38. Rxe6
g6 39. Dd5 Kh8 40. Red4 Dc8 41.
e6 Rxd4 42. Rxd4 c5 43. Bf4 Ha7
44. Rc6 1–0.
Eftirminnilegasta skák Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara segir hann vera fyrstu ein-
vígisskákina við Viktor Kortschnoj í Saint John í Kanada 1988. Sigur Jóhanns í einvíg-
inu þykir enn í dag eitt mesta afrek íslenskrar skáksögu.
Þegar undirbúningurinn
borgaði sig
„Það var mjög óvenjulegt andrúms-
loft og alls kyns læti í gangi í þessu ein-
vígi og karlinn lét öllum illum látum,
sérstaklega eftir að hann var kominn
tveimur vinningum undir og gerði allt
sem hann gat til að trufla mig. Ég varð
var við það þegar ég kom heim að fólk
var mjög reitt yfir þessu, sérstaklega því
að hann var að blása reyk framan í mig.
Það truflaði mig hins vegar meira þeg-
ar hann þrammaði um gólfið svo allt
lék á reiðiskjálfi á sviðinu. Ég hef aldrei
verið neinn sérstakur byrjanasnilling-
ur og átti oft erfitt með teoríuhestana
í byrjununum. Hins vegar höfðum við
undirbúið okkur mjög vel fyrir einvíg-
ið við Kortschnoj. Friðrik Ólafsson og
Margeir Pétursson voru mér til halds
og trausts og við Margeir höfðum stúd-
erað talsvert fyrir einvígið. Það sem er
eftirminnilegast við þessa skák er að í
henni afhjúpaði ég veikleika í opna af-
brigðinu af spánska leiknum þannig
að Kortschnoj tefldi það aldrei aftur
og það er í raun að mestu aflagt meðal
betri skákmanna. Lokaskákin í einvíg-
inu er reyndar líka mjög eftirminnileg
því það var alger úrslitaskák,“ sagði Jó-
hann Hjartarson stórmeistari.
JóHann HJartarson Á
hátindi ferils síns sigraði hann
Viktor Kortschnoj í áskorenda-
einvíginu í Kanada 1988. En
litla skrímslið, Karpov sjálfur,
sem var næstur í röðinni var of
stór biti að kyngja.
skák
Umsjón:
Kormákur Bragason & róbert Harðarson