Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 12
Dómsmál gegn fyrrverandi aðstoðarmanni Dicks Cheney varaforseta skekur nú
Bandaríkin. Málið snýst um leka á nafni njósnara CIA til fjölmiðla. Málið þykir hið
vandræðalegasta fyrir Bush Bandaríkjaforseta, enda tengist það ákvörðun um inn-
rásina í Írak.
Rúmlega 34 þúsund óbreytt-
ir borgarar féllu í átökum í Írak
í fyrra að sögn talsmanna Sam-
einuðu þjóðanna. Alda ofbeld-
isverka reið yfir í Írak, eink-
um síðari hluta síðasta árs. Auk
þeirra þúsunda sem féllu, særð-
ust að minnsta kosti 36 þús-
und óbreyttir borgarar í átökum.
Þessar tölur eru nærri þrisvar
sinnum hærri en þær tölur sem
innanríkisráðherra Íraks hefur
gefið út. Stjórnvöld í Írak draga
tölurnar í efa en segja jafnframt
útilokað að setja fram nákvæm-
ar tölur.
70 þúsund látnir
og særðir
Hálffimmtugur karlmaður
Jeffrey Brett Goodin á yfir höfði
sér allt að 101 árs fangelsi vegna
ruslpóstsendinga eða „spam“-
póstsendinga. Maðurinn verður
sá fyrsti sem hlýtur dóm sam-
kvæmt alríkislögum frá árinu
2003 en þau banna ruslpóst-
sendingar. Goodin sem bíður nú
dóms sendi þúsundum tölvu-
póst í nafni innheimtufyrirtæk-
is, ginnti viðtakendur til að gefa
upplýsingar um kreditkort og
bankareikninga og nýtti upplýs-
ingarnar síðan í eigin þágu. Auk
ákæru fyrir ruslpóstsendingar
var Goodin fundinn sekur um 10
önnur hegningarlagabrot, með-
al annars fjársvik, misnotkun á
vörumerki AOL og tilraun til að
hafa áhrif á vitni. Dómur verður
kveðinn upp yfir Goodin í sumar.
Fyrsti dómurinn
vegna ruslpósts
föstudagur 19. janúar 200712 Fréttir DV
Rússneskur ferðamaður
fannst látinn á mánudag úti fyrir
ströndum Egyptalands. Maður-
inn, sem var við köfun í Rauða
hafinu, er talinn hafa farið niður
á 100 metra dýpi, orðið súrefn-
islaus og drukknað þegar hann
reyndi að komast upp á yfirborð-
ið. Að sögn lögreglu virti maður-
inn að vettugi reglur sem kveða
á um að sportkafarar megi ein-
ungis kafa niður á 60 metra dýpi.
Fjórir ferðamenn hafa drukkn-
að við köfun úti fyrir ströndum
Egyptalands á tæpum mánuði
og er talið að þeir hafi allir kafað
langt niður fyrir 60 metra og orð-
ið súrefnislausir.
Drukknaði
við köfun
Tólf manna kviðdómur alríkis-
dómstóls í Atlanta ákveður á næstu
vikum örlög fyrrverandi ritara hjá
gosdrykkjarisanum Coca-Cola. Joya
Williams var ákærð ásamt tveim-
ur starfsfélögum fyrir samsæri um
að stela leyndarmálum Coca-Cola
í þeim tilgangi að selja þau helsta
keppinautnum, Pepsi. Upp komst
um málið í sumar í kjölfar viðamik-
illar rannsóknar bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI, sem hrundið var
af stað í kjölfar ábendingar frá stjórn-
endum Pepsi. Williams hefur ávallt
neitað sök en hinir sakborningarnir
tveir hafa játað sekt og munu að lík-
indum vitna gegn henni. Lögmenn
Williams draga í efa trúverðugleika
mannanna sem báðir eiga sakaferil
að baki. Annar hlaut sjö ára dóm fyr-
ir kókaínsmygl en hinn tveggja ára
dóm fyrir fjársvik. Réttarhöld í mál-
inu hefjast á mánudag og á Williams
yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsi
verði hún fundin sek.
Áformaði að stela leyndarmálum Coca-Cola og selja þau til Pepsi:
Á yfir höfði sér allt að tíu ára dóm
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Athyglisvert dómsmál Lewis scooter
Libby (fyrir miðju), fyrrverandi starfsmanna-
stjóri dicks Cheney varaforseta, gengur hér
til dómhússins ásamt lögfræðingum sínum.
Rice og Cheney á vitnalista
Joya Williams Yfirgefur alríkisdómstól
eftir að kviðdómur hafði verið valinn.
