Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Blaðsíða 23
DV Helgarblað föstudagur 19. janúar 2007 23 Gerið góð kaup, mörg húsgögn undir kostnaðarverði, full búð af nýjum vörum á tilboði. Útsala 10-70% afsl. 39.900 kr 13.500 kr Frá 16.900 kr 34.000 kr sandkorn Þjóðir eru furðulegar skepnur, það er eins og allt snúist og fari forgörð- um í klaufunum á þeim. Meðan ráð- lausir sem núna stjórna ríkjum Vest- urlanda voru háværir og ungir báru þeir í barmi merki sem átti að tryggja líf í mennskum heimi. Þar stóð: Eng- an atómkraft. Síðan gerðist það á neyslufrekri ævi að þeir eyddu orku jarðar og virðast ekki sjá á valdastóli aðra lausn á eyðingu andrúmslofts- ins og ráð til að halda áfram eyðslu en reisa kjarn- orku- ver sem framleiða ódýra og að sögn ótæm- andi orku. Komið hefur í ljós að hefði barmurinn ekki ráðið heldur heil- inn og kjarnorkan notuð skynsam- lega væri mannkynið að mestu laust við mengun og skaðvænleg áhrif hennar. Auðvitað er þetta á vissan hátt vitleysa, studd með vísindaleg- um rökum en hver tími verður að hafa sína sérstöku vitleysu sem er síst verri en sú á undan. Við sækjum í vitleysuna, enda vekur hún trúð- inn eða leikgleðina í okkur og trygg- ir að minnsta kosti um stund blindu á vandann. Vitleysan er hentug sefj- un á erfiðum tímum. Fyrir bragð- ið er enginn orkuskortur um þessar mundir í framleiðslu á sjálfshjálp- arbókum þegar hjálpin berst okkur ekki lengur af himnum ofan eða frá nýjum hugmyndum í stjórnmálum. Eitt gleymist þegar rætt er um orku- skort og lausn á honum, að mikil eða lítil orkuþörf tengist fólksfjölda. Þrír menn þurfa meira sér til framfærslu en einn, nema þeir séu svipaðir hon- um í sparseminni. Sama gildir um þjóðir. Væru íbúar jarðar færri þyrfti minni orku. Áður bjuggu færri hér í heimi og hugtakið orkuþörf þekktist varla fyrr en með framrás auðvalds- ins og meiri framleiðslu á vörum og gæðum, oftast fyrir fáa. Fækkun mannkyns er næstum bannorð. Ekki má ráðast á kynorkuna eða koma með tilmæli um að beina henni að öðru en barnaframleiðslu. Slíkt er synd í kvenvæddum og klámvædd- um heimi. Fólk vill endilega eiga börn þótt það hafi engin not fyrir þau nema til að vera stöðugt á vand- ræðalegum þeytingi með krakka í bíl milli skóla áður en það fer sjálft í vinnu og hefur varla tíma til að líta í nýjustu sjálfshjálparbókina á kvöldin og finna menntaðan millistéttarkraft í kókaíni. Á orkuvandatímum Kjallari GuðberGur berGsson rithöfundur skrifar Vitleysan er hentug sefjun á erfiðum tímum. nafnið Fari svo að Mar- grét Sverrisdótt- ir falli í kosning- um í Frjálslynda flokknum eftir viku er talið ljóst að hún rói á önnur mið. Hún og karl faðir hennar Sverrir Hermannsson eru sögð undir það búin og þau eiga að hafa tryggt sér rétt á nafni flokksins. Því getur farið svo að Guðjón Arn- ar Kristjánsson formaður og félag- ar hans verði að sigla til kosninga á nýju skipi, sem heiti þá annað en Frjálslyndi flokkurinn. Þess vegna kann að verða barist um fleira en æðstu embætti flokksins, mögulega verður einnig barist um nafnið. sleggjan og fléttan Hvað Krist- inn H. Gunnars- son hyggst gera er í þoku, en það kemur alls ekki í veg fyrir vangaveltur. Nú er helst talið að hann bíði spenntur eftir hvernig Margréti Sverrisdóttur reiði af í kosningum innan Frjálslynda flokksins. Fari svo að forystuskipti verði er talið nokkuð víst að Kristinn gangi til liðs við Margréti og verði þá í fyrsta sæti í Norðvesturkjördæmi, kjördæmi Guðjóns Arnars Kristjáns- sonar, en þar hefur flokkurinn verið sterkastur til þessa. Það er spenna fram undan. sameinaðir stöndum vér Núverandi þing- flokkkur Frjáls- lynda flokksins tel- ur sig hafa gengið langt til að ná sátt- um við Margréti Sverrisdóttur og svo virðist sem þre- menningarnir Guðjón Arnar Kristj- ánsson, Magnús Þór Hafsteinsson og Sigurjón Þórðarson standi saman í að verja sitt bú gegn árás Margrétar og hennar stuðningsfólks. Denni til Vísis Steingrímur Sævarr, blogg- ari hefur verið kallaður til ráð- gjafar hjá D3, sem meðal ann- ars rekur Vísi. Steingrímur eða Denni fær það hlutverk meðal annars að hefja blogg á Vísi til vegs og virðingar. Blogg mbl.is ber höf- uð og herðar yfir önnur og það una menn ekki við. Denni var títt með ítarlegar fréttir af gangi mála þegar lokun NFS var í undirbúningi. Frétt- ir af fundum Þóris Guðmundsson- ar varafréttastjóra með stjórnend- um 365 bárust með ljóshraða inn á vefsvæði Denna. Hvort Þórir átti þar hlut að máli eða ekki skal ósagt lát- ið. Tíðinda er að vænta af ljósvaka- miðlarekstri 365 og Þórir ef til vill séð þann kost vænstan að munstra Denna á skútu sína meðan ósköpin ganga yfir. skelfur enn í skaftahlíð? Hinn kunni fjölmiðlam- aður Jón Axel Ólafsson rennir stoð- um undir þetta og fullyrðir að til stórtíðinda dragi senn hjá ljósvaka- hluta 365. Menn búi sig undir aukna sam- keppni við RÚV því enginn efi sé á að útvarpslagafrumvarp Þorgerðar Katrínar renni í gegn. Jón Axel vitnar á vef sínum í bréf sem honum barst en þar segir meðal annars að miklar breytingar séu í vændum. Ný and- lit birtist á skjám 365, önnur hverfi. Sama eigi við um þætti á stöðvum 365. Loks segir að rekstur ljósvaka- hluta 365 gangi langt í frá sem skyldi og stjórn félagsins sé með nefið ofan í öllu. Gamalt fólk vill ekki íþróttir á RÚV Guðbjörg Guðmundsdóttir hringdi: Ég vil koma á framfæri þeirri óánægju minni að ríkissjónvarpið skuli sýna svona mikið af íþrótta- þáttum um helgar. Við erum neydd til að borga áskrift að ríkis- sjónvarpinu og þess vegna finnst mér alveg ótækt að neyða okkur til að horfa á íþróttir sem fæst gamalt fólk hef- ur áhuga á. Þegar færðin er svona slæm þá förum við lítið út úr húsi og eina afþrey- ing margra er sjónvarpið og núna er færðin búin að vera slæm í margar vikur og okkur hundleiðist heima um helgar. Við erum sautj- án í minni fjölskyldu og ekkert okkar vill horfa á íþróttir og þess vegna finnst mér það óréttlátt að hafa svona mikið af íþróttaefni fyrir okkur sem viljum ekki horfa á það. Þessu þarf að breyta og skora ég á aðra að láta í sér heyra sem eru sama sinnis. lesendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.