Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 16
„Í mínum huga er þetta þjófnaður af eldri borgurum sem hefur viðgeng- ist í áratugi vegna þess að það stend- ur ekkert í lögunum um þjónustu- íbúðir og ekki hægt að neyða okkur til að þiggja og greiða fyrir þjónustu sem við viljum ekki,“ segir Halldór Eggerts- son íbúi að Lindargötu 66, en Halldór er rukkaður fyrir þjónustu sem hann fær ekki og vill ekki. Hann segist ætla að kæra þá sem bera ábyrgð á arðrán- inu. Halldór hefur ráðið sér lögfræð- ing sér til aðstoðar. „Ég er bara gam- all aumingi sem er að fara í mál við stóran risa eins og Reykjavíkurborg og ætla mér ekki að gefast upp þótt ég sé stundum þreyttur á þessari baráttu,“ segir Halldór. Félagsbústaðir hf. sjá um inn- heimtu á þjónustugjöldum vegna þjónustuíbúða aldraðra á Lindargötu. Fyrir ári síðan neitaði Halldór Eggerts- son að greiða þjónustugjöldin sem nema 6.700 krónum á mánuði. Hann krafðist svara við því hvað fælist í gjald- inu. Fjórum mánuðum seinna fékk hann svar frá velferðarsviði Reykja- víkurborgar þar sem kom í ljós að þjónustugjaldið skiptist á milli sólar- hringsvaktar og skrifstofugjalds fyr- ir þjónustumiðstöðina á Lindargötu. Halldór segir ekki sanngjarnt að hann greiði fyrir það sem fólk af götunni nýtir sér, eins og til að mynda rekstur þjónustumiðstöðvarinnar. Gamalt fólk er hálfdautt fólk „Það er litið á okkur gamla fólk- ið sem hálfdautt fólk sem er að fjara út og deyja. Það hlustar enginn á okk- ur og þeir sem níðast á okkur með því að láta okkur greiða fyrir allt mögulegt eru öldrunarníðingar og það skort- ir allt umburðarlyndi og virðingu fyr- ir eldri borgurum í þessu þjóðfélagi,“ segir Halldór. Hann segist ekki skilja hvað ættingjar gamla fólksins séu að hugsa með því að standa ekki betur við bakið á fólkinu sínu og gæta hags- muna þess. „Það er mikið af eldra fólki sem einangrar sig og þorir ekki að fara út úr húsi. Mér líður hræðilega vegna konunnar sem hafði verið dáin í mán- uð í íbúðinni sinni og ég ætla að fá mér hreyfiskynjara sem er tengdur við ör- yggismiðstöð svo þetta þurfi ekki að koma fyrir mig,“ segir Halldór. Þetta er neytendamál Gísli Tryggvason, talsmaður neyt- enda, segir í samtali við DV að þetta sé neytendamál og þess vegna sé hann að kanna það til hlítar og kynna sér rétt- mæti þess að borgin innheimti þjón- ustugjöldin án þess að gefa fólki kost á því að eiga val um hvort það vill þessa þjónustu eður ei. Gísli segir að í lok janúar fari hann á fund með Félagsbú- stöðum og velferðarsviði Reykjavíkur- borgar til að heyra þeirra sjónarmið og í kjölfar þess gefi hann út skýrslu um málið. Fékk ekki gjafsókn Halldór sótti um gjafsókn lögfræð- ings til að sækja mál sitt en fékk neit- un hjá gjafsóknarnefnd. Lögfræðing- ur Halldórs, Magnús B. Brynjólfsson, segir málið vera Halldóri mjög skylt, því hann hafi unnið í félagsþjónustu við umönnun í mörg ár og viti um hvað hann sé að tala þegar kemur að þjónustu og þjónustugjöldum. Magn- ús segir að það sé í bígerð að undir- búa kæru Halldórs vegna innheimtu þjónustugjaldanna og að það sé mjög pirrandi fyrir Halldór að fá ítrekað inn- heimtubréf inn um lúguna hjá sér og þetta mál þurfi að leysa. Magnús seg- ir að Halldór hafi ekkert val um það hvort hann vilji þá þjónustu sem hann er rukkkaður fyrir eða ekki og að þetta sé greinilega neytendamál þar sem verði að hafa hagsmuni og rétt neyt- andans að