Williams er ákærð fyrir að hafa ætlað að
stela leyndarmálum gosdrykkjarisans
Coca-Cola og selja þau Pepsi.
Ástralska ríkisstjórnin for-
dæmdi múslímaklerk fyrir
meiðandi ummæli sem voru
kvikmynduð. Sheikh Feiz Mo-
hammed, formælandi Global
Islamic Youth Centre í Sydney,
hvatti börn til að gerast ís-
lamskir píslarvottar auk þess
sem hann sagði að gyðingar
væru svín. Annar háttsettur
múslímaklerkur, Sheikh Hilali,
olli einnig hneykslan með um-
mælum sínum um konur og
hvíta Ástrala.
Á myndböndunum sést Mo-
hammed, sem býr núna í Líb-
anon, segjast eiga þá ósk að
börnum verði boðið að verða
„hermenn sem verndi íslamstrú“.
„Kennið þeim þetta,“ sagði klerk-
urinn. „Að þeim verði ekkert ást-
kærara en að láta lífið sem Muha-
jid. Leggið innsigli jihad á mjúkt
og blítt hjarta þeirra og aukið ást
þeirra á píslarvætti,“ sagði hann.
Gyðingar eru svín
Fyrrverandi starfsmannastjóri Cheneys er fyrir rétti. Dóms-
málið snýst um leka á nafni njósnara leyniþjónustunnar CIA
Valerie Plame Wilson í fjölmiðla. Enginn hefur verið ákærð-
ur fyrir lekann sjálfan en Lewis Libby er ákærður fyrir rang-
an framburð við rannsóknarlögreglu, að bera ljúgvitni fyrir
dómara og að hindra rannsókn málsins.
Condoleezza Rice, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, Colin
Powell, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, og Dick Cheney varaforseti
eru meðal þeirra sem gætu ver-
ið kölluð til sem vitni í máli gegn
fyrrverandi starfsmannastjóra
varaforsetans Lewis Libby. Málið
er talið vera mjög pólitískt og fær
mikla athygli fjölmiðla vestanhafs.
Þátttaka háttsettra stjórnmála- og
embættismanna á þar hlut
að máli
en
einnig eru getgátur uppi um að
Libby hóti því að ljóstra upp rík-
isleyndarmálum náist ekki sátt í
málinu.
Njósnir og uppljóstranir um
Íraksstríðið
Dómsmálið snýst um að hátt-
settur embættismaður í Washing-
ton lak nafni njósnara CIA Valer-
ie Plame Wilson í fjölmiðla. Menn
gera því skóna að uppljóstrunin
tengist blaða-
skrifum
eigin-
manns Valerie, Josephs Wilson,
fyrrverandi sendiherra, þar sem
hann sakaði Bush og stjórn hans
um að mistúlka njósnagögn til að
réttlæta innrás í Írak. Jafnvel hafa
birst samsæriskenningar sem gera
ráð fyrir því að Bush eða Chen-
ey hafi fyrirskipað að nafni Valer-
ie yrði lekið í fjölmiðla. Hún missti
starfið eftir þetta og hefur höfðað
mál á hendur stjórnvöldum, með
þeim rökum að öryggi hennar og
fjölskyldunnar sé stofnað í hættu.
Aðstoðarmaður
varaforsetans ákærður
Libby er ákærður fyrir rangan
framburð við rannsóknarlögreglu,
að bera ljúgvitni fyrir dómara og
hindra rannsókn málsins. Refsing
við þessu getur numið samtals 88
milljónum íslenskra króna og
áralangri fangelsisvist. Eng-
inn hefur verið ákærð-
ur fyrir lekann sjálfan,
sem er mun alvar-
legra brot en það
sem Libby er
ákærður fyr-
ir. Rannsókn
málsins hefur
staðið frá ár-
inu 2003 en
Libby er sá eini
sem hefur ver-
ið ákærður. Hann
var starfsmanna-
stjóri og aðstoðarmaður Dicks
Cheney frá árinu 2001, en sagði af
sér árið 2005 eftir að ákæra var birt
á hendur honum.
Viðkvæmt fyrir Hvíta húsið
Aðalmeðferð málsins mun lík-
lega taka um mánuð. Þetta verður
vandræðamál fyrir Bush og stjórn
hans, ekki eingöngu vegna þess að
maður sem var áhrifamikill í Hvíta
húsinu er sakaður um alvarlega
glæpi, heldur einnig vegna þess að
málið er nátengt ásökunum um að
Bush hafi byggt innrásina í Írak á
gölluðum rökum. Libby var kall-
aður maðurinn á bak við Chen-
ey og telja stjórnmálaskýrendur
hann hafa liðkað fyrir ákvörðun-
inni og rökstuðningnum að baki
innrásinni.