Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 10
Alls seldust 39 fasteignir í sérbýli á Ísafirði á nýliðnu ári. Meðalstaðgreiðsluverð á fer- metra var 67.382 krónur. Tölu- verð aukning er í sölu á milli ára en árið 2005 seldust 24 fasteign- ir í sérbýli á Ísafirði. Meðal- staðgreiðsluverð á fermetra var 54.593 krónur og hækkaði verðið því um 23,4% á milli ára. Ódýrara að kaupa á Ísafirði Stéttarfélög opinberra starfsmanna virtu að vettugi niðurstöðu kæru- nefndar jafnréttismála, en nefndin úrskurðaði að fjölskyldu- og styrkt- arsjóður félaganna hefði átt að greiða föður styrk í fæðingarorlofi rétt eins og gert er þegar konur eiga í hlut. Starfsmaður sjóðsins seg- ir málið vera á viðkvæmu stigi, sjóðurinn sé í tug- milljóna yfirdrætti og stendur ekki leng- ur undir því að greiða konum fæðingarstyrki. Sjóðurinn greiðir út ár- lega um 200 milljón- ir króna í styrki til fé- lagskvenna og greiðslur munu verða skertar sama hvað gerist. Eiríkur Jóns- son, formaður Kennarasam- bands Íslands, segir að fæð- ingarstyrkur- inn hafi upp- haflega verið hugsaður sem greiðsla vegna fæðing- ar og ef styrkjum væri skipt jafnt á milli karla og kvenna yrðu kjarasamnings- bundin réttindi kvenna skert. Eiríkur segir að fundur um málið verði fljót- lega og að hans áliti er eina leiðin til að jafna þessi réttindi á milli kynjanna að taka pening úr sjúkrasjóði stéttar- félaganna til að hafa fyrir kostnaði. Hver sem niðurstaðan verður mun einhver óhjákvæmilega tapa á þessu. Fjölskyldu- og styrktarsjóður BHM, BSRB og KÍ synjaði um- sókn karlmanns um styrk úr sjóðnum á þeim forsend- um að einungis konur ættu rétt á greiðslum samkvæmt reglugerð. Hlutverk sjóðsins var upphaflega að annast greiðslur til félagsmanna í fæðingarorlofi og bæta þannig sjóðsfélögum það tjón sem þeir hefðu orðið fyrir við gildistöku nýrra reglna um greiðslu launa í fæð- ingaror- lofi. Kæru- nefnd jafnrétt- ismála Sjóðurinn er rekinn á yfirdrætti og ljóst að skerða verður greiðsl- ur úr honum. Sjóðurinn hefur áður brotið jafnréttislög. föstudagur 19. janúar 200710 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Hnefaleikafélag Reykjaness ætlar að opna hnefaleikahöll í gömlu sundhöllinni í Kefla- vík. Starfsemi félagsins hefst af fullum krafti þar fljótlega. Í dag æfa um 110 börn og ungling- ar ólympíska hnefaleika hjá fé- laginu. Aðstaðan í sundhöllinni bætir úr aðstöðuleysi félagsins og vonir standa til að hægt verði að fjölga iðkendum. Hnefaleikar hafa verið mjög vinsælir í Kefla- vík á undanförum árum. Box í sundhöll Kærunefnd jafnréttismála úr- skurðaði að stéttarfélög opin- berra starfsmanna hefðu brotið á félagsmanni sínum með því að neita honum um fæðingarstyrk. Ólafía Erla SvanSdÓttir blaðamaður skrifar: olafia@dv.is Karlarnir Klára sjÓðinn komst að þeirri niðurstöðu að synjun sjóðsins bryti í bága við jafnréttislög svo og jafn- ræðisreglu stjórnarskrárinnar. Styrkt- arsjóðurinn hefur ekki brugðist við úrskurðinum og ekki samið við kær- andann. Sams konar mál kom á borð kæru- nefndar jafnréttismála 2003 og var þá líka úrskurðað kæranda í vil. Stéttarfé- lögin sömdu ekki við kær- anda fyrir hönd sjóðsins þá, þrátt fyrir að tilmæli væru gerð þar um. Yfirgnæfandi meirihluti mála sem koma til kærunefndar jafnréttismála eru mál um stöðuveitingar og launa- mál. gefið var álit í sextán málum í fyrra. Álit nefndarinnar eru ekki bind- andi úrskurðir og hafa ekki réttaráhrif, heldur eru þau sérfræðiálit frá stjórn- valdi. Margrét María sigurðardóttir, framkvæmdastýra jafnréttis- stofu, segist hafa reiknað með þessum niðurstöðum kæru- nefndar í máli fjölskyldu- og styrktarsjóðs stéttarfélag- anna, þetta væri annað álit- ið í svipuðu máli og engin breyting hefði átt sér stað frá fyrra áliti. Margrét segir að það þurfi í rauninni að fara í dómsmál til að koma breytingum af stað, en það sé undir kærandanum sjálf- um komið. Ágreiningur er um hvort kærunefnd eigi að hafa úrskurðar- vald og bendir Margrét á að jafnrétt- islög séu í endurskoðun. Enn eigi eftir að koma í ljós hverju verði breytt og hvort álit nefndarinnar öðlist réttará- hrif. „skerpa þarf þessar tennur sem kærunefndin hefur,“ segir Margrét. Ekki hefur verið gerð sam- antekt á því um hve mörg mál sem komið hafa fyrir kærunefndina hefur ver- ið samið eða í hve mörg- um tilvikum dómsmál hefur verið höfðað. Há- skóli Íslands hefur tvisvar tapað máli fyrir kærunefnd- inni en ákvað að semja ekki og virti þannig álit kæru- nefndar jafnréttismála að vettugi. Bitlausar tennur kærunefndar Eiríkur Jónsson formaður Kennarasam- bands íslands segir að ef fæðingarstyrknum yrði skipt jafnt á milli kvenna og karla yrðu kjarasamningsbundin réttindi kvenna skert. Silvía Nótt ætlar að frum- flytja nýtt lag af væntanlegri plötu sinni á Hlustenda- verðlaunum FM 957, sem verða veitt þann 23. janúar. Lagið heitir Thank you baby og segja menn að lagið sé mjög hressandi. Plata Silvíu kemur til með að heita Goldmine og verða 10 lög á henni. Platan kemur út í apríl. Annars er það að frétta af Silvíu að hún ætlar að kenna stelpunum úr Nylon hverning eigi að meika það í útlöndum í sjónvarpsþætti sínum sem hefst þann 15. febrúar. Stórar yfirlýsingar að venju frá þessari popp- prinsessu. Silvía Nótt gefur út Goldmine

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.