leiðarljósi. Við erum eins og börn Halldór segir að gamalt fólk sé eins og börn, verði oft óöruggt og hrætt og þurfi á meiri ást og umhyggju að halda. „Ég vona að ættingjar gamla fólksins hugsi um það því það er ein- manalegt að vera einn á gamals aldri og finnast eins og engum sé annt um mann. Ég fæ oft tár í augun þegar ég hugsa um það hvernig farið er með gamla fólkið og enginn þorir að segja neitt. Mál mitt er fordæmisgefandi og ég trúi því að yfirvöld átti sig á því að þau hafa arðrænt gamla fólkið í gegn- um tíðina í formi þjónustugjalda fyrir þjónustu sem fólk fær ekki eða kær- ir sig ekki um og nemur upphæðin mörgum milljörðum. Þettta er sví- virðileg framkoma við okkur,“ segir Halldór að lokum. föstudagur 19. janúar 200716 Fréttir DV Þjónustugjöldin mishá Í Reykjavík borga eldri borgar- ar, sem eru í þjónustuíbúðum fyr- ir aldraða, mishá þjónustugjöld. Fer upphæðin eftir því hversu mikil þjónusta býðst fólki en allar íbúðirnar eru með öryggishnapp og sólarhringsvakt. Aftur á móti eru sumar þjónustuíbúðir að auki með sólarhringsvakt hjúkrunar- fólks og í þeim íbúðum greiðir fólk mun hærri þjónustugjöld. Fólki býðst ekki að greiða samkvæmt þeirri þjónustu sem það vill og greiða allir sömu upphæð hvort sem þeir þurfa á aðstoð að halda eða ekki. Frá fyrsta janúar í ár hækkuðu þjónustugjöld aldraðra í Reykjavík. Á fimmta hundrað á biðlista Í Reykjavík bíða tæplega fjög- ur hundruð umsóknir eldri borg- ara um þjónustuíbúðir afgreiðslu en það eru jafnmargar umsóknir og fjöldi þjónustuíbúða á vegum borgarinnar. Um er að ræða 434 einstaklinga sem bíða eftir því að komast í þjónustuíbúðir, sam- kvæmt upplýsingum frá Velferð- arsviði Reykjavíkurborgar. Ekki er von á að biðlistinn styttist fyrr en þjónustuíbúðir sem borgin hyggst byggja í Spönginni verða tilbúnar árið 2009. 200 nýjar íbúðir árið 2009 Áætlað er að rúmlega tvö hundruð þjónustuíbúðir verði teknar í notkun árið 2009 að sögn Hrólfs Jónssonar, sviðsstjóra fram- kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. Hann segir fyrirhugað að byggja þjónustumiðstöð, kirkju og íbúðir fyrir aldraða í Spönginni í Grafar- vogi, auk þjónustuíbúða á Sléttu- vegi. Íbúðirnar verða stærri en þær sem til eru eða á bilinu 55 til 95 fermetrar. Hrólfur segist vona að íbúðirnar í Spönginni verði til- búnar vorið 2009 en á Sléttuvegin- um síðar sama ár. Halldór Eggertsson ellilífeyris- þegi Býr í þjónustuíbúð að Lindargötu 66. Hann vill ekki hafa neyðarhnapp í íbúðinni og vill sjálfur fá að ákveða hvort hann kaupi þjónustuna eða ekki. Öldrunarníðingar féfletta gamalt fólk Halldór Eggertsson ellilífeyrisþegi sem býr í þjónustuíbúð aldr- aðra á Lindargötu ætlar að fara í mál við Félagsþjónustu Reykja- víkur vegna þjónustugjalda sem honum er gert að greiða. Hall- dór segist hvorki fá boðaða þjónustu né kæri sig um hana og skilur ekki hvers vegna hann er neyddur til að greiða 6.700 krón- ur á mánuði fyrir ekki neitt. Hann greiðir í hússjóð og leigu fyrir íbúðina og honum finnst að með því greiði hann fyrir það sem hann fær. Jakobína DaVíðsDóttir blaðamaður skrifar: jakobina@dv.is Gísli tryggvason, talsmaður neytenda segir að mál Halldórs sé neyt- endamál og vert að kanna réttmæti innheimtu þjónustugjalda. Magnús b. brynjólfsson, lögfræð- ingur Halldórs Er að undirbúa kæru Halldórs á hendur félagsþjónustu reykjavíkur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.